Ísafold - 17.03.1876, Blaðsíða 4
20
andi Skorradalsvörðtir verði haldinn í r
sumar á kostnað jafnaðarsjóðsins og
fjáreigenda, eptir fyrirmælum tilsk. 4.
marz 1871. Sýslunefnd Húnvelninga |
ætlar að fá alla fjáreigendur i sýslunni, j
tií að skuldbinda sig til að greiða skaða- j
bætur, og sendir hinum sýslunefndun-
um áskoranir um, að snúast vel undir
málið.
Seint f f. m. fannst við skoðanir í
Grimsnesi kláði þar á einum bæ, og
nýlega hefir orðið kláðavart á einurn
bæ f Iíjós (Fossá), og á Móum á Kjal-
arnesi, hjá hreppstjóranum.
— ITIannalát. Hinn 29. jan.
siðastl. andaðist eptir langa og þunga
banalegu, að Útibleiksstöðum við Mið-
fjörð,húsfrú Sólveig Guðmunds-
d ó 11 i r (prófasts Vigfússonar á Mei-
siað), 38 ára gömul, kona fyrv. hrepp-
stjóra lugimundar Jakobssonar (prests
Finnbogasonar á Steinnesi). þeim hjón-
um varð 4 barna auðið; ern 3 þeirra
látin, en 1 lifir í æsku. Sólveig sál.
var kona kurteis og vel menntuð, reglu-
söm, stjórnsöm og dugleg búkona, góð
ogástrík eiginkona og móðir; hún varð
því mjög harmdauði eptirlifandi ástvin-
um sinum og mörgum öðrnm, sem
reyndu tryggð hennar og staðfestu.
Jarðarför hennar fór fram að Meistað
hinn II. f. m. (Aðsent).
Á þorranum snemma urðu 2 menn
bráðkvaddir vestur undir Jökli: Jón
nokkur, bóndi á Hamraendum i Breiðu-
vík, merkur maður og nýtur vel; en
hitt kona f Rifl.
— Veðrátta. Siðan snemma í
fyrra mánuði hefir gengið hjer hrein-
viðrasöm norðurátt, með litlu frosti,
þangað til hinn 14. þ. m., að
frostið herti og gjörði hríð allmikla,
aem slóð I 3 daga. Mestfro^t 15°
á C. (15. þ. m.). Ferðamaður að norð-
an, sem lagði af stað frá Akureyri 5.
þ. m., eða 3 dögum síðar en póstur-
inn, heflr eptir Grímseyingum, sem
voru nýkomnir í land, að menn haft j
þar (í Grímsey) þótzt sjá ýms merki
þess, að hafis mundi allnærri landi.
— Aflabrögð. Síðan um 20. f.
mán. hefir verið dálítill Dskreylingur j
hjer á Innesja-miðum, þá sjaldan geBð
hefir að róa, en opt ekki náð skiptum
hjá sumum. Ekki halda menn það sje
ný ganga. I syðri veiðislöðvunurn
(Garði, Leiru, Vogum o v ) kvað nú
vera farið að aflazt dálitið, og á Mið- j
nesi bezti afli, af nýfengnum fiski. j
Eru menn því góðrar vonar um, að
heldur fari að lifna hjer fyrir norðan
Reykjanes, ef einhvern tima gæfi að
róa.
ÍMlskipin hjeðan hafa litinn afla
fengið enn, enda sjaldan haft næði til
liggja stunda lengur fyrir veðurs sakir.
Austanfjalls er hvergi getið fiskjar,
nema á Eyrarbakka, af ýsti. Loks hefir
nú frjetzt til afla I Yestmannaeyjum,
enda mun hvergi vera jafnmikil þörf a
björginni og þar.
