Ísafold - 22.01.1910, Blaðsíða 1

Ísafold - 22.01.1910, Blaðsíða 1
Kernui út ýmist einu sinni efta tvisvar l viku. Verö árg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis 5 kr. eða l1/* dollar; borgist fyrir mibjan júlí (erlcndis fyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skrifleg) bundin vib áramót, ar ógild nema komln sé til útgefanda fyrir 1. okt. aaupandi skuldlaus vib blabib. Afgreiösia: Austurstrœti 8. XXXVII. árg. Reykjavík laugardaginn 22. jan. 1910. 5. tölublað I. O. O. P. 91128872 Forngripasafn opiö sunnud., þrd. og fmd. 12 2 íslandsbanki opinn 10—2*/. °S B K. F. D. M. Destrar- og skrifstðfa frá 8 árd. til 10 siðd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 >/• síðdegis Landakotskirkja. ffuðsþj. 9'(’ ,°ng., 6 Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10 /• 12 og Landsbankinn 11-2 >/•, Vh-K'Þ- Bankastj. við 12-2 Landsbókasafn 12—8 og B—8. Utlán 1—3 Land88kjalasafniö á þrd. fnad. °S l^* 12—1 Lækning ók. i læknask. þriðjd. og föstd. 11—12 Náttúrugripasafn opið 1 >/»—2 ■/« á sunnudögum Tannlækning ók, Pósth.str. 14, 1. og 8. md. 11 1 íksti Isafoldar, Austurstræti 8. Alls konar band fljótt og vel af hendi leyst. — Verð hvergi lægra. Niðurstaða Landsbankanefndarálitsins. Voðalegt kviksyndi. Tjónið fnll 400,000 kr. Bankinn á þó fyrir sknldum. Nii er loks lokið við álit banka- rannsóknarnefndarinnar. Það er nú verið að prenta það. ísafold hefir áit kost á að kynna sér það og hefir gert sér þessa grein fyrir merg málsins í því mikla skjali, það verður allmargar arkir. Hvað bankastjórnin hefir fyrir sér gert. i Lánað út varasjóð bankans, þvert ofan í lagabann- 2. Bakað bankanum fjártjón, sem nemur fullum 400,000 kr. í ófáau- legum lánumhjá þurfamönnum, þrota- mönnum og öðrum öreigum. 3. Látið viðgangast árum saman að bankareikningurinn tilfænr morgum þúsutidum meiri víxla- og ávísanaeign en til hefir verið og er. 4. Vanrækt herfilega stórfé í sjálf- skuldarábyrgðarlánum, enda mikið aí þeim ólöglega veitt, eftir skýrslu banka- stjórnarinnar sjálfrar. 5. Látið viðgangast, að mjög mik- ið aí víxlum hefir verið ólöglega keypt, þar á meðal starfsmenn bankans gert það. 6. Haft bókfærsluna suma i ólagi, °g látið alls ekki halda sumar mjög áriðandi bækur. Þetta sýnir í stuttu máli, að banka stjórnin hefir brotið lög og reglugerð bankans 1 tnjög mikilvægum atriðum, vanrækt mjög stórmargar, mjög svo mikilvægar skyldur sínar og bakað bankanum stórtjón. Hvernig nefndin veit og rökstyður þetta. Hún veit það af bókum bankans skjölum og skilríkjum, af munnlegum svörum bankastjórnarinnar og jafnóð um bókuðum, af vandlegum eftirgrensl- unum bankans eða alkunnum stað- reyndum. Og mun hún geta staðfest skýrslu sína með eiði, ef rengd er. Um nánari útlistun alls þess, sem að iraman greinir, verður að vísa í nefnd- arálitið sjálft. Hér skal að eins gerð nánari grein jyrir hinu geysimikla tjóni, er vitnast lefir nú þegar. Bankinn á 1400 þús. kr. útistand- andi í sjálfskuldarábyrgðarlánum og víxlum hjá tómum öreigum, nokkuð mörgum hundruðum manna, þar á meðal þurfajnönnum, gjaldþrotamönn- um, gjaldþrota búum, mönnum, sem ekkert hefir fengist hjá með fjárnátns- gjörð og ýmsum öðrum sannanlega eignalausum mönnum (daglaunafólki, vinnufólki, bláfátækum fjölskyldumönn- um) og enn öðrum, sem eiga nokkuð til, en þó ekki fyrir skuldum. En viðriðnir s u m þessi lán eru efna- menn eða bjargálnamenn eða fyrir þeim er annar veðréttur í fasteign; og fyrir þ a ð telst nefndinni svo til, eftir mjög vandlega rannsókn og eftir fengnum skilríkjum og gögnum, að ekki sé af framangreindri fjárhæð ó- hjákvæmilega tapað meira en fullar 400,000 kr. Lögleysan eða lagabrotin, sem nefnd eru í 4.