Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 19
3ÞRIÐJUDAGUR 5. júlí 2005 100% hreinn fyrir þig SMOOTHIE ávaxtadrykkur Arka • Sími 899 2363 Vertu fallega sólbrún(n) - innan frá Vísindalega staðfest. Imedeen Tan Optimizer - hylki verka innan frá og veita gylltan húðlit, sem helst lengur en þig hefur nokkurn tímann dreymt um. Hylkin undirbúa húðina fyrir sólina, minnka roða og viðkvæmni fyrir sól, verja húðina gegn öldrun af völdum sólar og örva myndun á fallegri sólbrúnku. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Opið virka daga kl. 10-20 laugardaga kl. 10-17 SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ Síðuspik Orkuefni líkamans Líkaminn notast við þrjú orkuefni. Þau eru fita, kolvetni og prótein. Orkuefnin eru geymd í líkamanum og mynda orkuforða hans. Orkuefni þýðir ein- faldlega efni sem gefur okkur orku, þá orku sem við lifum á og göngum fyrir. Auk þess eru prótein og fita aðalupp- byggingarefni líkamans. Ef við hugsum okkur líkamann sem bíl þá er bíllinn byggður úr próteini og fitu á meðan hann notar kolvetni meira eins og bensín. Hvers vegna fitnum við? Við fitnum, svo til undantekningar- laust, vegna þess að við neytum fleiri hitaeininga en við brennum. Þá er sama hvaða orkuefni við innbyrðum, því kolvetni, prótein og fita verða öll að fitu sé þeirra neytt í of miklu magni. Líklegra verður að teljast að líkaminn geymi fitu sem fitu en kol- vetni eða prótein þar sem hann þarf að hafa fyrir því að umbreyta síðar- nefndu efnunum yfir í fitu áður en hann geymir þau. Hvernig minnkum við síðuspikið? Erfiðasta breytingin fyrir flesta er að breyta mataræðinu. Samt skiptir það jafnvel meira máli en þjálfunin! Oftast virkar best að gera áherslubreytingar á mataræði. Áherslubreytingar í mataræði? Þær felast m.a. í því að borða oftar yfir daginn með því að fá sér millimál, til dæmis ávöxt, en að öðru leyti að borða meira og minna eins, þ.e. sama matinn á sömu tímum. Ávextir og grænmeti eru einnig vatnsríkari fæða en flest önnur og gefur okkur þar af leiðandi meiri saðsemistilfinningu. Þegar ég var púki borðaði ég nær aldrei grænmeti en eftir að ég gerði mér grein fyrir því hvað maður verður þægilega saddur af því, sem meðlæti, sleppi ég því nær aldrei! Gróft kornmeti + ávextir + græn- meti! Að auðga fæðuna með grænmeti, grófu kornmeti og ávöxtum kemur mjög vel út þar sem hægt er að byrja rólega og sjá svo til og bæta við. Af grænmeti er spínat – tilvalið að nota ferskt sem salat – og spergilkál/brokk- ólí – tilvalið að hafa létt gufusoðið sem meðlæti – einir bestu fitu- brennsluhvatar sem til eru. Sveitt en samt samræðuhæf! Til þess að hámarka fitubrennslu er líklega ein besta viðmiðunin sú að við stundum þjálfun að því álagi að við svitnum en getum jafnframt haldið uppi samræðum. Þetta ætti, sérstak- lega sé tekið fyrir bæði mataræði og þjálfun, að saxa fljótt á síðuspikið... Gangi þér vel! Þetta og fleiri hollráð er einnig að finna á heimasíðu Heilsuráðgjafar www.heilsuradgjof.is Sölvi Fannar Viðarsson Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar. Hann hefur starfað við einkaþjálfun og heilsuráðgjöf um árabil. Psoriasis er langvinnur húð- sjúkdómur. Ekki er vitað ná- kvæmlega hvað veldur hon- um en talið er að hann erfist og sýkingar í hálsi geta kom- ið honum af stað. Psoriasis er langvinnur húð- sjúkdómur og hefur engin var- anleg lækning fundist enn. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að útbrot myndast á húð sem geta brotist fram aftur og aftur en mjög mismunandi er hversu oft fólk fær útbrotin og hversu mikið. Til eru fimm tegundir af Psoriasis. Algengasta tegundin felur í sér útbrot sem eru rauð- ar skellur, örlítið upphleyptar og oft þaktar hvítu hreystri. Al- gengastar eru þær á olnbogum og hnjám þar sem álag á húð er mest. 10 til 30 prósent þeirra sem eru með Psoriasis fá einnig Psoriasis liðagigt sem veldur sárskauka og stífleika í liðum og liðamótum. Sjúkdómurinn leggst oft and- lega þungt á sjúklinga Psoriasis getur komið fram hvar sem er á húðinni og sumir fá psorias í hársvörð og neglur. Sjúkdómurinn smitast ekki, en talið er að hann erfist þó ekki sé vitað nákvæmlega hvað veld- ur. Vísindamenn eru þó flestir sammála um að ónæmiskerfið sé ræst fyrir mistök sem veldur því að húðfrumur fjölga sér of hratt og þroskast óeðlilega. Ein tegund af psoriasis brýst fram við sýkingar í hálsi. Í þess- um tilvikum er mikilvægt að meðhöndla undirliggjandi sýk- ingu í hálsinum með sýklalyfj- um. Stundum getur reynst nauð- synlegt að gefa sjúklingum með aðrar tegundir að psoriasis sýklalyf ef þeim versnar við sýkingar af völdum hálsbólgu- baktería. Slíkar sýkingar geta valdið vægum einkennum frá hálsinum. Sýkingar geta kallað fram psoriasis útbrot, sérstaklega hálsbólga. Andlegt álag getur einnig valdið því að útbrotin brjótast fram, auk þess sem áfengi hefur slæm áhrif á sjúk- dóminn. Rannsóknir á áhrifum fæðu á psoriasis eru enn á frumstigi, en hafa þó bent til þess að neysla á fiski og lýsi hafi já- kvæð áhrif. Miklar framfarir hafa verið í meðhöndlun á Psoriasis á und- anförnum árum. Útbrot geta brotist fram eftir að meðferð er hætt, mörg dæmi eru þó um sjúklinga sem hafa fengið bata í marga mánuði eða ár eftir vel heppnaða meðferð. Gagnlegar upplýsingar er að finna á www.psoriasis.is. Húðsjúkdómurinn Psoriasis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.