Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 32

Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 32
32 MlAiIÍiIÍ Sunnudagur 16. október 1977. Liðsinnum blindum Sunnudaginn 16. október veröur hinn árlegi merkjasöludagur BLINDRAVINAFÉLAGS ISLANDS haldinn hér á landi. Félag þetta var stofnað i Reykjavik hinn 24. janúar 1932. Þórsteinn Bjarnason, körfu- ger&armaöur I Reykjavlk átti frumkvæöiö aö stofnun félagsins fyrir atbeina sr. Þorsteins Briem á Akranesi. Haustiö 1931 voru eftirtaldir aöilar aö auki valdirtil þess aö undirbúa stofnun félags til hjálpar blindum: FrúMargrét Th. Rasmus, skólastj. Málleys- ingjaskólans, Halldóra Bjarn- adóttir, handavinnukennari i Kennaraskóla tslands, tilnefnd af Kvenfélagasambandi Islands sr. Sigurður P. Sivertsen, háskóla- kennari, tilnefndur af presta- félagi Islands og Samband islenzkra barnakennara tilnefndi Sigurö Thorlacius, skólastjóra i Reykjavik i nefndina. A stofnfundinum greindi undir- búningsnefnd vel frá þvi, hvernig háttað væri málum varöandi blint fólk og sjöndapurt. Aöalverkefni félagsins töldu nefndarmenn þurfa aö vera: 1. Aö leita ráða til þess aö fyrirbyggja blindu og hjálpa þeim, sem orönir væru blindir. 2. aö koma á fót skóla fyrir blind börn, bæöi i böklegum og verklegum greinum, og útvega bækur á blindraletri, 3. aö stofna vinnustofu, sem sérstaklega væri ætluö blindu fólki og kenna þvi handiðnir viö sitt hæfi. Jafnframt yrði aö greiöa fyrir sölu á fram- leiöslu þeirra og útvega þeim efni og áhöld til vinnunar., og 4. aö hlúa að gömlu og blindu fólki, út- vega þvi ellistyrk og e.t.v. betri verustað. Stofnfundurinn var f jölmennur. Fundarmenn þökkuöu undirbún- ingsnefndinni vel unnin störf og m.a. fyrir frumv. til laga fyrir félagið. Þaö var samþykkt á fundinum. Félagiö hlaut nafnið BLINDRAVINAFÉLAG 1S- LANDS. I fyrstu stjóm félagsins var undirbúningsnefndin valin einróma, þ.e.: Formaður Sig- urður P. Sivertsen, og með honum Halldóra Bjarnadóttir, Margrét Th. Rasmus, Siguröur Thorlacius og Þórsteinn Bjarna- son. Þórsteinn var einnig kjörinn framkvæmdastjóri félagsins og hefur hann gegnt þvi starfi æ sið- an. Frá 1937hefur Þorsteinn jafn- framt verið formaöur félagsins. Blindravinafélag Islands, hófst þegar handa um aö undirbúa ýmislegt af þvi, sem stofnfundur- inn fól stjórninni aö annast um. Stjörn félagsins á ýmsum timum hefur svo reynt eftir föngum aö liösinna blindu og sjóndöpru fólki á ýmsum aldri i samræmi viö þaö, sem ráö var fyrir gert þegar félagiö var stofnaö og siöari aö- stæöurgeröu aökallandi. Hér skal ekki fariö nánar út i störf Blindravinafélagsins undanfarna áratugi. Þaö gætiorðiö langt mál. Þó skal getiö sérstaklega eins þáttar, sem félagiö hefur borið mjög fyrirbrjósfcalltfráfyrstu tiö félagsins, en þaö er Blindraskól- inn. Hiö fyrsta sem stjórn Blindra- vinafélágiö geröi I þágu væntan- legs blindraskóla var að styrkja kennara tilnáms iblindrakennslu I Danmörku (Blindeinstitutet i Kaupmannahöfn). Þaövar Ragn- heiöur Kjartansdóttir frá Hruna, sem dvaldi þar viö nám skólaáriö 1932- 33 og einnig I Sviþjóö fram á haust. Ragnheiður hóf svo blindrakennslu i byrjun skólaárs 1933- 34 á vegum Blindravina- féiagsins, en menntamálaráöu- neytiö féllst á a& greiöa föst laun Bændur - Athugið! Eigum til afgreiðslu með stuttum fyrirvara eftirtalin tæki: MYKJUDÆLUR GUFFEN ■ • ■ .r mykjuareiT Samband islenzkra samvinnufeiaga VÉLADEILD Armula 3 Reykjavik simi 38900 G]E]G]E]E]G|E]E1E]E]E]G]E|E!E]B]E|E]E]G]E}E]E]E]E]E1E]E]E1G]E] kennarans meö sama hætti og laun annarra kennara viö barn- askóla Reykjavikur. Annan kostnaö viö skólahaldiö greiddi félagiö. Skólinn var tilhúsa fýrstu árin i húsnæ&i, sem Elliheimilið Grund lét félaginu i té, þá voru 3-5 börn f skólanum. Ragnheiöur hætti fastri kennslu eftir 3 ár. Þá tók Björn Jónsson kennari viö skólanum, sem þá flutti á Laufásveg 19 og