Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.08.2006, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 20.08.2006, Qupperneq 78
 20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR38 �������������������������������������������������������������� ������������������������������ ����������� �������������������������������� ��������������������������������������������� �������������������������������� ����������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������������������������� � ������������������� ���������������������������������� ������������������������������������������������������������������������������������� �������������������� ������������������������������������������������������������������������������������������������ ������������������������������������ � �������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������� ����������� ����������������������������������������� ���������������� Hvað er að frétta? Það er bara allt ágætt að frétta af mér. Um helgina er mjög spennandi flokksþing hjá okkur Framsóknarmönnum. Svo byrja ég skólanum aftur í næstu viku þar sem ég er að fara í meistaranám við lagadeild HR. Augnlitur: Brúnn. Starf: Ég er laganemi og járnbindingamaður. Fjölskylduhagir: Einhleypur. Hvaðan ertu? Ég er ættaður úr Flóanum í Árnes- sýslu og Skagafirði en hef búið hérna í Reykjavík síðastliðin fimmtán ár. Ertu hjátrúarfullur? Nei, ég myndi nú ekki segja það. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég fylgist vel með Lost, sem er eini sjónvarpsþátturinn sem ég reyni að missa ekki af. Mér finnast þættirnir bæði vera spennandi, skemmtilegir og öðruvísi. Uppáhaldsmatur: Ég er nú bara mest í skyndibit- anum eins og gengur og gerist með þá sem búa einir. Ætli ég segi ekki bara Búlluhamborgari, sem stendur alltaf fyrir sínu. Fallegasti staður: Mér finnst mjög fallegt í Þórs- mörk. Þar er mikil náttúrufegurð og svo hrífst ég af einangruninni, enda þarf maður aðeins að leggja á sig til að komast þangað. iPod eða geislaspilari? Eiginlega hvorugt, því ég hlusta á tónlist úr fartölvunni minni. Hvað er skemmtilegast? Ætli það sé ekki að sinna áhugamálunum sínum, og helsta áhugamálið mitt eru stjórnmál. Hvað er leiðinlegast? Húsverkin. Helsti veikleiki: Ég er kannski stundum ákafur, sem getur komið manni í koll. Helsti kostur: Ætli það sé ekki bara ákafinn líka, sem kemur manni oft áfram þegar virkilega þarf á að halda. Helsta afrek: Ég man ekki eftir neinu nógu merki- legu svo ég held að helsta afrekið sé enn óunnið. Mestu vonbrigðin: Að hafa ekki komist eitthvað út fyrir landsteinana í sumar til að slappa aðeins af. Hver er draumurinn? Það er bara að vegna vel í lífinu. Hver er fyndnastur/ fyndnust? Ég myndi segja að Jim Carrey væri mjög skemmtilegur leikari. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Huglaust fólk. Uppáhaldsbókin? Hún heitir Útlendingurinn og er eftir Camus. Hvað er mikilvægast? Mikilvægast er að vera heið- arlegur. HIN HLIÐIN HAUKUR LOGI KARLSSON, LAGANEMI OG JÁRNBINDINGAMAÐUR Búlluhamborgari stendur fyrir sínu Við bæinn Ystu-Garða í Staðar- sveit á Snæfellsnesi má sjá skilti í vegkantinum þar sem andaregg eru auglýst til sölu. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að bóndinn á bænum heitir Andrés og því er þarna um að ræða nokkurs konar Andrésar andaregg sem hljóta að vera vandfundin. „Ég er búinn að selja andaregg lengi,” segir Andrés aðspurður um upphaf sölumennskunnar. „Það eru þrjú sumur síðan ég setti upp skiltið en áður var ég búinn að selja sveitungunum egg í einhvern tíma.“ Andrés er með á milli 35 og 40 endur á bænum en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt frá því hús- freyjan á bænum, Þóra Sif Kóps- dóttir, kom óvænt heim með fimm endur undir arminum. „Frúna lang- aði alltaf í kanínur og fór að ná sér í þær til Hríseyjar. Kom svo heim með endurnar líka. Við urðum fljótt leið á kanínunum en endurnar eru hér enn.” Kaupendur andareggjanna koma úr öllum áttum. „Það er hið ólíkleg- asta fólk sem lítur hér inn en þó er aðallega um að ræða Íslendinga á ferðalagi,“ segir Andrés sem selur eggin á 50 krónur stykkið. Blaða- maður bendir á að kannski væri ráð að setja upp skilti á ensku fyrir erlent ferðafólk en sú ábending reynist óþörf. „Ég hef alltaf selt öll mín egg og aldrei setið uppi með neitt magn. Öndum og kaupendum hefur fjölgað í jöfnu hlutfalli,” segir bóndinn og hlær. Andrés segir að vissulega hafi margir rekið upp stór augu þegar sölumaður andareggja kynni sig sem Andrés. „Í sumar fór frúin að selja eggin á bændamarkaði á Hvanneyri. Þar þurfti að setja nafn á vöruna og menn vildu endilega kalla þau Andrésar andaregg. Fyrir- varinn var stuttur og hún kunni ekki við að gera það nema spyrja mig fyrst. Þess vegna varð ekkert úr því í það skiptið,“ segir Andrés og bætir því við að kona í sveit- inni, sem er áskrifandi að einum 12 eggjum á viku, hafi aldrei kall- að þau annað. En hvernig bragðast