Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 61
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2005
FRAMLEIÐENDUR AMERICAN IDOL KYNNA NÝJAN ÞÁTT ÞAR
SEM LEITAÐ ER AÐ BESTA DANSARA BANDARÍKJANNA.
FYLGSTU MEÐ!
SO YOU THINK YOU CAN DANCE
MIÐVIKUDAGA KL. 21.00
☎ 552 3000
Föstudag 28/10 UPPSELT
Föstudag 11/11 LAUS SÆTI
Laugardag 12/11 LAUS SÆTI
VS Fréttablaðið
“Frábær skemmtun!”
Á Háskólatónleikum í Norræna
húsinu í hádeginu í dag stígur á
svið djasskvartettinn Patagonia
Jazz Quartet, sem var stofnaður
á Seltjarnarnesi árið 2004. Kvart-
ettinn flytur frumsamda tónlist og
þekkt djasslög í suður-amerískum
stíl.
Hljómsveitin hefur tekið þátt í
Menningarnótt Reykjavíkurborg-
ar og Ljósanótt í Reykjanesbæ en
jafnframt verið virkur þátttak-
andi í djasslífi höfuðborgarinnar
með því að spila á helstu veitinga-
húsum miðbæjarins.
Allir félagar hljómsveitarinnar
starfa við tónlistarkennslu en líka
við hljóðfæraleik. Þeir eru Jakob
Hagedorn-Olsen gítarleikari,
Guðjón S. Þorláksson bassaleikari
og George L. Claessen trommu-
leikari og slagverksmaður ásamt
Ludvig Kára Forberg víbrafón-
leikara.
Patagonia í
hádeginu
PATAGONIA JAZZ QUARTET Ludvig Kári
Forberg og félagar.
Hljómsveitin Brynhildur &
BBØ‘s halda útgáfutónleika á
Hótel Borg í kvöld vegna plöt-
unnar grrr... sem er nýkomin út á
vegum 12 Tóna.
Platan inniheldur fjórtán
gleði- og sorgarlög sem fjalla
öll á einn eða annan hátt um ást-
ina. Sérlegir gestir á henni eru
Krummi og Gísli Galdur Þor-
geirsson.
„Þetta verður mikið stuð
og mikið leikhús,“ segir Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, sem sló í
gegn í leikritinu Edith Piaf, um
tónleikana. „Við munum skapa
skemmtilegan hljóðheim og vilj-
um bjóða öllum að gleðjast með
okkur.“
Brynhildur & BBØ‘s spila
þekkt lög eftir aðra listamenn,
þar á meðal Patsy Klein, Eartha
Kitt og Pointer Sisters. „Við erum
rykugt sígaunaband og tökum
gamlar sálir og glæðum þær
nýju lífi. Við káfum á þessu öllu
saman þannig að þetta verði eins
og fallega kámugt glas á rykug-
um bar,“ segir hún. Tónleikarnir í
kvöld hefjast klukkan 21.00.
Mikið stuð og mikið leikhús
BRYNHILDUR & BBØ‘S
Brynhildur Guðjónsdóttir
heldur útgáfutónleika
í kvöld ásamt hljómsveitinni BBØ‘s.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4