Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 12
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri brosir væntan-lega breitt þessa dagana. Borgarfulltrúar í höfuðborg-inni keppast nú við að kynna til sögunnar hugmyndir og tillögur í ætt við þær sem má sjá í fimm ára gamalli heimildar- mynd hans „Reykjavík í öðru ljósi“, þar sem hann útfærði á sjónrænan hátt ýmsar hugmyndir um framtíðarskipulag á höf- uðborgarsvæðinu, þar á meðal byggð á eyjunum úti fyrir strönd borgarinnar, byggingar í Hljómskálagarðinum og umfram allt flugvöll á Lönguskerjum sem myndi opna fyrir byggð í Vatns- mýrinni. Og borgarbúar brosa örugglega langflestir með Hrafni. Eftir að hafa þurft að búa við kliðinn af ófrumlegri og staglgjarnri umræðu stóru fylkinganna í borginni í alltof langan tíma berast nú nýir og frísklegri tónar úr Ráðhúsinu. Auðvitað hafa kosningarnar, sem eru framundan næsta vor, sitt að segja í þessum efnum en ekki er óvarlegt að ætla að þessi skyndilegi hugmyndakippur um skipulag Reykjavíkur sé líka ákveðið viðbragð kjörinna fulltrúa í borgarstjórn við samtíma sínum. Það er mikill og vaxandi áhugi meðal borgarbúa um hvernig Reykjavík á að þróast. Hingað til hefur stefnan verið að byggja út á við, það er að segja að þenja sífellt út flatarmál borgarinn- ar og fjarlægjast þar með upprunalega miðju hennar. Sú stefna virðist vera að breytast. Hvort tveggja tillögur sjálfstæðismanna um byggð á land- fyllingum og eyjunum úti fyrir ströndinni og frumkvæði R-list- ans í þá veru að losa um byggingaland í Vatnsmýrinni eru merki um stefnubreytingu í þá veru að nú eigi að byggja borgina upp innan frá. Þetta er mikið fagnaðarefni. Hugmyndir um flutning Reykjavíkurflugvallar eru enn á al- gjöru frumstigi en samkvæmt fyrstu fréttum virðast þær loks vera komnar upp úr hjólförum flokkspólitíkurinnar. Þó fyrr hefði verið. Staðsetning Reykjavíkurflugvallar er alltof mikið alvörumál til að vera reiptog milli sjálfstæðismanna í ríkis- stjórninni og R-listafólks í borginni. Ekki skiptir minna máli að þeir sem hafa mestan hag af því að flugvöllurinn sé innan borg- armarkanna, FL Group og dótturfélagið hafa lýst yfir að á þeim bæ verði skoðað með opnum hug að færa völlinn. Full ástæða er til að hrósa Degi B. Eggertssyni, formanni skipulagsráðs Reykjavíkur, fyrir að koma málinu á þennan rek- spöl á síðustu metrum R-listans í borgarstjórn. Ef kapallinn geng- ur upp og flugvöllurinn fer út á Löngusker á endanum er það ólíkt huggulegri arfleið í skipulagi borgarinnar en hin nýja Hring- braut, þetta sjö akreina ferlíki sem hlykkjast um Vatnsmýrina. F-listinn í borgarstjórn hefur haft það á sinni stefnuskrá frá því fyr- ir síðustu borgarstjórnarkosning- ar að efla almenningssamgöngur í borginni með því að fella niður strætófargjöld barna, unglinga, aldraðra og öryrkja. F-listinn hefur ítrekað lagt til að gert verði verulegt átak í al- menningssamgöngum með því að börn, unglingar að 18 ára aldri, aldraðir og öryrkjar fengju frítt í strætó í hálft ár. Ef það leiddi til þess að fólk notaði strætó í meira mæli, sem yrði örugglega raunin, ætti að fella fargjöldin niður til frambúðar. Það drægi úr einka- bílanotkun og mengun af þeirra völdum og kostnaði vegna við- halds gatna í borginni. Einnig myndi það fækka slys- um verulega. Áætlaður heildarkostnaður vegna tillögunnar var einungis um 110 milljónir vegna niðurfell- ingar fargjaldanna í 6 mánuði auk einhvers fjármagns í áróðursher- ferð fyrir aukinni notkun almenn- ingsvagna. Kostnaði vegna þess- ara fargjaldalækkana væri mætt með auknu framlagi sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu til fyrirtækisins. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á því hversu lítið það hefði kostað sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu að fella niður far- gjöld þessara hópa tímabundið og gera þar með stórátak til að bæta úr því neyðarástandi sem ein- kennir samgöngumál borgarinnar núna. Til samanburðar má nefna að þetta er lægri upphæð en sá kostnaður sem hlýst af slysum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar vegna þess að dregist hefur úr hömlu að koma þar fyrir löngu tímabærum mislægum gatnamótum. Borgarstjórn samþykkti sl. haust að vísa tillögu F-listans til borgarráðs og síðan var samþykkt í borgarráði að vísa tillögunni áfram til umsagnar stjórnar Strætó bs. Málið var svæft í kerf- inu og enn sjást engin merki þess að R-listinn geri ráð fyrir