Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 70
Friðrik Þór Friðriksson, kvik- myndagerðarmaður og fram- leiðandi, er nýkominn heim frá Cannes. Þrátt fyrir að honum hafi þótt hátíðin í ár verið í daufari kantinum segir hann há- tíðir sem þessar nauðsynlegar fyrir mann í sinni stöðu. „Maður þarf að láta sjá sig. Þetta er svona svipað eins og fermingar- veisla. Ef þú mætir ekki þá ertu ekki til. Reyndar er það nú þannig að aðeins lítið brot af þeim fjölda sem mætir skiptir máli. Þú verður engu að síður að hitta þá sem máli skipta ef þú ætlar þér eitthvað,“ segir hann. Friðrik segir meðalmennsk- una ráða ríkjum þessa dagana og ekki sé jafn auðvelt að fjár- magna listrænar myndir. „Það eru einfaldlega minni peningar til,“ segir hann en Friðrik er einmitt þessa dagana að undir- búa kvikmynd um Þórð kakala byggða á sögu Einars Kárason- ar. Það er óhætt hægt að segja að Friðrik hafi verið á ferð og flugi undanfarna daga. Hann var meðal annars nýverið í Singapúr þar sem hann kynnti kvikmynd- ina Næsland. „Hún fékk mjög góðar viðtökur þar eins og ann- ars staðar erlendis,“ segir Friðrik og bætir við að ekki gangi að gera mynd og skilja hana síðan eftir munaðarlausa „Ef maður fylgir myndinni sinni ekki eftir gerist ekkert. Það verður að rækta þetta og sinna kynningum,“ segir Friðrik. Ferðalögin eru þó ekki ein- göngu tómt puð og leiðindi held- ur getur oft ýmislegt skrítið gerst. Meðal þess sem Friðrik minnist er frá kvikmyndahátíð í Japan árið 1992 þar sem hann keppti með mynd sína Börn náttúrunnar. „Quentin Tarantino var þarna líka með myndina sína Resevoir Dogs og við vor- um saman við verðlaunaafhend- inguna ásamt borgarstjóra Tókýó en borgin styður dyggi- lega við þessa hátíð,“ segir Friðrik. „Okkur var síðan boðið út að borða á heldur óvenjulegan stað, á elsta hóruhúsið í borginni,“ segir Friðrik og stekkur ekki bros á vör. „Borgarstjórinn stakk síðan upp á að við færum í karaókí- keppni, enda mikil hefð fyrir því í Japan,“ bætir Friðrik við „og Tarantino fékk að byrja.“ Hann söng Delilah en hann fór nokkrum sinnum út af laginu enda er það erfitt til söngs,“ seg- ir Friðrik sem sjálfur tók Like River Flow (Wise Men Say) með Elvis. „Það heppnaðist líka svona rosalega vel að allar átt- ræðu geishurnar felldu tár enda hefur þetta sjálfsagt vakið upp minningar,“ segir stórsöngvar- inn Friðrik Þór og hlær að þess- ari heldur óvenjulegu minningu frá Japan, sigrinum yfir Tarantino. freyrgigja@frettabladid.is 42 29. maí 2005 SUNNUDAGUR SKE Hljómsveitin Ske spilar á tvennum tónleikum í Danmörku 10. og 11. júní. N‡rri plötu dreift um Evrópu Hljómsveitin Ske gerði nýverið samning um að dreifa nýjustu plötu sinni, Life, Death, Happi- ness & Stuff, í Evrópu. Platan verður gefin út í Skandinavíu, Þýskalandi, Belgíu og Hollandi í sumar. Platan verður síðan gefin út síðar á árinu í Belgíu. Um þess- ar mundir er verið að vinna að myndbandi við lagið Beautiful Flowers, sem kemur væntanlega út á smáskífu í ágúst. ■ Me› puttann á púlsinum FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON: Á FERÐ OG FLUGI Vann Tarantino í karaókí ...fær hin portúgalska söngkona Mariza, sem keypti sér íslenska hönnun í Spaksmannsspjörum áður en hún hélt af landi brott. HRÓSIÐ FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON „Þetta er ekta grín, spjall og skemmtiþáttur. Þær Sigríður Pétursdóttir og Halldóra Rut Björnsdóttir verða svo þarna með mér með alls konar uppá- komur,“ segir Guðmundur Steingrímsson, einn stjórnenda „Kvöldþáttarins“. Hann mun verða sýndur á nýrri sjónvarps- stöð sem væntanleg er í loftið og ber heitið Sirkus. Þátturinn verður á dagskrá stöðvarinnar fjóra daga vikunnar, frá mánu- degi til fimmtudags, á milli tíu og ellefu. „Ég sit við skrifborðið og svo fáum við innslög frá fullt af fólki utan úr bæ. Þátturinn mun einkennast af beinskeyttum húmor og mun sýna aðrar hliðar á þjóðfélagsmálunum en vana- lega. Þarna verða óhefðbundnar fréttir og einnig koma gestir í sófann til mín og aðallega stór- stjörnur. Í rauninni má orða það þannig að enginn verði stór- stjarna nema hann komi í viðtal í Kvöldþáttinn,“ segir Guð- mundur kokhraustur og jafnvel hálfpartinn í gríni. „Það er enginn svona þáttur í íslensku sjónvarpi en svona kvöldþættir eru þekktir erlend- is. Við verðum þarna með putt- ann á púlsinum og þetta er þátt- urinn sem fólk á að horfa á ef það vill vita hvað er að gerast.“ Aðspurður segir Guðmundur ekki vera komið í ljós hvenær þátturinn hefji göngu sína en segir fólk bara þurfa að fylgjast með. „Það kemur að því að þetta dynur á fólki.“ ■ KVÖLDÞÁTTURINN Ný sjónvarpsstöð er væntanleg í loftið og þar munu þau Guðmund- ur Steingrímsson, Halldóra Rut Bjarnadóttir og Sigríður Pétursdóttir skemmta landanum í Kvöldþættinum sem verður sýndur fjóra daga vikunnar. HIN HLIÐIN HIN HLIÐIN Á SIGURSTEINI BRYNJÓLFSSYNI, FORMANNI LIVERPOOL-KLÚBBSINS Á ÍSLANDI. Hvernig ertu núna? Ég er bara fínn. Augnlitur?: Blágrár. Starf?: Verkefnastjóri. Stjörnumerki?: Fiskur. Hjúskaparstaða?: Í sambúð. Hvaðan ertu? Ég er upphaflega frá Selfossi en hef búið lengst af á Horna- firði. Helsta afrek?: Að vera á vellinum í Istanbúl þegar Liverpool vann Meist- aradeildina og að sjálfsögðu börnin mín. Helstu veikleikar?: Óbilandi þrjóska. Helstu kostir?: Maður reynir yfirleitt að vera frekar jákvæður. Uppáhaldssjónvarpsþáttur?: Meistaradeildin og 24. Uppáhaldsútvarpsþáttur?: Mér finnst alltaf gaman af Valtý Birni og félög- um í þættinum Mín skoðun. Uppáhaldsmatur?: Hamborgarhryggur. Uppáhaldsveitingastaður?: Players. Uppáhaldsborg: Liverpool. Mestu vonbrigði lífsins?: Þau eru kannski bara tengd fótboltanum, t.d. að hafa ekki unnið enska meistaratitilinn síðustu árin. Áhugamál?: Fótbolti og golf. Viltu vinna milljón? Anytime. Jeppi eða sportbíll? Sportbíll. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Mér skilst þegar ég var patti að ég hafi alltaf viljað vera kokkur. Ekki veit ég af hverju. Hver er fyndnastur/fyndnust? Monty Python-gengið eins og það leggur sig. Hver er kynþokkafyllst(ur)? Sóley Berglind Erlendsdótt- ir. Trúir þú á drauga? Nei. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Ljónið. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Það væri mjög dap- urt að vera ánamaðkur. Áttu gæludýr? Við erum með tvo gullfiska. Besta kvikmynd í heimi?: Life of Brian. Besta bók í heimi?: Saga Liverpool FC. Næst á dagskrá?: Að fara að huga að sumarfríi. 9.3. 1972 Afrek a› vera á vellinum í Istanbúl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.