Fréttablaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 46
Fullar verslanir af fallegum fatnaði Fyrstu jólasendingarnar komnar Exit Kr ing lunni • Smára l ind 6 ■■■■ { barnablaðið }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Örvar heilastarfsemi ungra barna Krisztina G. Agueda kemur frá Ungverjalandi þar sem hún menntaði sig til nokkra ára, og sérhæfði sig í íþróttakennslu fyr- ir börn. Hún er þekkt í sínu heimalandi sem frumkvöðull í líkamsrækt en hún rak þar lík- amsræktarstöð og keppti nokkrum sinnum í fitness. Á Ís- landi rekur hún Hreyfiland þar sem hún er með skemmtileg námskeið fyrir börn og foreldra. „Það er mér afar mikilvægt að byggja á þekkingu og er ég sí- fellt að viða að mér efni, upp- fræðast og læra nýja hluti varð- andi börn, líkama þeirra og þroska. Börn eru í svo mikilli mótun og það er mjög mikilvægt að fara rétt að hlutunum,“ segir Krisztina. Námskeiðin sem hún kennir í Hreyfilandi hefur hún sett saman sjálf og segir hún þau öll byggja á fræðum um börn og heilsu þeirra. „Fyrst og fremst snýst þetta um samverustund foreldra og barna og ég kenni foreldrum að örva heilastarfsemi barna sinna á ein- faldan og lifandi máta. Við höf- um gaman í tímunum og allir eru með, bæði foreldrar og börn,“ segir Krisztina. Hún telur það skipta afar miklu máli að foreldrar eigi samverustundir með börnunum sínum og örvi þau og segir Krisztina að það skili sér þegar fram í sækir. „Allar æfingarnar sem ég nota í tímum, hef ég notað fyrir mín eigin börn og ég veit að þær virka,“ segir Krisztina. Hún segist elska að vinna með börnum og telur hún sig hafa gott lag á þeim. „Enda á ég þrjú börn sjálf,“ segir hún og hlær. Hún vill þeim allt það besta og vill leggja sig alla fram í kennsl- unni. „Foreldrar eiga að vera vakandi fyrir því að kennarar á námskeiðum séu með góða þjálf- un og séu menntaðir,“ segir Krisztina. Hún er ekki einungis með nám- skeið fyrir börnin, heldur líka barnshafandi mæður og hefur búið til myndband með með- gönguleikfimi. „Leikfimi á með- göngu hefur marga kosti í för með sér, og er konum óhætt að stunda líkamsrækt. Hins vegar skiptir máli að fara rétt að hlut- unum,“ segir Krisztina. Mynd- bandið er tekið upp víðsvegar um landið þar sem æfingarnar eru gerðar í íslenskri náttúru. Til stendur að myndbandið komi út á dvd fyrir jólin. Börnin eru örvuð í fallegu og lifandi um- hverfi í Hreyfilandi. Krisztina G. Agueda stofnaði Hreyfiland árið 2003 þar sem hún býður upp á lifandi og skemmtileg námskeið fyrir börn og foreldra þeirra, mömmutíma fyrir barns- hafandi mæður, leikfimi fyrir nýbakaðar mæður ásamt nýfæddu börnunum og mæður með börn á brjósti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.