Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 29
10. desember 2005 LAUGARDAGUR28
Í janúar kusu Írakar stjórnlaga-þing sem síðan skipaði ríkis-stjórn, í október greiddu þeir
atkvæði um drög að nýrri stjórn-
arskrá landsins og næstkomandi
fimmtudag ganga þeir í þriðja
sinn að kjörborðinu á tæpu ári
þegar þeir kjósa nýja menn á þing
samkvæmt ákvæðum nýju stjórn-
arskrárinnar.
Philip S. Kosnett, staðgeng-
ill sendiherra Bandaríkjanna á
Íslandi, er einn þeirra sem fylgj-
ast óvenju grannt með framvindu
mála í Írak. Áhuginn er skiljan-
legur því áður en hann kom hing-
að til lands var hann héraðsstjóri í
Najaf-héraði. Þar hafði hann yfir-
umsjón með stjórnmála- og efna-
hagsuppbyggingu svæðisins auk
þess að vinna með hermönnum
innrásarliðsins að uppbyggingu
íraskra öryggissveita áður en
Írakar fengu fullveldi sitt á nýjan
leik í maílok 2004.
Í hringiðu uppreisnar
Kosnett hafði ekki verið lengi í
Najaf þegar uppreisn eldklerksins
Muqtada al-Sadr hófst í borginni
og eins og búast má við gerbreytti
hún verkefnum héraðsstjórans
þann rúma mánuð sem hún stóð
yfir. „Sadr vonaðist til að úr yrði
allsherjarbylting milljóna sjía
sem myndu hrekja heiðingjana á
brott úr landinu. Ekkert í líkingu
við það gerðist, aðeins nokkur
þúsund manns gengu til liðs við
hann. Hersveitir bandalagsþjóð-
anna lögðu til atlögu við þennan
her Sadr en jafnfram reyndum
við að sannfæra hann um að berj-
ast frekar fyrir sínum málum á
stjórnmálasviðinu en með ofbeldi.
Nokkrum mánuðum síðar bar
sú vinna árangur. Nú eru menn
handgengnir Sadr í framboði í
kosningunum í næstu viku og við
erum auðvitað mjög ánægð með
það.“
Kosnett segir að mikilvægan
lærdóm megi draga af atburðun-
um í Najaf og atburðarásin síðan
þá sýni að jákvæðar breytingar
hafi orðið í landinu. „Herflokkur
Sadr samanstóð að langstærst-
um hluta af ungum ómenntuðum
sjíum sem hafði verið innrætt
að írösk stjórnvöld og erlendir
bandamenn þeirra væru óvinirn-
ir og gegn þeim ætti að rísa til
að verja landið og trúna. Sú stað-
reynd að Sadr vinnur nú að sínum
málum á vettvangi stjórnmálanna
sýnir að framfarir hafi átt sér
stað. Þær eru ekki síst íröskum
stjórnmálamönnum að þakka sem
hafa sýnt ungum Írökum að það
er framtíð þrátt fyrir allt og fyrir
henni er til betri leið til að berj-
ast en ofbeldi. Ég held að á sama
hátt eigi að vera mögulegt að snúa
óánægðum súnníum, sem barist
hafa gegn hernámsliðinu og lög-
mætum íröskum yfirvöldum, til
jákvæðari verka.“
Vonast eftir góðri kjörsókn
Talsverð spenna ríkir fyrir kosn-
ingarnar á fimmtudaginn enda
eru yfir tvö hundruð stjórnmála-
flokkar og hreyfingar í framboði.
Í kosningunum í janúar vegnaði
hófsömum sjíum mjög vel og höfðu
þeir ásamt fulltrúum Kúrda mest
að segja um stjórnarskrárgerðina
og stjórn landsins.
Búist er við að valdahlutföllin
muni breytast nokkuð því súnní-
ar, sem sniðgengu kosningarnar
í janúar, er taldir ætla að flykkj-
ast nú á kjörstað til að tryggja
að þeir verði ekki aftur settir
til hliðar. Sjíar og Kúrdar munu
aftur á móti reyna að halda þeim
völdum sem þeir hafa í dag og því
spáir Kosnett að kjörsókn eigi
almennt eftir að verða góð, þrátt
fyrir hið ótrygga ástand sem ríkir
í landinu. „Mér finnst eiginlega
ótrúlegt að milljónir Íraka skuli
bókstaflega hætta lífi sínu við að
mæta á kjörstað. Ef ég byggist
við að verða fyrir eldflaugaárás
á leiðinni á minn kjörstað í Norð-
ur-Karólínu myndi ég sennilega
hugsa mig tvisvar um.“
Þegar greidd voru atkvæði
um stjórnarskrána í október fjöl-
menntu súnníar reyndar á kjör-
stað og telur Kosnett þá staðreynd
merki um að þjóðareining Íraka
sé mun meiri en oft sé látið í veðri
vaka. „Á sama tíma held ég að
leiðtogar sjía og Kúrda skilji allt-
af betur og betur að þeir verði að
tryggja að súnníarnir séu ekki
settir til hliðar og að eining lands-
ins sé forsenda þess að friður og
farsæld komist á.“
Réttkjörin ríkisstjórn aðalatriðið
Enda þótt Kosnett vilji engu spá
um úrslit kosninganna má gera
ráð fyrir að sameinuðu framboði
sjía muni vegna aftur vel. Stærst-
ur hluti írösku þjóðarinnar er
sjíamúslimar og andlegur leiðtogi
þessa hóps, Ali al-Sistani erki-
klerkur, hefur látið stuðning sinn
við framboðið í ljós.
Verði þetta lyktir kosningana
grunar marga að Íranar, sem
einnig eru upp til hópa sjíar, muni
reyna að seilast til frekari áhrifa
í landinu en af því kveðst Kosnett
hafa litlar áhyggjur. „Ég held að
enginn þurfi að undrast að Íranar
fylgist grannt með þróun mála í
Írak enda eiga þeir þar hagsmuna
að gæta. Við erum hins vegar
nokkuð bjartsýn á að Íranar beiti
sér frekar á uppbyggjandi hátt í
Írak. Ríkisstjórn Bandaríkjanna
hefur undirstrikað við reynum
ekki að hafa áhrif á þróun mála á
stjórnmálasviðinu í Írak, við vilj-
um fyrst og fremst að lögmæt og
réttkjörin ríkisstjórn komist til
valda, ekki stjórn sem þorri Íraka
telur að gæti hagsmuna einhverra
annarra en þeirra sjálfra.“
Réttað yfir Saddam
Á sama tíma og þjóðin býr sig
undir kosningarnar standa rétt-
arhöldin yfir Saddam Hussein
og samstarfsmönnum hans yfir.
Að vonum hafa málaferlin vakið
mikla athygli. Mannréttindasam-
tök víða um heim hafa borið brigð-
ur á lögmæti þeirra og ólgan sem
ríkir í Írak þessa dagana helgast
að talsverðu leyti af því róti sem
réttarhöldin vekja. „Réttarhöldin
eru fyrst og fremst mál Írakanna
sjálfra, dómarar, saksóknarar og
verjendur eru allir Írakar. Þeir
ákváðu hvenær réttarhöldin færu
fram og ég held að tímasetningin
orki ekki tvímælis í ljósi þess að
allur þorri Íraka vill sjá réttað
yfir Saddam vegna glæpa hans
í opnum og sanngjörnum rétt-
arhöldum, sem ég held að þau
sannarlega séu. Því held ég að
réttarhöldin muni hafa lítil áhrif
á kosningarnar.“
Uppreisnin er vandamál
Þótt réttarhöldin yfir Saddam hafi
ef til vill lítil áhrif á kosningarnar
er öruggt að vargöldin í landinu
setur strik í reikninginn. Daglega
berast nýjar fréttir af átökum og
árásum í Írak og Kosnett viður-
kennir að enn sé mikið verk óunn-
ið við að koma friði á. Hann bendir
hins vegar á að með markvissum
aðgerðum eigi að vera hægt að
draga mjög úr óánægjunni sem
er drifkrafturinn á bak við upp-
reisnina.
Almennt er litið svo á að skipta
megi uppreisnarhópum landsins í
þrennt. Í fyrsta lagi eru alþjóðlegir
hryðjuverkamenn sem sagðir eru
hafa tengsl við al-Kaída. „Þess-
ir menn sprengja upp moskur og
víla ekki fyrir sér að myrða sak-
lausa borgara í þeirri von að ótti
og ringulreið grípi um sig. Þeirra
markmið er að reyna að koma af
stað borgarastríði á milli sjía og
súnnía,“ segir Kosnett.
Í öðru lagi eru leifarnar af
Baath-flokknum og öryggissveit-
um Saddams sem eru óánægðar
með sinn hag. Kosnett segir þessi
öfl hafa farið huldu höfði undan-
farið og safnað kröftum en líkur
séu á að þau láti til skarar skríða í
kringum kosningarnar.
Í þriðja lagi eru svo ungir,
ómenntaðir og atvinnulausir
menn sem í vonleysi sínu finna
óánægju sinni farveg í andspyrnu
við stjórnvöld. „Ég held að allar
líkur séu á að með markvissum
aðgerðum lögreglu og pólitískum
þrýstingi íraskra stjórnmála-
manna muni draga mjög úr andófi
þessa hóps. Auðvitað vilja ungir
súnníar bara það sama og aðrir,
þeir vilja fyrst og fremst frið og
tækifæri til að fá að byggja upp
framtíð sína. Flestir Írakar eru að
verða langþreyttir á hryðjuverk-
um. Eftir því sem íraskar her-
sveitir styrkjast og herir banda-
lagsþjóðanna taka minni beinan
þátt í hernaðaraðgerðum veikist
enn frekar málflutningur þeirra
sem segja Írak vera hernumið.“
Takmarkið er svo auðvitað að
Írak geti staðið á eigin fótum, bæði
í stjórnmálalegu og efnahagslegu
tilliti. Þrýstingurinn vex stöðugt í
þeim ríkjum sem halda úti herliði
í Írak að kalla það sem fyrst heim.
„Forseti Bandaríkjanna hefur
stöðugt hamrað á því að við verð-
um í Írak svo lengi sem okkar er
þar þörf, en ekki degi lengur,“
segir Kosnett. Framkvæmd og
lyktir kosninganna á fimmtudag-
inn munu ráða miklu um hvenær
sá dagur rennur upp. ���������������������������
������������������������
���������
�������������������������������������������������������
���������������������������������
�����������
��� �������������������������������
����������
������������������������������������������������������
�������������������������������������
�������������������������������
������
�����������������������������������
�����������������������������
�������������������������� ������������
�������������
���������������������
����������������������������������������
�����������������������
HÉRAÐSSTJÓRNIN Í NAJAF Þegar Kosnett
var héraðsstjóri í Najaf sá hann meðal
annars um að bráðabirgðahéraðsstjórn
var valin sem í áttu sæti íraskir stjórnmála-
menn.
Dáist að einurð Íraka
Á SKRIFSTOFUNNI „Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur undirstrikað við reynum ekki að hafa áhrif á þróun mála á stjórnmálasviðinu í Írak, við
viljum fyrst og fremst að lögmæt og réttkjörin ríkisstjórn komist til valda.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
SADDAM FER MIKINN Þrátt fyrir uppnámið sem réttarhöldin hafa valdið innanlands og utan telur Kosnett ólíklegt að þau hafi
áhrif á kosningarnar á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Mér finnst eiginlega ótrúlegt
að milljónir Íraka skuli bók-
staflega hætta lífi sínu við að
mæta á kjörstað. Ef ég byggist
við að verða fyrir eldflaugaár-
ás á leiðinni á minn kjörstað
í Norður-Karólínu myndi ég
sennilega hugsa mig tvisvar
um.“
Áður en Philip S. Kosnett, staðgengill sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi, kom hingað til lands
gegndi hann embætti héraðsstjóra í Najaf í Írak.
Hann ræddi við Svein Guðmarsson um störf sín þar
og framtíðarhorfurnar í þessu stríðshrjáða landi.