Fréttablaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR 22. desember 2005 5
Verð 9.900.-
Litir svart og brúnt.
LEÐURSTÍGVÉL
Laugavegi 100 og sími 561 9444
Leðurhúfa með bleikum loðkanti, kr.
28.000.
Málið er sem sagt að vera dugleg-
ur að skella á sig húfu eða hatti og
á þessum árstíma er um að gera
að hafa stóra og góða loðhúfu sem
oftast á hausnum, bæði til þess að
verjast veðrinu og svo er það líka
alveg afskaplega smart.
Ekta skinn er líka eitt af því
sem fer inn og út úr tískuheimin-
um en það hefur sótt verulega á
undanfarin ár og nú skarta tísku-
línur velflestra hönnuða í heimin-
um einhvers konar flíkum úr loð-
feldum, húfum, treflum, jökkum
og kápum.
Hjá Eggerti feldskera á Skóla-
vörðustígnum er gasalega girni-
legt úrval af alls kyns loðnum og
girnilegum flíkum og húfurnar
eru alveg æðislegar.
Refir, minkar og þvottabirnir
eru þar á meðal og skotthúfurnar
í Davy Crockett-stíl eru svakalega
svalar.
Fæst allt hjá Eggerti feld-
skera.
Með rebbahaus, kr. 47.000.
Loðnar
lúxushúfur
Höfuðföt eru í tísku í vetur.
Hringur með skotti, kr. 28.500.
Svört og stór, kr. 47.000.
Ljós með dúskum, kr. 46.000.
Tískuspekúlantar víða um
heim eru sammála um að nýja
undirfatalínan frá Schiesser
sé það sem sker sig úr í hinum
harða heimi karlmannsund-
irfata.
Allir karlmenn hljóta að vilja
klæðast þægilegum undirfötum.
Nýjasta línan frá svissneska
fyrirtækinu Schiesser, Revival,
þykir ákaflega vel heppnuð og
hefur notið gífurlegra vinsælda
víða um heim. Línan þykir góð
blanda af gæðum, einfaldleika
og flotts stíls. Auk þess þykja
flíkurnar nosturslega unnar og
einstaklega þægilegar. Einfalt og
gott er sem fyrr alltaf best.
Nærföt frá Schiesser fást
víða hér á landi en nýjasta línan,
Revival, er ekki enn fáanleg.
Þó er möguleiki á að hún komi í
íslenskar verslanir á næsta ári.
Vinsælasti
undirfatnaðurinn
Nýja línan frá Schiesser þykir einföld og
flott.
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY