Fréttablaðið - 17.10.2005, Side 31

Fréttablaðið - 17.10.2005, Side 31
13MÁNUDAGUR 17. október 2005 201 Kóp.: 3ja herbergja íbúð í Lindahverfinu Fífulind 9 í Kópavogi Lýsing: Íbúðin er á neðstu hæð en engir stig- ar eru úr sameign inn í íbúðina. Forstofa og gangur eru flísalögð og þar er rúmgóður fata- skápur. Hjónaherbergið er með stórum skáp og í barna- og hjónaherbergi er plastparkett. Baðherbergið er með baðkari og stórum skáp frá gólfi og upp. Vaskurinn er innfelldur í innréttingu og skápur fyrir ofan vaskborð. Gólf og blautrými eru flísalögð. Þvottahúsið er með glugga inni af baðherbergi. Eldhús er með plastparketti á gólfum og innrétting er einnig úr kirsuberjaviði. Í eldhúsinu er ljósgrá borðplata. Enn fremur er bjartur og rúmgóð- ur borðkrókur og útgengt er út á suðurver- önd. Stofa og borðkrókur eru með plastparketti á gólfi. Annað: Húsið er nýuppgert og málað að utan. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, sundlaug og heilsu- gæslu 210 Garðabær: Falleg lóð og mósaík veggur Tunguás 6: Fallegt einbýlishús með bílskúr. Lýsing: Einbýlihús á einni hæð. Eignin skiptist í rúmgóða for- stofu með fataskáp. Úr forstofunni er gengið inn í hol og þaðan er gengið inn í öll rými eignarinnar. Björt stofa með arni og hátt til lofts. Eldhús með eikarinnréttingu, mósaíkflísar á milli innréttinga og mósaíkveggur sem skilur að eldhús og borð- stofu. Björt borðstofa og þaðan er utangengt út í garð. Barna- herbergi með fataskáp. Flísalagt gestasalerni. Rúmgott svefn- herbergi með fataskápum. Flísalagt baðherbergi með sturtu og baðkari við hlið hjónarherbergis. Vegghengt salerni og góð bað- innrétting. Rúmgott þvottahús með útgangi. Gott aðgengi frá þvottahúsi upp á risloft sem er yfir hluta af húsinu og nýtist sem geymsluloft. Úti: 48,7 fermetra bílskúr. Innangengt er í bílskúrinn sem er með tveimur bílskúrshurðum og raf- magnsopnara. Næturlýsing. Innbyggt útvarpskerfi á nokkrum stöðum í húsinu. Fullgert bílaplan með hita. Hiti einnig við aðalinngang. Annað: Vönduð gólfefni á allri eigninni. Halógenlýsing í öllu húsinu utan bílskúrs. Fermetrar: 208,5 Verð: 59,8 milljónir Fasteignasala: HraunhamarFermetrar: 85,5 fm og geymslan er 5,5 fm. Verð: 20,9 milljónir Fasteignasla: Nethús, www.nethus.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.