Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 6
6 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur sýknað Sigurð Örn Bernhöft, framkvæmdastjóra HOB-vína ehf., af broti á áfeng- islögum. Honum var gefið að sök að hafa birt auglýsingu á áfengum bjór af tegundinni FAXE Premi- um í Fréttablaðinu og DV í desem- ber 2004. Í auglýsingunum, sem birtust á heilsíðu, var stór mynd af FAXE bjórdós og neðst á síðunni stóð „Besti vinurinn“ og „Léttur öll- ari“. Samkvæmt áfengislögum eru hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum bannaðar. Sigurður Bernhöft sagði í yfir- heyrslum hjá lögreglu að hann hefði ekki viljað gefa í skyn með auglýsingunum að um óáfengan bjór væri ræða. Orðasambandið „Léttur öllari“ var því ekki skír- skotun til þess að bjórinn í auglýs- ingunni væri óáfengur. Stefán Geir Þórisson, lögmað- ur Sigurðar, segir sýknudóminn ekki hafa komið á óvart. „Ég hefði gjarnan kosið að það hefði verið tekið á Evrópuréttarálitaefnun- um í þessu máli því það hafa fall- ið tveir svipaðir dómar. Annars vegar hjá Evrópudómstólnum og hins vegar norskt mál hjá EFTA- dómstólnum.“ Í dómunum kemur fram að hugsanlega sé algjört bann við áfengisauglýsingum of íþyngjandi fyrir fyrirtæki sem selja áfenga drykki. - mh Sýknaður af ákæru um brot á lögum um áfengisauglýsingar: Mátti auglýsa áfengan bjór AUGLÝSINGIN UMDEILDA Lýðheilsustöð sendi lögreglu ábendingu vegna auglýsing- arinnar þegar hún birtist, og var auglýsingin kærð í kjölfarið. Héraðsdómur sýknaði framkvæmdstjóra HBO-víns ehf. DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur verið sýknað af bótakröfu konu vegna seinagangs við lögreglurannsókn á kynferðisbroti gegn henni. Í dómi Hæstaréttar frá apríl 2004 segir að ekki sé hægt að sak- fella manninn fyrir að misnota stúlkuna þar sem brotin séu fyrnd. Einnig segir að lögregla hefði átt að vita að brotin væru fyrnd þar sem stúlkan mundi ekki hvenær maðurinn misnotaði hana síðast. Hæstiréttur taldi heldur ekki sannað að mál stúlkunnar hafi liðið fyrir þann tíma sem rann- sóknin tók þar sem ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort maður- inn hafi misnotað hana. - gag Ríkið sýknað í Hæstarétti: Misnotkun var ekki sönnuð VIÐSKIPTI FL Group keypti í vik- unni hluti í tveimur dönskum félögum og nemur markaðsvirði þeirra að minnsta kosti tólf millj- örðum króna. Annars vegar keypti félag- ið 8,2 prósenta hlut í raftækja- fyrirtækinu Bang & Olufsen en markaðsvirði hlutarins er um 7,5 milljarðar króna og hins vegar keypti FL Group yfir tíu prósenta hlut í Royal Unibrew, næststærsta drykkjarframleiðenda Skandin- avíu. - eþa FL Group kaupir í Danmörku: Fjárfest í Bang & Olufsen TÆKI FRÁ BANG OG OLUFSEN FL Group hefur keypt hluti í danska raftækjafyrirtæk- inu fyrir 7,5 milljarða. LONDON, AP Tony Blair, forsætis- ráðherra Breta, sagði fangabúðir Bandaríkjahers við Guantanamo- flóann á Kúbu „afbrigðilegt fyrir- bæri“, sem eitthvað þyrfti að gera í, en gekk ekki svo langt að kalla eftir lokun þeirra á fréttamanna- fundi í Berlín í fyrradag. Það hefur Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hins vegar gert. Á fimmtudag birti mannrétt- indanefnd SÞ skýrslu sem leggur til hið sama vegna meðferðar á föngum þar, sem og því að aðeins um 10 fangar af 490 sem þar dúsa hafa verið formlega ákærðir. Talsmaður Hvíta hússins segir að búðunum verði ekki lokað.- smk Búðirnar í Guantanamo: Blair segir þær afbrigðilegar FANGABÚÐIR Verðir leiða fanga í Guantan- amoflóabúðunum. NORDICPHOTOS/AFP MENNTAMÁL Verkfræðingafélag Íslands er hlynnt því að lækka aldur nemenda til stúdentsprófs um eitt ár eins og algengt er á öðrum Norðurlöndum. Félagið hefur sent frá sér ályktun þar sem hvatt er til vand- aðs undirbúnings við breyting- ar á bæði grunnskóla- og fram- haldsskólastigi. Að mati þess var stigið það óheillaspor að draga úr stærðfræði og annarri raun- greinakennslu við síðustu breyt- ingar á námskrá framhaldsskól- anna. Félagið leggur áherslu á að það endurtaki sig ekki, heldur að raungreinakennsla verði aukin. -shá Verkfræðingafélagið ályktar: Styður styttra framhaldsnám DANMÖRK Nokkrir leikmenn danska landsliðsins í knattspyrnu vilja hætta við fyrirhugaðan vináttuleik Ísraela og Dana um mánaðarmótin. Telja þeir ekki óhætt fyrir liðið að ferðast til Miðausturlanda um þess- ar mundir. Mótmæli múslima í Ísrael vegna Múhameðsteikninganna hafa þó verið friðsamleg það sem af er. Samkvæmt frétt Politiken í gær er þó orðrómur uppi um að þeir hygg- ist brenna danska fánann fyrir leik- inn. Danska knattspyrnusambandið tekur ákvörðun í vikunni um hvort hætt verði við leikinn. - ks Danskir knattspyrnumenn: Vilja hætta við landsleik í Ísrael Síðustu sýningar MATVÖRUVERÐ Sænskir neytendur borga stöðugt lægra verð fyrir matinn sinn og nálgast matarverð óðfluga meðaltalið í öðrum Evr- ópusambandsríkjum. Árið 1990 greiddu Svíar helmingi meira en þeir borga fyrir matinn í dag. Sænsk stofnun, Livsmedelsek- onomiska institutet í Lundi, hefur gert reglulegar kannanir á mat- vöruverði á 46 algengum vöruteg- undum á 26 stöðum í Evrópu í 14 ár. Rannsóknirnar sýna að Svíar greiða nú 18 prósentum hærra verð fyrir matarkörfuna en hinar ESB-þjóðirnar að meðaltali. Á fréttavef norska ríkisút- varpsins kemur fram að aðstand- endur rannsóknarinnar þakka þetta inngöngu Svíþjóðar í ESB. Þeir segja að verðjöfnun hafi átt sér stað eftir að Svíþjóð gekk í ESB og það sé sérstaklega áber- andi frá árinu 2000. Samkvæmt norrænni rann- sókn, sem kynnt var hér á landi í haust, borga Íslendingar lang- hæsta matarverðið í Evrópu, eða 42 prósentum hærra en meðaltal- ið. Matvöruverð í Noregi er næst- hæst, eða 38 prósentum hærra en að meðaltali í Evrópu. Henný Hinz, umsjónarmað- ur Verðlagseftirlits ASÍ, segir niðurstöðurnar svipaðar og kom fram í skýrslunni í haust. „Það er óumdeilanlegt að stóran hluta lágs vöruverðs má rekja til aðild- ar að ESB en það er erfitt að segja hvaða áhrif aðildin hefur og hvaða áhrif opnun markaðar með landbúnaðarvörur hefur. Þetta er svo samtengt,“ segir hún. Henný bendir á að í Svíþjóð hafi ofurlágvörukeðjur haslað sér völl og segir þær bjóða enn lægra vöruverð en er hér á landi eða í Noregi. Það geti líka haft sitt að segja. Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, segir að mat- arverð myndi væntanlega lækka á Íslandi með inngöngu í ESB, sérstaklega ef innflutningur á landbúnaðarvörum yrði óheftur. Hann segir að stjórnend- ur Kaupáss horfi þó einkum á þrennt, að rýmka möguleika á innflutningi á landbúnaðarvörum og lækka opinber gjöld, lækka og sameina virðisaukaskatt í eitt þrep, og auka og jafna samkeppn- isumhverfið á markaðnum. ghs@frettabladid.is Vöruverð í Svíþjóð lægra eftir ESB aðild Svíar greiða stöðugt lægra verð fyrir matinn, sérstaklega eftir inngönguna í ESB. Henný Hinz, forstöðumaður hjá Verðlagseftirliti ASÍ, segir „óumdeilan- legt“ að ESB-aðild hafi verðlækkandi áhrif. MATARVERÐ HEFUR LÆKKAÐ Í SVÍÞJÓÐ Sænsk rannsókn sýnir að matarverð hefur lækkað heilmikið í Svíþjóð, sérstaklega eftir að Svíar gengu í ESB. FORSTÖÐUMAÐUR ASÍ „Það er óumdeilanlegt að stóran hluta lágs vöruverðs má rekja til aðildar að ESB,“ segir Henný Hinz, forstöðu- maður verðlagseftirlits ASí. FORSTJÓRI KAUP- ÁSS Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, segir að stjórnendur Kaupáss vilji lægri opinber gjöld og jafnara sam- keppnisumhverfi. KJÖRKASSINN Fylgistu með gengi íslensku kepp- endanna á vetrarólympíuleikun- um í Tórínó? Já 28,8% Nei 71,2% SPURNING DAGSINS Í DAG Á Ríkisútvarpið að fara af aug- lýsingamarkaði? Segðu þína skoðun á Vísir.is STJÓRNMÁL Eyþór Arnalds varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðis- manna til sveitarstjórnarkosninga sem fór fram í Árborg í gær en fjórir frambjóðendur kepptust um fyrsta sætið. Eyþór var að vonum ánægður með úrslitin. „Ég fann frá byrjun fyrir miklum meðbyr. Þetta var glæsilegt prófkjör því þátttakan var gríðarlega góð. 1100 manns greiddu atkvæði sem er mjög gott í 7000 manna bæjarfélagi.“ Rúmlega þúsund manns greiddu atkvæði í prófkjörinu sem var lokað, en fyrir fjórum árum var kosið í opnu prófkjöri og kjörsókn þá rúmlega 900 manns. Það sem af er árinu hafa rúm- lega 400 manns gengið í Sjálf- stæðisflokkinn í Árborg og þar af 143 í gær. Framsóknarmenn á Akureyri völdu sömuleiðis mannskap á framboðslista sinn í gær. Þegar búið var að telja 350 atkvæði af 685 í prófkjörinu var Jóhannes Bjarnason í efsta sæti með 162 atkvæði í fyrsta sætið. Hann var að vonum ánægður með sigurinn. „Ég hef lagt mig fram við það að vera heiðarlegur og starfa ötullega að þeim málum sem ég hef komið að.“ Gerður Jónsdóttir var með 147 atkvæði í 1.-2. sætið og Erla Þránd- ardóttir var með 144 atkvæði í 1.- 3. sætið. - sdg Prófkjör sjálfstæðismanna í Árborg og Framsóknar á Akureyri: Eyþór og Jóhannes sigruðu EYÞÓR ARNALDS ÁSAMT STUÐNINGS- MÖNNUM SÍNUM Eyþór kom sá og sigraði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Árborg. Hann hefur til skamms tíma búið í héraðinu og því kom sigur hans nokkuð á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.