Tíminn - 20.11.1976, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.11.1976, Blaðsíða 13
Laugardagur 20. nóvember 1976 13 Ólafur einn af „íslend- ingunum". Ólafur Benediktsson mun standa í landsliðsmarkinu fram yfir HAA-keppnina — Við lítum á Ólaf Benediktsson sem einn af ,,íslend- ingunum", þrátt fyrir að hann fari til Svíþjóðar og leiki með Olympia, sagði Sigurður Jónsson, formaður H.S.Í. — Ólafur mun leika og æfa með landsliðinu þar til hann fer til Svíþjóðar eftir áramótin. Þá verður einnig kallað á hann ti I að leika gegn Pólverjum og Tékkum hér heima í janúar— og hann verður aðalmarkvörður okkar í HM- keppninni, sagði Sigurður. — — Ég mun taka þátt i æfingum landsliösins, þar til ég fer til Sviþjóðar, ef af þvi verður, sagði Ólafur i viðtali við Timann i gær. Ólafur reiknar ekki með þvi að fara til Svíþjóðar fyrr en i janúar- lok, þannig að hann geti ieikið með gegn Pólverjum og Tékkum. — Þá eru miklir möguleikar á þvi, að ég fari ekki út fyrr en 7. febrúar, eða strax eftir lands- leikina gegn V-Þjóðverjum hér heima, sagði Ólafur. Ólafur sagði, að þegar hann hefði rætt við Jan Andersen, for- mann Olympia, hér á dögunum. þá hefði hann tekið það fram, að hann þyrfti að fá fri til að fara til Stórbreytingar — d kvennalandsliðinu í handknattleik Nú hafa verið gerðar róttækar breytingar hjá kvennalands- liðinu i handknattleik, þar sem það hefur verið ákveðið að yngja landsliðið mikið upp — og byggja upp nýtt landslið frá grunni. Landsliðið er nú byrj- að að æfa fjórum sinnum i viku undir stjórn Januzar Cherwinsky, landsliðsþjálf- ara. Landsliðshópnum hefur ver- ið skipt i tvo hópa, þannig að á tveimur æfingum eru stúlkur 18 ára og yngri, en hinum tveimur stúlkur á aldrinum 19- 23ja ára. Það eru mikil verkefni framundan hjá kvennalands- liðinu, sem tekur þátt i fjög- urra landa keppni i Reykja- vik, ásamt Hollendingum, Færeyingum og Bandarfkja- mönnum. Þá verða tveir landsleikir gegn V-Þjóðverj- um hér i vor. Bengt Frömann og Thomas Kihlström. SVEND PRI... — í sviðsljósinu DANINN Svend Pri, sem er tvi- mælalaust einn fremsti badmin- tonleikari i heiminum, verður I sviðsljósinu á NM-mótinu I bad- minton, sem hefsi. i Laugar- dalshöllinni i dag. Þessi frábæri keppnismaður varð heimsmeist- ari i einliðaleik 1975, en slasaðist siðan nokkuð illa á hátindi frægð- ar sinnar og missti þar með alla sina titla. Pri er nú kominn i sitt gamla form og hefur verið frábær að undanförnu. Það verður gaman að fylgjast með Pri um helgina á fjölum Laugardalshallarinnar — og þá væntanlega keppni hans og félaga hans, Steen Skovgaard, sem kom til að leika gegn heims- meisturunum frá Sviþjóð i tvi- liðaleik — þeim Bengt Frömann og Thomas Kihlström, en þeir sigruðu þá Pri og Skovgaard i úr- slitunum i „All England” i hörku- baráttu. Orslitin á NM hef jast á morgun kl. 2. Svend Pri David Cross til W.B.A. DAVID CROSS hefur gerzt leik- maður með West Bromwich Albi- on. Johnny Giles, framkvæmda- stjóri W.B.A., borgaði Coventry 140 þús. pund fyrir þennan fyrr- verandi Norwich-leikmann. Januz er hrifinn af Sigurði... ÍÞROTTIR in.'ir cn BtivtumTS. SON...sést hér ásaml Januzi, landsliðsþjálfara, á æfingu hjá landsliðinu. (Timamynd Gunnar). SIGURDUR SVEINSSON...sést hér stökkva hátt upp, fyrir fram- an varnarvegg IR-inga og skora örugglega. (Timamynd Gunnar). Austurrikis, til að leika með is- lendingum i HM-keppninni. — Andersen sagði þá, að það væri ekkert vandamál. — ég fengi fri til að leika i HM, sagði Ólafur. Ólafur mun væntanlega fara til Helsingjaborgar i desember, og yrði þá væntanlega gengið endan- lega fram samningum hans við Olympia. Á þessu sést, að Ólafur hefur þegar fulltryggt það, að hann getur æft og leikið með lands- liðinu fram yfir HM-keppnina. —sos hinum efnilega leikmanni hjó Þrótti Sigmundur Ó. Steinarsson — Januz óskaði eftir þvi að fá Sig- urð i landsliðshópinn, þar sem hann telur hann einn efniiegasta handknattleiksmann, sem hann hefurséð, sagði Birgir Björnsson, formaður landsliðsnefndarinnar i handknattleik, þegar hann til- kynnti að Sigurður Sveinsson hinn stórefnilegi leikmaður úr Þrótti, væri kominn i Iandsliðshópinn. Þetta er mikið hrós fyrir Sigurð, sem er aðeins 17 ára gam- all. Sigurður er örvhentur, og hef- ur hann sýnt mjög góða leiki með Þróttar-liðinu að undanförnu. Það má vera, að Januz Cher- winsky, landsliðsþjálfari, sjái nýjan Klempel í Sigurði, sem hef- ur sömu likamsburði til-að bera og hinn snjalli Pólverji, sem lék FH-inga grátt i Evrópukeppni meistaraliða. Þá sagði Birgir, að Januz hefði einnig óskað eftir þvi að fá Kristján Sigmundsson, markvörð úr Þrótti, i landsliðshópinn. -SOS Ekki ánægður þrátt fyrir að hafa skorað 1 3 mörk — Ég er ekki ánægður, nema að ég skori að minnsta kosti 10 rnörk i leik, sagði hinn frábæri handknattleiksmaður frá Pól- landi, Jerzy Klempel, eftir Evrópuleikinn gcgn FH-ing- um. Klempel skoraði gott bet- ur, þvi að FH-ingar fengu að hiröa knöttinn 13 sinnum úr netinu hjá sér, eftir þrumu- skot frá honum. Þrátt fyrir þetta, var Klempel ekki ánægður með leik Slask-liðsins. — Við lékum ekki vel, og vorum langt frá okkar bezta, sagði Klempel, sem þótti ekki mikið koma til FH-liðsins. — Það voru aðeins tveir menn, sem einhver ógn- un var af, þeir Geir Hall- steinsson, sem er mjög skemmtilegur handknatt- leiksmaður og Viðar Simonar- son. Klempel sagði að lokum, að Slask-liðið myndi vinna stærri sigur á FH-ingum i Póllandi, heldur en i Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.