Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 58
 20. október 2006 FÖSTUDAGUR34 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. MERKISATBURÐIR 1728 Eldur kemur upp í Kaupmannahöfn og stendur í þrjá daga. Stór hluti bókasafns Árna Magnússonar brennur en flest skinnhandrit bjargast. 1905 Landsdómur er stofnaður til að dæma í málum gegn ráðherrum en hefur aldrei verið kvaddur saman. 1968 Jacqueline Kennedy giftist auðjöfurnum Aristoteles Onassis. 1973 Óperuhúsið í Sydney í Ástralíu er opnað. 1977 Þrír meðlimir hljómsveitarinnar Lynyrd Skynyrd deyja í flugslysi. 1989 Borgarleikhúsið í Reykjavík er vígt en það hafði verið þrettán ár í byggingu. VIGGO MORTENSEN ER 48 ÁRA Í DAG Sá sem reynir sífellt að geðjast öllum gerir ekki neitt út frá eigin brjósti, eitthvað sem hann getur kallað sitt. Mortensen er þekktastur fyrir að ljá Aragorn í Hringadróttinssögu líf á hvíta tjaldinu. Fyrir tæpum tuttugu árum hvarf Mordechai Vanunu sporlaust stuttu eftir að viðtal við hann birtist í The Sunday Times. Þar ljóstraði hann upp um kjarnorku- vopnabirgðir Ísraela auk þess sem myndir birtust úr kjarnorkuverinu Dimona í Negev-eyðimörkinni. Vanunu sem var frá Mar- okkó hafði unnið í tíu ár í Dimona-rannsóknarstöð- inni en var rekinn vegna aðildar sinnar að ýmsum friðarhreyfingum. Síðar kom í ljós að Vanunu hafði verið rænt af útsendara ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad. Konan vingaðist við Van- unu í London og plataði hann með sér í ferðalag til Rómar þar sem honum var rænt og hann fluttur á skipi til Ísraels. Blaða- menn fengu upplýsingar um þetta þegar Vanunu skrifaði það í lófa sína sem hann þrýsti að glugga á bifreið sem flutti hann milli fangelsa. Vanunu var ákærður fyrir landráð og njósnir árið 1987 og dæmdur í átján ára fangelsi þar af ellefu í einangrun. Hann hlaut frelsi árið 2004 en hefur ekki enn fengið leyfi til að fara úr landi. ÞETTA GERÐIST: 20. OKTÓBER 1986 Mossad rænir Vanunu „Nei, við erum ekki búin að baka enda lítið um skipulögð hátíðarhöld því við erum fyrst og fremst að minna á þenn- an dag,“ segir Stefán Mikaelsson hjá Flugumferðarstjórn Íslands. Alþjóða- dagur flugumferðarstjóra er í dag og Stefán er staðgengill Lofts Jóhanns- sonar, formanns Félags íslenskra flug- umferðarstjóra, sem er í Búlgaríu. Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra voru á stofnuð á þessum degi fyrir 45 árum, af félögum í tólf aðildarríkjum, þar á meðal Félagi íslenskra flugum- ferðarstjóra. Nú eru um 50 þúsund félagsmenn í Alþjóðasamtökunum, þar af um 120 hér á landi. „Flugumferðar- stjórar eru í góðu samstarfi á milli landa,“ segir Stefán. „Það eru reglu- legir fundir og alþjóðaþing einu sinni á ári. Þess fyrir utan förum við alltaf á Norðurlandaþing og hittum félaga okkar þar, þannig að það er töluverður samgangur á milli landa. Það eru líka allir að fást við sömu vandamálin.“ Flugumferðarstjórar vinna bak við tjöldin, ef svo má að orði komast, en þeirra helsti starfi er að koma í veg fyrir að flugvélar rekist á. Færri kom- ast að en vilja í starfið enda inngöngu- skilyrðin ströng. „Umsækjendur þurfa að taka ýmis próf, meðal annars leysa úr flugumferðarhnútum í tilbúnu umhverfi. Þeir sem standa sig best í því ferli veljast til náms. Eftir það tekur við eitt ár í grunnámi og annað í starfsnámi áður en viðkomandi útskrif- ast með fyrstu réttindi í flugumferðar- stjórn.