svo Andr- ésar andaregg? „Mér finnst þau mjög góð og margir þeir sem hafa keypt einu sinni koma hér við aftur síðar. Þau eru svolítið stærri en hænueggin en ekki ósvipuð nema að því leytinu til að hægt er að fá andareggin græn líka.” ANDRÉS ÖLVERSSON: BÓNDI Á SNÆFELLSNESI VEKUR ATHYGLI Andrés selur andaregg ANDRÉS ÖLVERSSON Bóndinn á Ystu-Görðum í Staðarsveit á Snæfellsnesi hefur um árabil selt sveitungum sínum og ferðamönnum andaregg, eða Andrésar andaregg eins og þau eru kölluð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HRÓSIÐ ... fá Sif Gunnarsdóttir og aðrir skipuleggjendur fjölbreyttrar og skemmtilegrar Menningarnætur í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri hefur látið endurnýja bíla- kost embættisins. Honum er nú ekið um á þriggja ára gamalli Audi-bifreið, í stað eldri bifreiðar sömu gerðar. Bíllinn er svartur að lit og kostar eitthvað um sex millj- ónir króna. Bílstjóri Vilhjálms er þó hinn sami og áður, Rúnar B. Sveinsson, sem einnig var bílstjóri í tíð síðustu borgarstjóra. Að sögn Ólafs Jónssonar hjá Reykjavíkurborg sá Innkaupa- og rekstrarskrifstofa borgarinnar til þess að 5-6 ára gamalli Audi-bif- reið var skipt út fyrir nýrri bíl. Nýi borgarstjórabíllinn er þriggja ára gam- all Audi A8 sem leigður er af Véla- miðstöð borgarinn- ar. Ólafur segir að af þeim þremur bílum sem embættinu bauðst hafi þessi verið langódýr- astur. Alls hafi sparast á milli 15- 20% kostnaður á leigugjaldi með þessari ráðstöfun, í stað þess að fenginn hefði verið nýr eða sam- bærilegur bíll og gamli bíllinn. Auk þess var samningi um aukabifreið fyrir bílstjóra borgarstjóra sagt upp og sparar það borginni um hálfa milljón króna á ári. „Ég held að það hafi tekist ágætlega að halda öllum kostnaði í lágmarki,“ segir Ólafur. Og auk þess er Vilhjálmur hæstánægður með bílinn. - hdm Borgarstjórinn yngir upp NÝI BORGARSTJÓRABÍLLINN Rúnar B. Sveinsson bílstjóri stendur við hlið glæsikerrunnar sem sæmir borgarstjóranum vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK FRÉTTIR AF FÓLKI Fjölmiðlamógúllinn Reynir Trausta-son er að ljúka tökum á heimilda- myndinni um Ísmanninn ógurlega, Sigurð Pétursson, ásamt þeim Lýð Árnasyni og Jóakim Reynis- syni. Þeir félagar eru á leið til Grænlands þar sem þeir munu sigla saman út í óbyggðir til að taka upp lokasen- una í myndinni. Ætlunin er að finna ísbjörn og náhval og er reiknað með að ferðin taki 8-10 daga. Verkefnið verður að klárast á þeim tíma þar sem Reynir þarf að halda áfram undirbúningi nýja fjölmiðilsins sem á að hefja göngu sína í kringum mánaðamótin sept- ember/október. Reynir er þögull sem gröfin um nýja blaðið en viðurkennir þó að búið sé að ráða í lykilstöður blaðsins og að höfuðstöðvar þess verði á Laugaveg- inum. Bandaríska vefsíðan BachelorBlowOut.com hefur verið að gera góða hluti vestan hafs en hún býður piparsveinum upp á ógleymanlegar ferðir innan Banda- ríkjanna, meðal annars til New Jersey, Las Vegas og South Beach í Flórida. Þeir sem vilja hins vegar komast út fyrir landsteinana geta að sjálfsögðu keypt sér ferð til Íslands en þar er boðið upp á gistingu á Hótel Borg, jöklaferðir, að ógleymdri skoðunar- ferð um skemmtanalíf höfuðborgarinnar. Á heimasíðunni er þess getið að útsýnið á Íslandi sé stór- kostlegt og er þá ekki eingöngu átt við náttúruna. „Konurnar þar eru með þeim fallegustu í heiminum og við höldum því fram að það sé hið ferska loft sem haldi fegurð þeirra við,“ stendur á heimasíðunni. „Við erum bara svo heppnir að geta átt kvöldstund með þeim.“ FRÉTTIR AF FÓLKI Finnska rokkgrúppan Lordi varð á dögunum þess heiðurs aðnjótandi að fá gosdrykk nefndan eftir sér og heitir hann Lordi Cola. Sveitin sigraði sem kunnugt er Eurovision-keppnina með laginu Rock Hallelúja en eins og margir eflaust muna eru hljómsveit- armeðlimir nánast óþekkjanlegir í skrímslabúningum. Gárung- arnir halda því fram að ekki líði á löngu þar til poppstjörnur Íslands geri tilkall til svip- aðs heiðurs og hinir finnsku. Verður forvitni- legt að sjá hvort sett verði á markað „Bubba- gos“ eða „Silvíu- safinn“ á næstu misser- um. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu á fimmtudaginn stjórnar Hermann Gunnarsson nýjum skemmtiþætti á fimmtudagskvöldum á Stöð 2 sem verða í beinni útsendingu frá Nasa við Austurvöll. Einnig var sagt frá því að brúðuþáttur stöðvarinnar, Búbbarnir, hefðu verið fluttir af laugardagskvöld- um og verða á undan Hermanni og þætti hans á fimmtudögum. Þetta þýðir að losnað hefur um pláss á besta stað í dagskrá vikunnar, á laugardagskvöldum eftir fréttir. Stjórnendur Stöðvar 2 eru afar leyndardóms- fullir um hvað muni koma en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er næsta víst að stöðin ætli sér að vera með nýtt leikið efni í þessu lausa plássi. - fgg 13.3.1979 BORGARSTJÓR- INN Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fékk nýrri borgarstjóra- bíl, en sparaði samt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.