Fréttablaðið - 10.12.2006, Side 2

Fréttablaðið - 10.12.2006, Side 2
Í tilefni af því að 60 ár eru síðan Vísnabókin kom fyrst út kemur hún nú út í sinni upprunalegu mynd. Skemmtileg kvæði og glæsilegar myndir sem glatt hafa margar kynslóðir íslenskra barna. Metsölubók í 60 ár edda.is 2. prentun komin í verslanir Hannes, ertu stefnulaus? Maðurinn sem lést í bílslysi á Stykkishólmsvegi aðfaranótt föstudags hét Valtýr Guðmunds- son. Valtýr var til heimilis að Árnatúni 5 í Stykkishólmi. Hann var 22 ára, fæddur 21. júlí árið 1984. Valtýr var ókvæntur og barnlaus. Lést í bílslysi Einstaklingar og fyrir- tæki mega ekki veita hærri fjár- hæðum en 300 þúsund krónum á ári til stjórnmálastarfsemi og opinberað verður hvaða fyrirtæki styrkja stjórnmálaflokka og fram- bjóðendur í prófkjörum. Alþingi samþykkti í gær lög þessa efnis, sem taka gildi 1. jan- úar, og byggja þau á frumvarpi nefndar sem allir flokkar áttu aðild að. Jóhanna Sigurðardóttir, Sam- fylkingunni, hóf baráttu fyrir setningu laga um fjármál stjórn- málaflokka fyrir ellefu árum og segir daginn gleðilegan. „Ég fagna því að við séum loksins komin í hóp siðmenntaðra þjóða en við hefðum átt að vera búin að þessu fyrir löngu,“ segir Jóhanna. Breytingar voru gerðar á upp- haflegu frumvarpi í meðförum allsherjarnefndar en nefndin fjall- að um málið á fundum í fyrrakvöld og í gærmorgun. Veigamesta breytingin lýtur að ákvæðum um framboð til embættis forseta Íslands. Áður var gert ráð fyrir að frambjóðendur til embættisins gætu fengið framlög úr ríkissjóði til kosningabaráttu sinnar, fengju þeir minnst tíu prósent atkvæða. Allsherjarnefndin vill að betur verði íhugað hvernig standa beri að slíkum framlögum og beinir því til forsætisráðherra að hafa forgöngu um frekari tillögugerð þar um. Guðjón Ólafur Jónsson, Fram- sóknarflokki, sem stýrði vinnu allsherjarnefndar í málinu, segir nýju lögin málamiðlun ólíkra sjón- armiða. Sátt hafi verið um þau í nefnd forsætisráðherra og for- menn flokkanna komið að vinn- unni. „Ég held að þetta verði til að styrkja lýðræðið því ríkisframlög- in gera fleirum mögulegt að bjóða sig fram til þings eða sveitar- stjórna,“ segir Guðjón Ólafur. Jóhanna Sigurðardóttir hefði viljað sjá ákvæði í lögunum um þak á auglýsingakostnað í kosn- ingabaráttu og að framlög ein- staklinga yfir eitt hundrað þúsund krónum verði gerði opinber. „Ég er mjög ánægð með að þessu sé komið á lögbókina og svo verðum við bara að lagfæra agnúana þegar þeir koma í ljós.“ Þingi var frestað í gær og kemur aftur saman 15. janúar. Á fjórða tug frumvarpa voru sam- þykkt í gær og fyrradag, meðal annars um flutning verkefna frá dómsmálaráðuneytinu til sýslu- manna, um ólögmæti skráningar lögheimilis í sumarbústöðum og um lækkun matarskatts. Loksins komin í hóp siðmenntaðra þjóða Frumvap um fjármál og upplýsingaskyldu í stjórnmálastarfsemi var samþykkt í gær. Lögin ná ekki til forsetaembættisins. Þótt Jóhanna Sigurðardóttir geri athugasemdir við nokkur atriði laganna fagnar hún þeim engu að síður. Fjórir ungir Grænlend- ingar voru á föstudag dæmdir fyrir að þykjast vera kúrekar í villta vestrinu og veiða ísbjörn með snöru í ágúst árið 2004. Svo þurftu þeir að kalla til löggildan veiðimann sem skaut bangsann, segir í frétt Jótlandspóstsins danska. Ungu mennirnir fjórir voru dæmdir fyrir að fanga villt dýr, sem er bannað með lögum á Grænlandi. Veiðimaðurinn sem skaut dýrið fyrir þá hlaut einnig dóm fyrir að skjóta dýrið með 22 kalíbera riffli, en ekki löggiltum veiðiriffli. Verða fimmmenning- arnir nú að