— 5. tölul., eru þau aðallega, að þar sem lög bankans áskilja ber- um orðum og skýlausum, að meiri hluti bankjstjórnar veiti sérhvert lán, ef gilt skal vera, þá hefir viðgengist árum saman og mikil brögð að því verið, að með það vald hefir verið látinn fara 1 maður úr bankastjórn- inni (framkvæmdarstjóri) eða jafnvel e n g i n n , heldur hafa starfsmenn bankans beitt því með sínu eindæmi og eftirlitslaust. Þeir höfðu, er það atriði var rannsakað í haust, veitt 260 vixillán, sem námu 140 þús. kr., af 1250 víxillánum, er bankinn átti þá alls úti og námu rúmri 1 milj. Þeir lána þá, starfsmennirnir, hér um bil 5. hvert víxillán, þvert ofan í lög bank- ans, sem engum veita heimild til slíks nema bankastjórninni sjálfri og leyfa henni alls ekki að fela það öðrum. Þetta gera þeir alveg eftirlitslaust; hefðu getað þurrausið bankann þann veg, ef svo hefðu gerðir verið; og sjá allir, að það er engisverð vörn þar í móti, að bankastjóri s e g i s t eftir á mundu hafa veitt þessi láu (vixillán). Þessar tvær tegundir lána, hinar vandamestu og aðgæzluverðustu, hafa verið i dæmafáu sukki, nær eftirlitslaus af gæzlustjóranna hálfu og í frámuna- legri vanhirðu. Bankinn á þó fyrir skuldum. Hvernig er hægt að sanna það ? Blátt áfram með því að visa í síð asta reikning bankans, sem sýnir, að hann hefir þá átt afgangs skuldum 635 þús. Þó að þar frá sé dregnar þær nokkr- ar (allmargar) þúsundir, sem eru of- taldar í vixileign og ávisana, þá er sú fjárhæð þú fullum þriðjungi- meiri en framangreint tjón, 400 þús. kr. Það er aðgætandi, að framangreind- ar 635 þús. má að því leyti til kalla varasjóð, að þær fara til að bæta tjón ið, smámsaman. Bankinn er ekki gjaldþrota fyr en sú fúlga er upp' étin. Og þó ekki þá jafnvel. Varasjóðs-nafnið er að eins rang- nefni að því leyti til, sem varasjóður hefir aldrei verið reglulega stofnaður eða honum haldið sér, eins og lög mæla fyrir, — aldrei verið varðveitt- ur í lögmæltum, auðseldum verðbréfi um, er séu til taks óðara en þarfnast eða á liggur. »Og þó ekki þá jafnveU, sögðum vér fyrir stundu. A u k varasjóðs á bankinn nefni- lega landssjóð að bakhjarli, með hans s/4 milj. seðlaábyrgð beint lögmæltri, auk þeirrar alveg sjálfsagðrar siðferðis- legrar ábyrgðar að láta ekki nokkurn einstakan mann missa 1 eyri af inni- eign í 1 a n d s-stofnun, þ j ó ð-stofnun. — Það er lítt hugsanlegt, að nokkur umráðandi landssjóðs, nokkur þing- maður léti sér detta í hug að hafa landssjóð undan þ e i r r i ábyrgð. Þar kemur fram munur á 1 a n d s- banka og privat-banka, — h a n s eig- endur lúta að eins strangri lagaskyldu og frekara ekki. Þess vegna megainni-eigendur í Landsbankanum vera alveg óhrædd- ir og áhyggjulausir, h vernig sem fer. Þ a ð vita allir og hafa vitað alla tíð, e i n s þeir sem reyndu að fá gerðan aðsúg að bankanum bæði í vor, er rannsóknarnefndin var skip- uð, og eins í vetur, er bankastjórn- inni var vikið frá. Þ v i það var ekkert annað en tilraun til að hræða landstjórnina til að hætta við rann- sóknina og taka aftur frávikninguna. Það og ekkert annað, enda mistókst alveg. Hættan gat þá að eins eða því að eins komið farm, ef stjórnin hefði e k k i gert skyldu sína, heldur látið hið botnlausa sukk halda áfram, kvik- syndið dýpka æ meir og meir. Hennar sjálfsögð skylda var að sker- ast í leik og láta rannsaka allan hag bankans, er grunur lagðist á, að honum væri illa stjórnað, jafn- vel háskalega illa, og láta ekki hræða sig frá því með þeirri villukenningu, þeirri blekkingu, að rannsóknin sjálf m. m. væri háskalegt tilræði, háska- leg árás á lánstraust bankans og lands- ins, í stað þess að hún var e i n a ráðið til að b j a r g a því, bjarga bankanum. Það er sannleikurinn um á- stand hans, sem bjargar honum. Hann gerir það, þótt ljótur sé. Hitt hefði verið háski, valdið hættu- legri tortrygni, ef ekki hefði n ú verið sagt nema undan og ofan af, almenn- ingur 1 e y n d u r tjóninu, annaðhvort ekkert um það sagt eða það látið vera miklu minna en er, eftir því sem næst verður komist. Þ a ð hefði valdið eðlilegri hræðslu. Nú, er sagt er frá því eins og það er, verður enginn hræddur. Þeir sjá allir, að tjónið er vel viðráðanlegt, og vita það og finna, að hollast er og karlmannlegast, að horfast beint í augu við það og vera einráðinn að ganga vasklega á hólm við það og bera af því banaorð. Búa jafnframt svo um hnúta, að það g e t i ekki að höndum borið annað sinn, neyta til þess þeirra ráða, sem hrífa: óbifan- legrar reglusemi, árvekni, ráðdeildar, óskeikuls, afarstrangs eftirlils. Gera aldrei gæzlustjórn né endur- skoðun að guðsþakka-bitlingum, heldur meta það afaráríðandi starf, trúnaðar- hlutverk úrvalsmanna til þ e i r r a hluta, er sízt þurfi að óttast að slegið verði slöku við og þar með brugðist trausti þings og þjóðar. -9S6- Arfur Leopolds kommgs. ---- Kh. 8% '10. Leopold Belgjakonungur hafði látíð eftir sig mikil auðæfi, en það fer mestalt til ekkju haus, CarolineVaughan barónessu og barna þeirra þriggja. Dætur hans þrjár, Louise, Stephanie og Clementine, fá ekki nema 15 miljónir í arf samkv. arfleiðsluskrá föður þeirra. Hitt hafði hann gefið konu sinni í lifanda lifi, en það munu versi ógrynni fjár. Leopold gekk að eiga þessa seinni konu sína fyrir fáum árum og kvænt- jst henni »til vinstri handar«, sem kallað er. Hún var fátæk portnara- dóttir frönsk, en óvenjufríð sýnum. Unni Leopold henni hugástum og hætti frillulifanði eftir að hann kynt- ist henni. Leopold átti í miklum deilum við dætur sínar tvær, Louise og Stephanie, og bannaði þeim að koma fyrir sín í umbrot nálægt íslandi og síminn slitn- aði þá meðal annars. Líklega hefir þá fallið skriða ofan úr hlíðinni við Öskjuvatnið og valdið þessu slysi. Jarðfræðingur annar, sem rannsakaði staðinn árið 1908, komst og að sömu niðurstöðu á annan hátt. Sveinbjðrn Sveinbjðrnsson tónskáld frá Edinborg flytur sig al- farinn með konu og börn til Kaup- mannahafnar í vetur. Ætlar hann að setjast þar að og fást við söngkenslu. -fiS/S/Sr- Leopold II., hinn látni Belgjakonungur augu. Honum þótti þær vera léttúð- ugar og sóunarsamar, en það átti ekki við karlinn. Auk þess reiddist hann Stephanie fyrir að hún hafði gifzl, þvert ofan f vilja hans, óbreyttum greifa, þá er hún var orðin ekkja Rudolphs krónprinz af Austurríki. Dætur karlsins eru æfar út af arf- leiðsluskránni og ætla nú í mál. Sumir segja, að Leopold sé að eins kirkjulega giftur Vaughan barónessu, en það er ekki nóg í Belgíu. Aftur segja aðrir, að hann sé hvorttveggja kirkjulega og borgaralega, og er það sennilegra, að Leopold hafi gengið vel frá þessu fyrir dauða sinn, því að maðurinn var séður og hefir líklega búið svo um hnútana, að ekki verði teknar eigur af ekkju hans. Þykir því líklegast að konungsdætur tapi málinu. — En Vaughan barónessa er farin burt úr höll sinni í Briissel með