Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.09.1975, Blaðsíða 6
6 tímínn Sunnudagur 21. september 1975. -----;-------------- Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga 90 „Laufás minn er listabær, lukkumaður sá honum nær manni allt á móti hlær, mest á vorin þegar grær”. Svo kvað séra Björn Halldórsson i Laufási, faðir Þórhalls bisk- ups. Það er fagurt og búsæld- arlegt i Laufási. Hef- ur þar löngum verið stórbýli og staðurinn sögufrægur frá fornu fari, sbr. Sturlungu. Þjóð- kunnir prestar hafa setið i' Lauf- ási — og var það ekki ung prestsdóttir þaðan sem yljaði Jónasi Hallgrimssyni mest allra kvenna? Hinn stóri, myndarlegi Laufásbær snýr burstum fram að Eyjafirði, og kirkjunni skýla meira en aldar- gömul reynitré. Munu þeir, hinn kunni athafnamaður Tryggvi Gunnarsson og séra Gunnar faðir hans hafa gróðursett þar. A horni Laufásvegar og Bragagötu i Reykjavik gefur að lita fyrirmannlegt hús inni i gróskumiklum garði. Yfir dyr- um er letrað ,,Laufás 1896”. Húsið er ljósgrátt með grænum gluggakörmum og dyraumgerð — undir grænu þaki. 1 „Þáttum úr sögu Reykjavikur” 1936, bls. 160-161 ritar Vigfús Guðmunds- son á þessa leið: '„Laufás, Þór- hallur Bjarnarson, siðar biskup keypti Móakot 1896, byggði þar timburhús, fjós o.s.frv., ræktaði mikið tún niður að tjörn og mýri og hafði stórt kúabú með stakri umhirðu. Nú er það bú horfið og túnið útbyggt að miklu leyti”, Já, það var vitt til veggja þarna i þá daga. Björn Guðbrandsson læknir hefur léð mér i þáttinn bréf- spjald gamalt af þessum slóð- um, ásamt skýringum. „Bréf- spjaldið, sem fannst af tilviljun, er skrifað til séra Guðbrands Björnssonar i Viðvik i Skaga- firði 26. janúar 1909 og er embættisbréf. Myndin á þvi er af Laufási og Austurbænum i Reykjavik. Laufás sést yzt til vinstri og fjósið skáhallt fram- undan, en Kennaraskólinn lengst til hægri. Hver þekkir hin húsjn? A bréfspjaldinu er og tvi- kóngafrimerki. Sendandi var Þórhallur Bjarnarson biskup, f. 2/12 1855, látinn 15/12. 1916, biskup frá 19. sept. 1908. Guðbrandur Björnsson, f. 15. júli 1884 vigðist til Viðvikur- prestakalls 8. nóv. 1908. Þann dag vigðust tvö prestsefni, hann ogHaraldur Nielsson, sem vigð- istprestur að Laugarnesspitala. Þetta mun hafa verið fyrsta biskupsverk Þórhalls Bjarnar- sonar, en hann mun hafa verið vfgður af fyrirrennara sinum i október 1908. Séra Tryggvi Þórhallsson, siðar ráðherra, fæddist i Lauf- ási við Reykjavik, eins og þá var kallað, og bjó þar, og nú býr sonur hans Klemenz hagstofu- stjóri i húsinu. A korti „Litbrár” sem hér er birt, sést gamli bærinn og kirkj- an i Laufási. Umgerðin er klömbruveggur, en þeir geta verið listaverk. Nýju myndirnar af Laufási við Laufásveg og Kennaraskólanum gamla eru teknar i ágúst sl. Kennaraskóli Islands tók til starfa i nýju húsi á horni Laufásvegar og Baróns- stigs haustið 1908. Fyrsti skóla- stjóri var séra Magnús Helga- son, en siðan lengi Freysteinn Gunnarsson. Þeir riktu i gamla skólahúsinu. Arið 1962 var tekið i notkun mikið kennaraskólahús við Stakkahlið, en nokkur kennsla hefur þó haldið áfram i gamla skólahúsinu. LAUFÁS Laufás Laufás og grennd við Laufásveg um aldamót. Laufás við I.aufásveg (1975) Kennaraskólinn (gamli) (1975)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.