“ Stefán játar að starf flugumferðar- stjóra sé ekki fyrir hvern sem er, enda mikið í húfi. „Álagið getur verið mikið og það má segja að þetta sé ekki fyrir taugaveiklaða. En þótt starfið geti verið erfitt er það líka fjölbreytt og krefjandi.“ bergsteinn@frettabladid.is STEFÁN MIKAELSSON: FAGNAR ALÞJÓÐADEGI FLUGUMFERÐARSTJÓRA Ekki fyrir taugaveiklaða STEFÁN MIKAELSSON Segir að starf flugumferðarstjóra sé ekki fyrir hvern sem er enda mikið álag og ekki lítið í húfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Guðlaugsson fyrrv. framkvæmdastjóri Sælgætisgerðarinnar Opal, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 14. október. Útför hans verður gerð frá Laugarneskirkju mánudaginn 23. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Minningarsjóð Sóltúns, sími 590 6000. Magnús Heiðar Jónsson Inge Christiansen Guðlaugur Gauti Jónsson Birgir Rafn Jónsson Ingibjörg Norberg Sturla Már Jónsson Steinunn Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma, Cecilía Kristjánsdóttir Dvalarheimilinu Fellaskjól, Grundarfirði, sem lést sunnudaginn 15. október í St. Francisku- spítalanum Stykkishólmi verður jarðsungin laugar- daginn 21. október kl. 14 í Grundarfjarðarkirkju. Kristín Jeremíasdóttir Sigurður Kristjánsson Svandís Jeremíasdóttir Ágúst Sigurðsson Áslaugur Jeremíasson Unnur Magnúsdóttir Kjartan Jeremíasson Laufey Jeremíasdóttir Stefán Björgvinsson Þórdís Jeremíasdóttir Gunnlaugur Þorláksson Hulda Jeremíasdóttir Ásgeir Valdimarsson Ásta Jeremíasdóttir Þorlákur Þorleifsson Sæunn Jeremíasdóttir Magnús Höskuldsson Dagný Jeremíasdóttir Sigurður Þorkelsson barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð við andlát föður okkar og tengdaföður, Bjarna Valdimarssonar fyrrum bónda, Leirubakka, Landssveit. Jón Bjarnason Ævar Sigurjónsson Kristín Bjarnadóttir Þórunn Bjarnadóttir Carsten B. Möller Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og tengdasonur, Anton Sölvi Jónsson, húsasmíðameistari, Heiðarbrún 11, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 21. október klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Jórunn Jónasdóttir Jóna Björg Antonsdóttir Ellert Þ. Ólafsson Guðrún Anna Antonsdóttir Bogi Jón Antonsson Anton Ellertsson Þorbjörg Bergþórsdóttir Kristrún Jónsdóttir Magnús B. Magnússon Árni Jónasson Birna Margeirsdóttir Guðmundur Jónasson Ína Dóra Jónsdóttir Björg Árnadóttir og aðrir aðstandendur Ástkær eiginmaður, faðir og sonur, Birgir Kristinsson Fagrahjalla 6, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði föstudaginn 20. okt. kl. 13.00. Katrín R. Gunnarsdóttir Þorbjörg Birgisdóttir Kristín B. Birgisdóttir Jóhanna Júlíusdóttir Kristín Hall- dórsdóttir fyrrverandi alþingismaður 67 ára. Ástríður Thorar- ensen hjúkrun- arfræðingur er 55 ára. Súsanna Svavarsdóttir blaðamaður er 53 ára. Steinþór Skúla- son forstjóri Sláturfélags Suðurlands er 48 ára. Hreinn Óskars- son skógarvörð- ur á Suðurlandi er 35 ára. AFMÆLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.