alt sitt til Parísar og ætlar að dvelja þar eftirleiðis. Hafði hún naft með sér mörg vagnhlöss af auðæfum og dýrgripum. Kosningabaráttan á Englandi. ---- Kh. '10 Ensku stjórnraálamennirnir hafa ekki haft langt jólaleyfi. Þeir hafa hamast sem ljón á þingmálafundum um alt landið og altaf harðnar eftir því sem nær dregur kosningunum, en þær fara fram 15. þ. m. Einkum þykja framsóknarmenn berjast af miklu kappi og er svo sagt, að aldrei hafi neitt því líkt sést frá því á dögum Gladstones gamla. Lávarðarnir fara sér öllu hæg- ara, enda hafa þeir orðið fyrir óhöpp- um, því að hægrimannaforinginn, Bal- four, hefir legið i illkynjaðri inflú- V igslubiskupa hefir konungur skipað 27. f. mán. (þriðja í jólum) þá síra Valdimar pró- fast Briem í Skálholtsbiskupsdæmi hinu forna og síra Geir prófast Sæ- mundsson í Hólabiskupsdæmi. Loyd George jjármálardðgjafi Breta, enzu um jólin og auk þess eru vernd- artollsmennirnir svo að segja höfuð- lausir, því að Joseph gamla Chamber- lain er altaf að hnigna, og getur hann svo að segja engan þátt tekið í bar- áttunni — og þar við bætist, að ekki blæs byrlega fyrir lávarðana úti í kjör- dæmunum. Hefir svo ramt kveðið að þvi, að þeir hafa verið píptir niður sumstaðar á þingmálafundum og reynst ókleyft að fá að tala. En hinir eiga marga öfluga og atkvæða- mikla menn, svo sem þá ráðgjafana Churchill, Loyd George, Asquith, Grey, Ure, Haldane o. fl. Þeir vaða nú landið þvert og endilangt og halda marga þingmálafundi á hverjum degi. Slysið í Öskju 1907. ----- Iíh. 1% '10. Hvernig fórst dr. v. Knebel? Eins og menn muna fórst þýzkur jarðfræðingur dr. v. Knebel og annar maður með honum við fjallið Öskju árið 1907, meðan fylgdarmaðurinn reið norður á Akureyri til þess að út- vega matvæli. Þrátt fyrir langa leit, fundust engar menjar af mönnunum og enginn vissi, hvernig þeir hefðu farist með neinni vissu. Nú hefir Þjóðverji einn, hr. Krebs, reynt að skýra slysið i »Deutsche Rundschau fúr Geografi* og kennir það jarðskjálfta og jarðeldaumbrotum. Hann bendir á að menn hafi orðið varir við snarpan jarðskjálfta á jarð- skjálftamælum út um Evrópu einmitt 10. júlí 1907, daginn sem þeir v. Knebel fórust. Aðalhræringarnar urðu á Filippseyjunum og það er talið athugavert, að i marz 1875, voru líka jarðskjálftar og umbrot á svæði, sem liggur nærri andfætis íslandi, á sama tíma og Askja gaus gosinu mikla. í júlí 1907 voru og sams konar Glímumennirnir erlendis. Skömmu fyrir nýárið voru þeir i Odessa suður á Rússlandi að sýna listir sínar. Þar kom það fyrir eitt kvöld, að svoli einn meðal áhorfenda ruddi sér fram á leiksviðið og krafðist þess að fá að berjast við glímumennina með hníf — hrópaði, að vörn þeirra mundi vera eintóm svik. Áhorfendur æptu, að maðurinn yrði að fá áð reyna sig við Islendingana — gekk svo litla stund, unz einn íslendinganna hróp- aði, að það væri svo sem velkomið. Hófst svo bardaginn. Rússinn rudd- ist að íslendingnum með hnífinn blik- andi á lofti. En áður 10 sekúndur voru liðnar lá Rússinn æpandi og skrækjandi á gólfinu með brotinn handlegg, en íslendingurinn stóð yfir honum sigri hrósandi með morðkuta hins í hendi, og áhorfendur ætluðu að keyra niður húsið með lófaskell- um. Daginn eftir þetta afrek heimsótti lögreglustjórinn í Odessa glímumenn- ina og bað þá kenna lögregluforingj- um bæjarins varnarbrögð sín. Það gerðu þeir. Voru í Odessu vikutíma og kendu lögregluliðinu glímubrögðin. Svo mikið orð fór af þessum bar-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.