— Frá úflöndiim kom hjng-
að 6. þ. m. frakknesk (iskiskúta (Jeanne,
121 tons, skip<tj. Chapelle), sem hafði
lagt út frá Boulogne 12. f. m. Skip-
stjóri segir Karlunga komna til
valda á Spáni (?). Góð veðrátta á
Frakklandi i vetur, en þó stormasamt,
eins og hjer. Mun eplir þvi eigi þurfa
íðafold keniur út 2 -3w á 32 bi.
um árib. Kofltar 3 kr. árgangurinn (er-
ieudis 4 kr.), etf*k i»t. 20 a. Öólulauti: 7.
h>ert expl.
að óttast ísalög ytra í vetur, eins og í
fyrra, enda höfðu kaupför verið ný-
komin úr Eystrasalti tii Bonlogne, er
skipið fór þaðan.
2000 fiskjar var skip þetla búið að
afla þá fáu daga, siðan það kom hjer
að landinu.
Ilitt og þetta.
Skírnir hefir getiS norðurhafsleita þeirra
Weyprechts og Payers frá Austurríki áskip-
inu Tegethoff árin 1872—74. þeir fundu, svo
sem kunnugt er, ókennt land allmikið, 200
vikur sjávar fyrir norðan Novaja Semija, en
100 mílur frá Grænlandi, og kölluðu Franz-
Jósefsland, í höfuðið á keisara sínum. Sem
% "If
næmmágeta, kunnu þeirfrámörgu aðsegja
úr ferðalagi sínu þar norður í hinum ægilega
klakageim, og hefir Payer meðal annars lýst
kuldanum 4 Franz-Jósofslandi á góunniíhitt
eð fyrra (1874). Hann var þá á sleðaför til
að kanna landið. Einn dag var 40'h° frost
á R. þó Yoru þeir Payer og fjelagar hans
þá á fótum og úti fyrir sólaruppkomu, til
þess að athuga veðurfarið oggjöra uppdráttu
af því, sem fyrir augun bar. Lætur Payer
mikið af því, hve fagurt hafi verið að horfa
á, þegar sólin rann upp. Húu var í úlfa-
kreppu, og hafði þeim fjelögum aldrci sýnzt
hún jafnbjört. því olli kuldinn. þeir höfðu
með sjer romm til að svala sjer á, og urðu
þeir að varast að láta bikarana koma við var-
imar; það hefði farið með allt skiunið af þeim.
En úr romminu var allur máttur; það var
bragðlaust .og þykktsem lýsi. Ekki varheld-
ur til neins að reyna að reykja vindil eða úr
pípu ; vindillinn varð óðara að gaddi í munn-
inum á manni. Nokkiir fjelagar Payers báru
gull-medaljónur á beru brjóstinu; þær sviðu
undan sjer eins og glóandi járn. Svo segir
Payer, að STona mikill kuldi dragi allan kjark
úr manni; maður reiki og geti varla á fót-
unum staðið og stami eins og drukkinn mað-
ur; ekki geti maður heldur hugsað neitt af
viti. Onnur verkun kuldans er sú, að allur
raki gufar burt úr líkamanum, og þyrstir
mann þá ákafloga. Mörgum vorður á að jeta
snjó við þorstanum, en það er mjög báska-
legt; þvi að við það hleypur bólga í hálsinn,
góminn og tunguna. Auk þess er snjó-átið
ónýtt við þorstanum; hann minnkar ekki, hvað
miklu sem maður ryður í sig af snjó. Svo
var gufan mikil, semlagði út úr kroppnumá
þeim fjelögum, að engu var líkara en sæi
þjettan jóreyk, þar sem þeir voru á ferðinni,
og höfðu þó allir yfir sjer þykkva skinnfeldi.
Gufa þessi fraus óðara í loptinu, og varð að
klakakomum, og heyrðist í, þegar þau hrundu
til jarðar. þrátt fyrir hinn mikla raka f lopt-
iuu, þóttust þeir fjelagar kenna mjög óþægi-
legs þurks. Hvað lítið hljóð sem var, barst
það óvenjulega langt, og heyrðist 100 skref
álengdar ef íalað var í venjulegum róm, en
rjett hjá heyrðist ekki þótt skotið væri úr
byssu, einkum á fjailatindum. Kennir Payer
það ákaflega miklum loptraka. Kjöt það, er
þoirhöi'ðu með sjer, fraus svo, aðkljúfaroátti
í hellur, og kvikasilfrið mátti hafa í byssu-
kúlur. Lykt og smekkur sljóvgaðist, líkam-
inn varð máttvana, augun lukust ósjálfrátt
aptur og frusu þegar saman; stæði maður við,
hvarf þegar öll tilfinning úr iljunum. Á því
furðaði þá, að ekki kom nein hjeia í skegg-
ið; en til þess var sú orsök, að andardrátt-
urinn varð að snjó undir eins og út kom úr
munninum, og fjell tiljarðar. þvf tóku þeir
eptir, að dökkt skegg hvítnaði í kuldanum.