siðar I hús félagsins á Ingólfsstræti 16, þar sem vinnustofa var til húsa. Árið 1955 styrkti félagiö Einar Hall- dórsson, skólastjóra, til náms i blindrakennslu i Skotlandi, árlangt. Hann kom til kennslu aö loknu námi og flutti skólann þá i dvalarheimili félagsins á Bjarkargötu 8 hér i bæ. Einar andaðist 1968 og haföi hann verið hugkvæmur og dugandi kennari. Ekki var svo fastráðinn blindra- kennari að skólanum fyrr en Margrét Sigurðardóttir, sem Blindravinafélagiö veitti nokkurn styrk til blindranáms á Norður- löndum og lauk hún þar blindra- kennaraprófi 1970, kom og gerðist kennari viö Blindraskólann þá um haustiö og hefur verið þaö si&an. Þegar Margrét kom aö skól- anum var hann til húsa á Bjarkargötu 8. Meö auknum námskröfum, aukinni námstækni og fjölgun nemenda á ýmsum aldri var ljóst, aö brýn þörf var á þvi aö fá hentara húsnæöi fyrir skólann en kostur var á i' húsa- kynnum félagsins. Fyrir velvilja skólastjórnar Laugarnesskólans og fræöslustjórans i Reykjavik samdist svo um viö stjórn Laugarnesskólans, að þar fékkst sómasamlegt kennslurými fyrir Blindraskólann, önnur aðsta&a i skólanum fyrir kennslu I sér- greinum, svo sem sundi, leikfimi og e&lileg samskipti viö aöra nemendur skólans. Hér var merkum áfanga náö i sögu skólans. A& athuguöu máli lagöi stjórn Blindravinafélagsins til við menntamálaráöuneytið áriö 1974, aö Blindraskólinn yr&i geröur rikisskóli og félagiö af- henti svo skólanum án endur- gjalds þau áhöld, gögn, bækur o.fl., sem félagiö heföi látiö skól- anum i té á liönum árum. Ráöu- neytið samþykkti þessa skipan á málum skólans meö bréfi til Blindravinafélags Islands. daes. 1. sept. þ.á., og tók þessi skipan gildi frá sama degi að telja. Málum skólans og nemenda hans er þvi vel borgiö til jafns viö aöra sérskóla rikisins. Blindravinafélag íslands hefur frá stofnun félagsins hlotiö fjár- hagslegan stuðning frá f jölda ein- staklinga á merkjasöludegi félagsins um miöjan október ár hvert. Fé þessu hefur aöallega verið varið til þess aö styrkja BLINDRAIÐN, þ.e. framleiöslu á þeim vörum, sem blint fólk hefur framleitt svo sem körfur ýmiss konar, bursta, gólfklúta, o.fl. svo að unnt yröi aö selja þær vörur meö sambærilegu veröi viö það, sem aörir gera á almennum markaöi þar sem notaöar eru vélar, sem stjórnaö er af sjáandi tólki. Hinar öru verðhækkanir á svo til öllum framleiðsluvörum hér á landi á undanförnum árum hafa valdið þvi, aö þótt merkjasala félagsins hafi gengiö vel — meö aösto&a skólabama og barnaskól- anna — þá hefur mun aukinn kostnaöur viö framleiösluvörur Blindraiðnar valdiö þvi, aö nú er fjár vant til þess aö auka fram- leiðslu og sölu á þeim varningi, sem helst hentar blindu fólki aö sjá um. Þá þarf aö gera tilraunir með framlei&slu á nýjum vöru- tegundum, sem litt hafa veriö reyndar hér. Aö þessu sinni fer fjársöfnun Blindravinafélags tslands fram meöþeim hætti —sökum þess, aö skólar eru nú lokaðir vegna verk- falla starfsmanna BSRB — að af- greiösla merkjanna mun fara fram I bil sem sta&settur verður á leikvelli viökomandi barnaskóla og nánar verður auglýst I dag- blöðum. Billinn veröur auð- kenndur meö nafni Blindravina- félags tslands. Þess er vænzt, aö sölubörn bregöist vel viö aö leysa þann vanda, sem hér hefur skapazt, og komi kl. 10,00 á leikvöll viðkom- andi skóla og fái þar afhenta miöa til sölu i bil merktum Blindra- vinafélagi Islands. Börnin geri svoskil á sama staöfyrir kl. 15.00 (3 e. hád.) eöa á mánudag, i húsi Blindravinafélagsins á Ingólfs- stræti 16 sé ekki annars kostur. GLEÐJUM BLINDA Meö kveöju Blindravinafélag tslands DEKK Sendum í póstkröfu um land allt Sólaðir snjó-hjólbarðar í flestum stærðum MJÖG HAGSTÆTT VERÐ ■N X ^ ATLAS Nýir ifí) amerískir snjó-hjólbarðar með hvítum hring % * 5:3* GOTT VERÐ Smiðjuvegi 32-34 Simar 4-39-88 & 4-48-80

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.