Fréttablaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 71
Þ
já
lf
ar
am
en
n
tu
n
Í
SÍ
Fjarnám í þjálfaramenntun ÍSÍ!
Frekari upplýsingar má finna á
www.isi.is
Námskeiðsgjald er kr. 22.000, innifalin námskeiðsgögn
Skráning á linda@isisport.is fyrir fim. 8. feb. nk.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands býður upp á fjarnám í þjálfaramenntun og hefst
kennslan 12. febrúar nk. Námið er almennur hluti 1. stigs menntunarinnar og tekur
8 vikur. Það er öllum opið 16 ára og eldri, gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og er
metið til tveggja eininga í framhaldsskólum. Allar frekari upplýsingar gefur sviðsstjóri
Fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidarsig@isisport.is
Reykjavík og Akureyri
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
ÍS
Í
Þjálfaranámskeið 1a
Helgina 2-4. feb. heldur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þjálfaranámskeið 1a í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið hefst kl. 17.00 á föstud., gildir
jafnt fyrir allar íþróttagreinar og er opið öllum 16 ára og eldri. Skráning fyrir
1. feb. á linda@isisport.is Samskonar námskeið verður haldið í íþróttahöllinni á
Akureyri 9. og 10. feb. nk. Allar nánari uppl. á vidarsig@isisport.is og 460-1467.
Þjálfari 1b, í Rvk 16.-18. feb. og á Akureyri 23.-24. feb.
Þjálfari 1c í Rvk 2.-4. mars og á Akureyri 9.-10. mars
Frekari upplýsingar má finna á
www.isi.is Það var létt yfir Alfreð
Gíslasyni landsliðsþjálfara eftir
sigurinn á Slóvenum og ekki nema
von þar sem Ísland er komið í átta
liða úrslit á HM.
„Þetta var svakalega sætt og
hrikalega mikilvægt. Það snerist
allt um þennan leik og hann urðum
við að vinna. Ég er rosalega stolt-
ur af strákunum,“ sagði Alfreð,
sem var pínu svekktur að hafa
ekki getað hvílt lykilmenn meira
en raun bar vitni en hann hrósaði
þó Markúsi sérstaklega fyrir sína
innkomu.
„Ég var gífurlega ánægður með
innkomu Rolands undir lokin þar
sem hann hreinlega lokaði mark-
inu á þeim tíma sem Birkir var
byrjaður að gefa eftir þótt hann
hafi einnig varið frábærlega,“
sagði Alfreð, sem tók vel á því á
hliðarlínunni rétt eins og venju-
lega. Því var eðlilega spurt hvort
hann væri ekki búinn á taugum?
„Nei, blessaður vertu. Það er þetta
sem heldur manni gangandi. Ég
get samt ekki neitað því að mér
fannst síðustu tíu mínúturnar hel-
víti langar,“ sagði Alfreð og glotti.
Ísland mun í dag berjast um
toppsætið í riðlinum gegn Þjóð-
verjum og sviðið sem bíður leik-
mannanna er ekki ónýtt. Troðfull
tólf þúsund manna höll í leik gegn
heimamönnum.
„Það er allt með Þjóðverjum í
þessum leik og það er gott að þurfa
ekki að fara í leikinn undir mikilli
pressu. Ég mun spila þeim óþreytt-
ari meira í þeim leik og það verður
gaman að taka á Þjóðverjunum,“
sagði Alfreð Gíslason.
Landsliðsþjálfarinn var í skýjunum eftir leikinn:
Síðustu mínúturnar
voru mjög langar
„Þetta heppnaðist vel
og maður getur leyft sér að brosa
núna. Það var allt inni í dag og
svona þekki ég mig best,“ sagði
stórskyttan Logi Geirsson, sem
átti frábæran leik og það sár-
þjáður.
„Ég er að drepast í öxlinni og
í raun alveg einhentur. Ég get
lítið notað vinstri öxlina, bara
rétt til þess að styðja við boltann.
Öxlin er mjög bólgin. Ég vildi
samt ekki að þeir vissu að ég
væri meiddur því þá ráðast þeir
á meiðslin. Ég tók því armbeygj-
ur og annað í upphituninni,
aðeins að „feika“ þetta,“ sagði
Logi og glotti út í annað. Hann
vildi tileinka leikinn feðgum sem
komu til Þýskalands á dögunum
en urðu frá að hverfa. „Þeir vita
hverjir þeir eru.“
Svona þekki ég mig