Ekkort segir Payer verja kuldanum nema hlý
föt, og ekki sje til neins að bera feiti á lík-
amann eða sverta hann, sem margir hafa tal-
ið gott f kulda.
— Ráð til að verða gamall. — f fyrra
endaði danskur glersölumaður, er Ronge keit-
ir, hundraðasta árið, og sendi konungur vor
honum dannebrogskross í minningu þess.
þegar hann kom að þakka konungi sendingu.
spurði hann Ronge, hvernig hann ímyndaði
sjer að á því stæði, að hann lifði svona lengi.
Ronge svaraði: „það er því að þakka, yðar
hátign, að jog hefi aldrei matazt ósvangur
aldrei drukkið óþyrstur, aldrei lagzt til svefns
ósyfjaður, og aldrei haft óhóf á neinu þessu“.
— Læknir: „Hvernig þykir þjer inntak-
an?“ Sjúklingurinn: „Fyrsta skeiðin er
slæm“. Læknirinn: „Taktu þá ekki fyrstu
skeiðina“.
Augiýsingar.
— Hjer með gef jeg til vitundar
m'nurn heiðraðu landsmönnum nær og
fjær, að jeg, ef G. 1., hefi ( áformi eptir
miðjan maímántið að opna mitt nýja
v eiliugainis
„GEYSIR“,
sem jeg hefi byggt á Skólavörðustign-
um hjer i bænum (gagnvarl þinghus-
inu). Hefi jeg ásett mjer að veiia
gestum minum allan þann fararbeina,
sem þeir við þurfa, og fá má á slik-
um stöðum erlendis, svo sem mat og
drykki, svo og sctngur handa 20 manns
og þaðao af fleirtim með timanum.
Verði lofa jeg svo lágu, sem jeg sje
mjer framast fært að ákveða, sem og
vörugæðum. Sjálfsagt er, að við næt-
urgestnm verður tekið til kl. 12, og á
hvaða tíma nælur sem er við þeim
ferðamönnum, sem koma til bæjarins
eptir þann tíma, og beiðast gistingar,
! ef þá pláss leyfir.
Reykjavík, í marz 1876.
Páll Eyjúlfsson.
— j næstliðnu haustrjettum varmjer
dregin hvít ær, veturgömul, með mark:
hálftaf fr. hægra, stúfrifað og biti fr.
vinstra. Sá, sem geiur helgað sjer ó-
skilakind þessa, má vitja hennar hjá
undirskriftiðum til maíloka, gegn borg-
un á öllum tiliieyrandi kosinaði.
Hæli í Gnúpverjahreppi, 28. febr. 1876.
Einar Gestsson.
— Inn- og útborgnn sparisjóðsius
verður fyrst um sinn á skrifstofu land-
fógetans á hverjum laugardegi frá ki.
4—5 e. tn.
(ýTgf’ Nærsveitamenn geta vitjað ísafold-
arí apótekinu.
Ársverbib greifcist í kauptib, eha þa hslit á sumarmáluin, hálft á
haustlestum Auplýsiunar eiu tekuar í blaíiib fyrir 6 a. smileturs-
iínau eba jafnmikib rúm, en 7 a meb venjulegu meginmálsletri. —
Skrifstnfa ísafoldar er í Dokturshúainu (»' Hlifcarhúsum).
Kititjúri: Björn Jónsson, cand phil
Landsprentamif'jan í Keykjavík.
Einar pórðarson.