Fréttablaðið - 08.10.2005, Síða 52

Fréttablaðið - 08.10.2005, Síða 52
> Við hrósum ... ... framherjanum Hannesi Þorsteini Sigurðssyni sem átti stórleik gegn Pólverjum í gær og sýndi að hann hefði fyrir löngu átt að hafa fengið almennilegt tækifæri með íslenska A- landsliðinu. Heyrst hefur ... ... að Valsmenn ætli sér að fylla skarð Baldurs Aðalsteinssonar hið fyrsta og hafa Hlíðarendamenn víst sett skotmarkið á Viktor Bjarka Arnarsson sem fór á kostum með Fylki í sumar og yrði góður valkostur á vænginn í stað Baldurs. Nú er bara spurning hvort Víkingur vill selja? sport@frettabladid.is 36 > Við furðum okkur á því ... .... að hinn rússneski dómari leiks Póllands og Íslands hafi verið að taka myndir af leik- mönnum Póllands rétt fyrir leik. Það er skítalykt af málinu eins og einhver myndi segja. Varnarleikur íslenska fótboltalandsli›sins var› flví enn einu sinni a› falli gegn Pólverjum í Varsjá í gær. Pólland vann, 3-2, í ágætum leik flar sem margir n‡ir leikmenn fengu tækifæri. Værukærir varnarmenn í Varsjá FÓTBOLTI Það vantaði fjölmarga lykilmenn í íslenska landsliðið í gær og því kjörið tækifæri fyrir aðra til að sanna sig. Sumir nýttu það tækifæri ágætlega en aðrir miður vel. Pólska liðið er að gera frábæra hluti í undankeppni HM og það er enginn skömm að því að tapa naumlega fyrir þessu liði. Leikur íslenska liðsins gekk upp að mörgu leyti en eins og venju- lega varð ömurlegur varnarleikur liðinu að falli. Leikurinn byrjaði vel fyrir ís- lenska liðið og það nýtti sér vel hversu kærulausir varnarmenn Póllands voru í upphafi leiksins. Kristján Örn Sigurðsson kom Ís- landi yfir á 15. mínútu eftir að vinstri bakvörður pólska liðsins hafði nánast lagt sig. Tíu mínútum síðar var komið að íslensku vörn- inni að leggja sig og Krzynowek var ekki í vandræðum með að leggja boltann í netið. Íslenska liðið neitaði að gefast upp og Hannes Sigurðsson skor- aði sitt fyrsta landsliðsmark á 38. mínútu með glæsilegu skoti utan teigs. Ísland leiddi í leikhléi en Pólverjar jöfnuðu leikinn með ódýru marki á 57. mínútu. Þá var brotið á Indriða Sigurðssyni í teignum og fyrir vikið fékk Basczynski nægan tíma til að leggja boltann fyrir sig í teignum og skora. 25 mínútum fyrir leiks- lok kom síðan náðarhöggið. Þá ætlaði Indriði að spila Smolarek rangstæðan en Auðun Helgason spilaði hann réttstæðan og eftir- leikurinn var auðveldur. Ákaflega klaufalegt og enn eina ferðina hafði íslenska landsliðið fengið á sig þrjú mörk. Það jákvæðasta við leik ís- lenska liðsins var frammistaða Hannesar Sigurðssonar sem skor- aði gott mark, hélt boltanum vel og skilaði honum einnig vel frá sér. Hann sýndi og sannaði í leikn- um að hann á skilið fleiri tækifæri með A-liðinu en frammistaða Heiðars Helgusonar í síðustu leikjum hefur ekki verðskuldað sæti í byrjunarliðinu. Lélegur dómari „Ég var ekki sáttur við dóm- gæsluna. Eftir að við komumst yfir eitt núll jöfnuðu þeir með ólöglegu marki þegar Indriða var haldið. Dómararnir sáu þetta og ég skil ekki af hverju ekki var dæmt,“ sagði Ásgeir sem hefur ekki góða reynslu af russneskum dómurum. „Við vitum að við vorum að spila við mjög sterkt pólskt lið og auðvitað var svekkjandi að tapa leiknum. Hins vegar tel ég að strákarnir eigi hrós skilið. Tek dæmi menn eins og Sölva Geir Ottesen sem var að leika sinn fyrsta leik ég var mjög ánægður með hann. Einnig var ég ánægður með Hannes (Sigurðsson) sem var að leika sinn fyrsta heila leik í langan tíma. Nú er það leikurinn gegn Svíum. Fyrir þann leik fáum við Heiðar Helguson en hins vegar er alveg óvíst með Gunnar Heiðar og Auðun en hann fékk slæmt högg á hnéið.“ - hbg, - hjö Baldur Ingimar Aðalsteinsson, sem leik- ið hefur með Val undanfarin tvö ár, sagði í gær upp samningi sínum Val en í honum var uppsagnarákvæði sem Baldur ákvað að nýta sér. Eftir góða frammistöðu með Val á hægri vængn- um í sumar er líklegt að erlend lið falist eftir kröftum Baldurs. „Ég var alltaf ákveðinn í því að nýta mér þetta ákvæði þar sem það eykur möguleik- ann á því að ég fái tækifæri til þess að reyna mig erlendis. Ég hef metnað til þess að ná enn lengra í fótboltanum og mér finnst þetta vera ágætis tímapunkt- ur til þess að skoða þá möguleika sem í boði eru. En ef ég kemst ekki að er- lendis þá er Valur auðvitað fyrsti kostur hjá mér.“ Eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni stóðu Valsmenn sig framar vonum og voru í öðru sæti í Landsbanka- deildinni og urðu síðan bikar- meistarar með því að vinna Fram 1-0 á Laugardals- velli, með marki frá Baldri Ingimari. Unnar Steinn Bjarndal, framkvæmdastjóri Vals, segir vera einlægan vilja stjórnarinnar til þess að halda Baldri Ingimari hjá félginu, ásamt öllum öðrum leik- mönnum sem voru lykilmenn liðsins í sumar. „Vonandi verður Baldur áfram liðsmaður Vals. Hann hefur staðið sig virkilega vel síðan hann kom til félagsins og var einn af okkar bestu leikmönnum í sumar. Það er mik- ill hugur í okkur Valsmönnum og von- andi tekst okkur að halda bestu leik- mönnum okkar áfram.“ Stjórn Vals vinnur nú að því að ganga frá leik- mannamálum hjá félag- inu en það er mikill hugur í stjórnar- mönnum Vals sem vilja halda Hlíðar- endafélaginu í fremstu röð. BALDUR INGIMAR AÐALSTEINSSON: HEFUR HUG Á ÞVÍ AÐ REYNA SIG ERLENDIS Búinn a› segja upp samningi vi› Val 8. október 2005 LAUGARDAGUR ALLTAF FYRIR NEÐAN Þessi mynd er táknræn fyrir leikinn í gær enda lúta hér þrír varnarmenn íslenska liðsins - Indriði Sigurðsson, Auðun Helgason og Sölvi Geir Ottesen – í lægra haldi fyrir tveim Pólverjum. ■ ■ LEIKIR  14.00 ÍBV og Víkingur mætast í DHL-deild kvenna í handbolta.  14.15 FH og Valur mætast í Kaplakrika í Hafnarfirði í DHL-deild kvenna.  16.15 Grótta og KA/Þórmætast í DHL-deild kvenna í handbolta.  16.15 ÍBV og FH mætast í DHL- deild karla í handbolta.  16.15 Stjarnan og Víkingur/Fjölnir mætast í DHL-deild karla.  16.15 Valur tekur á móti Sjundea IF í Evrópukeppninni í handbolta. ■ ■ LEIKIR  11.00 A1 heimsbikarinn í kappakstri á Sýn.  11.40 Formúla 1 á RÚV.  11.55 A1 heimsbikarinn í kappakstri á Sýn.  14.40 HM í knattspyrnu á Sýn. Leikur Englands og Austurríkis sýndur beint.  16.05 EM í handbolta á RÚV.  17.00 HM í knattspyrnu á Sýn. Leikur Dana og Grikkja sýndur beint.  20.00 HM í knattspyrnu á Sýn. Leikur Svisslendinga og Frakka sýndur beint. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 5 6 7 8 9 10 11 Laugardagur OKTÓBER Sven-Göran Eriksson fyrir leik Englands í dag: Tími hefnda kominn FÓTBOLTI Enska landsliðið í knatt- spyrnu tekur í dag á móti því aust- urríska í undankeppni HM 2006. Leikurinn er sá fyrsti hjá landsliði Englands síðan það tapaði heldur óvænt fyrir Norður-Írum í Belfast í síðasta mánuði. Leikurinn skipt- ir miklu máli fyrir Englendinga, sem heyja harða baráttu við Pól- verja um toppsæti riðilsins, en þessi lið mætast í næstu viku í lokaumferð riðilsins. Sven-Göran Eriksson, lands- liðsþjálfari Englands, segir að sínir menn hafi ekki efni á öðru eins klúðri og gegn Norður-Írum. „Ég hef talað mikið við leikmenn- ina í vikunni og tel ég það hafa verið nauðsynlegt. Ég býst við miklu af þeim og ég er viss um að þeir standi fyrir sínu,“ sagði Eriksson, sem sagði tíma hefnda kominn. Wayne Rooney er í leikbanni og búist er við að Peter Crouch, leikmaður Liverpool, taki stöðu hans við hlið Michael Owen í framlínunni. Þá hefur mikið verið rætt um endurkomu Sol Campbell í enska landsliðið og er talið lík- legast að Rio Ferdinand þurfi að bíta í það súra epli að sitja á bekknum í þetta skiptið. Yrði það í fyrsta skipti í fjögur ár sem það yrði tilfellið en Eriksson hefur haldið mikilli tryggð við Ferdin- and, þrátt fyrir átta mánaða langt bann hans um árið. En landsliðs- þjálfari var þögull sem gröfin um liðsuppstillinguna og kemur það ekki í ljós fyrr en rétt fyrir leik hvað verður. - esá HVER BYRJAR INNI Á? Rio Ferdinand og Sol Campbell taka á því með David Beckham á æfingu enska landsliðsins í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.