sér- stöku átaki til að efla almennings- samgöngur. Strætisvagnarnir eru hins veg- ar komnir með nýja áætlun, sem er afar umdeild, enda virðist ým- islegt í henni hafa verið vanhugs- að, eins og það að láta vagna hætta að aka á öðru en stofnbraut- um eftir kl. 23 á kvöldin, sem þýddi að vaktavinnufólk komst ekki heim til sín eftir vinnu. Einnig hafa komið fram fjölmarg- ar ábendingar frá öldruðum um galla kerfisins. Sem betur fer virðist ætlunin að ráða bót á því og sníða ýmsa fleiri vankanta af kerfinu. Mikilvægast er þó að almenn- ingssamgöngur séu aðgengilegar öllum. Þess vegna verður leiða- kerfi að vera mjög skýrt og þannig er það ekki í dag. Erlendis merkja menn stofnbrautir með ákveðnum lit, t.d. rauðum, gulum eða bláum, og fólk á þá auðveld- ara með að ferðast um net stræt- isvagnakerfisins. Einnig þarf fólk að vita hvar það er statt hverju sinni. Fjöldi ferðamanna eykst ár frá ári og það er afar mikilvægt að þeir geti líka áttað sig vel á leiðakerfinu. Til þess að svo megi verða þarf að stokka það upp og gera það miklu aðgengilegra. F- listinn í borgarstjórn hefur m.a. bent á slíkar hugmyndir um ein- faldari uppsetningu leiðakerfis. Almenningssamgöngur þurfa umfram allt að vera ódýrar og að- gengilegar til þess að þær geti verið raunhæfur kostur fyrir borgarbúa. Þess vegna studdi F- listinn í borgarstjórn ekki tillögu Sjálfstæðisflokks um að skera niður framlög til almenningssam- gangna um 100 milljónir króna. Slík skerðing væri síst til þess fallin að stuðla að betri nýtingu al- menningssamgangna í borginni. Fjárfestum frekar í færri slysum og betra mannlífi í borginni. 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ JÓN KALDAL Tillögur um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar eru alltof mikilvægar til að vera pólitískt reiptog. Nú kætist Krummi FRÁ DEGI TIL DAGS Ekki er óvarlegt a› ætla a› flessi skyndilegi hugmyndakippur um skipulag Reykjavíkur sé ákve›i› vi›brag› kjörinna fulltrúa í borgarstjórn vi› samtíma sínum. UMRÆÐAN STRÆTÓ MARGRÉT K. SVERRISDÓTTIR VARABORGAR- FULLTRÚI F-LISTANS Frítt í strætó me› F-listanum Lögregluríki? Huginn Freyr Þorsteinsson dregur upp heldur nöturlega mynd af viðbrögðum ríkisstjórna á Vesturlöndum við hryðju- verkaógninni í grein á vefritinu Múrnum í gær. „Óhætt er að segja að vestrænar rík- isstjórnir hafi undir kjörorðunum „stríð gegn hryðjuverkum“ eflt yfirvald ríkisvalds- ins yfir þegnum sínum“, skrifar hann. „Lögregluríkið er niðurstaða þeirra stjórn- málamanna sem hrifnastir eru af ofbeldi og niðurlægingu fólks í öðrum menning- arheimum. Sömu stjórnmálamenn og boða sprengjuárásir sem frels- un þegna í Írak, herja á helstu réttindi Vestur- landa- búa sem einstaklinga. Og fjölmiðlar kyrja með – draga upp skakka og óraunverulega mynd af ógnum hryðjuverka. Sú mynd hjálpar síðan öllum pótintátunum að ala á óttan- um og fullvissa fjöldann um að þeir séu ómissandi til að taka á málum af hörku“. Mistök lögreglu Huginn Freyr talar um „löggjöf sem snýst um að koma útlendingum úr landi, rýmka heimildir lögreglu til aðgerða, hlera síma, vakta netsíður og tölvupóst“ og segir: „Þessi aukna áhersla á úrræði valds- manna til að losa okkur við hryðjuverka- menn hefur yfirleitt skilað sér í allt öðru en að verja almenning. Æ fleiri fréttir ber- ast af mistökum lögreglunnar þegar meintir hryðjuverkamenn eru undir eftir- liti. Í Bandaríkjunum hefur blásaklaust fólk orðið fyrir alls kyns ónæði eftir að lög- regla þar í landi er farin að nýta sér rýmkaðar heimildir til eftirlits“. Saklausir líða „En hvergi berast eins ógnvænlegar fréttir af starfsaðferðum lögreglunnar og frá Bretlandseyjum,“ segir Huginn Freyr. „Lög- reglan þar í í landi, sem til þessa hefur þótt til fyrirmyndar, er í miklum vanda eft- ir að breskir fjölmiðlar ljóstruðu upp um það að ungur Brasílíumaður sem skotinn var af lögreglumönnum í neðanjarðarlest nýverið, hefði ekki aðhafst neitt grunsam- legt. Brasilíumaðurinn sé því miður líklega ekki síðasta fórnarlambið í yfirstandandi „stríði gegn hryðjuverkum“. Saklaust fólk muni þurfa líða fyrir ofstækisfulla hug- myndafræði þeirra er sjái ofbeldi sem lausn á öllu böli heimsins“. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprent- smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 ALMENNINGSSAMGÖNGUR Frjálslyndir í borgarstjórn vilja ókeypis í strætó fyrir börn og unglinga, aldraða og öryrkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.