greiða sektir upp á allt að 62.000 íslenskar krónur hver. Veiddu ísbjörn með snöru Rússnesk stjórnvöld hyggjast senda rannsóknarlög- reglumenn til Bretlands til að grennslast fyrir um lát njósnarans fyrrverandi, Alexanders Litvin- enko, að því er rússneski saksókn- arinn greindi frá í gær. Breska rannsóknarlögreglan fylgist nú með yfirheyrslum í Rússlandi á aðilum tengdum láti Litvinenkos, en Rússar tilkynntu á fimmtudaginn að rússneskri rann- sókn á málinu yrði hleypt af stokk- unum. Þýska lögreglan hefur fundið leifar af geislavirkni í íbúð fyrr- verandi eiginkonu Dmitris Kov- tun, mannsins sem hitti Litvin- enko á hóteli daginn sem hann veiktist. Hann dvelur nú á sjúkra- húsi í Moskvu og hlýtur meðferð vegna eitrunar. Annar Rússi sem hitti Litvinenko á hótelinu, Andrei Lugovoi, hefur ekki sýnt einkenni eitrunar. Litvinenko lést 23. nóvember síðastliðinn úr eitrun af völdum geislavirka efnisins pólon-210. Stuttu fyrir andlát sitt sakaði hann Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að eiga þátt í málinu. Því hafa rússnesk yfirvöld staðfastlega neitað. Rússar senda menn til Lundúna Breska ríkisstjórnin reyndi án árangurs að sannfæra Bandaríkin um að leysa ekki upp íraska herinn eftir að Hussein- stjórnin hafði verið felld í Íraksstríðinu. Þetta sagði Geoff Hoon, fyrrverandi varnarmála- ráðherra Breta, í gær. „Við töldum á lokastigum átak- anna að íraski herinn hjálpaði til við að halda stöðugleika í Írak, og við hefðum viljað að honum yrði leyft að starfa,“ sagði Hoon. Hoon taldi einnig að ákvörðun- in um að fjarlægja félaga Baath- flokksins úr stjórnunarstöðum hafi stuðlað að aukinni starfsemi uppreisnarmanna. Vildi ekki leysa upp her Íraka Tæplega fimm þúsund börn búa við fátækt á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem forsætisráðherra lét gera að beiðni Samfylkingarinnar. Þetta eru 6,6 prósent allra íslenskra barna. Forsaga skýrslunnar er sú að Samfylkingin óskaði eftir því fyrir rúmu ári að úttekt á fátækt barna á Íslandi og hag þeirra yrði fram- kvæmd. Forsætisráðherra skilaði síðan skýrslunni af sér á föstu- dagskvöld. Í henni kemur fram að 4.634 börn á landinu búi í fátækt. Til að ákvarða fátæktina var notast við reikniaðferð OECD sem miðast við svokallaðar miðtekjur. Það eru þær tekjur þar sem jafnmargir eru með hærri og lægri tekjur en miðtekjufólk. Þegar fólk er síðan með aðeins helminginn af miðtekj- um er það komið undir fátækram- örk að mati OECD. Ýmsir þættir hafa áhrif á efnahag barnafjöl- skyldna.Til dæmis eru yngri for- eldrar með bágbornari efnahag en eldri og börn sem búa hjá einstæð- um foreldrum eru líklegri til að falla undir fátæktarmörkin. Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sagði í kvöldfrétt- um Stöðvar 2 í gær að þessi staða væri óviðunandi. Íslendingar væru eftirbátar hinna Norður- landanna sem væru augljóslega að ná umtalsvert betri árangri í að nota skatt- og bótakerfið til að fækka fátækum börnum. Verið er að endurbyggja virkjun sem athafnamaðurinn Jóhannes Reykdal gangsetti í Hamarskotslæknum í Hafnarfirði fyrir hundrað árum. Unnið hefur verið að lagningu aðrennslisstokks og aðrennslis- pípu virkjunarinnar, auk þess sem bygging stöðvarhúss hennar sem staðsett verður í undirgöng- unum undir Lækjargötu er hafin. Reiknað er með að virkjunin verði formlega gangsett í mars eða apríl. Í tilefni aldarafmælisins var haldin lítil athöfn við virkjunina í gær og vatni hleypt á nýju pípurn- ar. Vatni hleypt á pípurnar á ný

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.