Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 48
Nýlega flutti Ríkissjónvarpið frétt af manni sem steyptist á höfuðið ofan í brunn svo hann rot- aðist. Slysið varð að nóttu til utan alfaraleiðar en þangað hafði mað- urinn flúið undan hópi manna sem ógnaði honum. Eftir að hann rank- aði við sér tókst honum að klöngrast upp úr brunninum af eigin rammleik en þá tók við önnur píslarganga því ökumenn sem áttu leið hjá hirtu ekki um að bjóða blóðugum manninum far. Ekki höfðu þeir heldur fyrir því að láta lögregluna vita af honum símleið- is. Loks stöðvaði þó leigubílstjóri og ók manninum á slysavarðstof- una. las okkur pistilinn í lok fréttarinnar. Hann sagði að „margir mættu skammast sín” og taldi upp þá sem ógnuðu manninum, ökumennina sem óku hjá og ekki síst borgaryfirvöld sem byrgja ekki brunna. Um áhorfendur hríslaðist eflaust ónotakennd yfir því að geta ein- hvern tímann þurft að treysta á aðstoð samborgara sinna. örfáum árum tóku fréttir um afsagaðar haglabyssur og menn sem muldu hnéskeljar á öðrum að verða fyrirferðarmiklar í fjölmiðlum. Það undarlega var að starfsmenn spítalanna könnuðust ekkert við að þangað hefði neinn leitað með svo illa útleikin hné. 17. febrúar birti Mogginn síðan grein þar sem skýrt er frá því að ekkert bendi til þess að ofbeldisverkum sé neitt að fjölga. Þar er sagt að staðtölur sýni að dregið hafi úr ofbeldi í miðborginni. Aftur á móti hafi ofbeldi tengdum handrukkun- um og á bráðamóttöku Landspítal- ans aukist, auk hótana í garð lög- reglunnar. Sömuleiðis hafi grófum líkamsárásum fjölgað og ennfrem- ur er nú algengara en áður að hníf- um og kylfum sé beitt. sagt, líkamsárásir innan viss hóps eru grófari en áður en þeim fjölgar ekki. Af umfjöllun fjöl- miðla mætti hins vegar oft halda að þarna úti ríkti styrjöld þar sem svarthvítir barnaníðingar laumast um, konur hárreita leigubílstjóra og útlenskir nauðgarar ganga laus- ir en eins og kunnugt er þurfa þeir ekki að flagga hreinu sakavottorði áður en þeim er hleypt í nagl- hreinsanirnar – ekki frekar en íslensku nauðgararnir reyndar. Það er því í raun engin furða að fólk skuli gefa í þegar alblóðugur maður veifar eftir fari og hugsi sem svo að hann hljóti nú að vera sjálfur með síma á sér. Áhugi fjöl- miðla á hvers konar ofbeldi gefur því miður ekki oft tilefni til að æsa upp hjálpsemina í fólki. Og hver á þá helst að skammast sín? Það var barn í dalnum Nú þarftu ekki að vera bíllaus ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 3 66 22 0 3/ 07 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 2 Kópavogur Sími: 570-5070 www.toyota.is Hraðþjónusta Toyota - engar tímapantanir Reglubundið viðhald þarf ekki að vera óþægilegt. Með tilkomu Hraðþjónustu Toyota er það bæði einfaldara og fyrirhafnarminna en áður. Hraðþjónusta Toyota gefur þeim sem eru önnum kafnir kost á að njóta þjónustu sem losar fólk undan óþarfa umstangi og snúningum. Næst skaltu biðja um Hraðþjónustu Toyota og komast að raun um hvað hún getur breytt miklu fyrir þig á annasömum degi. Hraðþjónusta Toyota - ekið inn að ofanverðu, Dalbrekkumegin Hraðþjónusta 1 2 3 www.toyota.is MARKAÐURINN með Fréttablaðinu alla miðvikudaga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.