Ísafold - 04.11.1911, Blaðsíða 2

Ísafold - 04.11.1911, Blaðsíða 2
266 ISAFOLD Fræðslumál. Eftir sira Steffín M. Jónsson á Aaðkúla. I. Það hafa tiltölulega fáir ritað um hið nýja fræðslumálafyrirkomulag vort íslendinga, og er undarlegt, þar sem það mál er eitt merkasta og mikils- verðasta mál fyrir hvern einstakling, hvert sveitarfélag og fyrir þjóðarinnar andlegu framtíð. Það veigamesta, sem eg hefi séð um það mál ritað, eru blaðaritgjörðir eftir þá síra Ófeig Vigfússon, síra Jóhannes Lynge, síra Ólaf í Hjarðarholti og Sigurð Jónsson barnakennara i Rvík. Þessi upptaln- ing sýnir, að einkum hafa prestarnir gert sér málið að íhugunarefni. Slíkt er og eðlilegur gangur, að mér finst, því til þessa tíma hafa prestarnir átt að vera og verið sjálfsagðir alþýðu- uppfræðarar; og enginn mentaður ís- lendingur mun neita því, að drýgst hafi dregið íslenzka alþýðu það upp- fræðingarljós, sem hún hefir fengið alt til skamms tíma frá klerkdómi landsins, hinni kennimannlegu stétt þess. Eg er einn af þeim klerkum, sem, þó ekkert hafi opinberlega ritað um þetta mál, hefi hugsað það töluvert; og af því eg ann allrt sannri fræðslu, og veit, að landi voru og þjóð yrði til sannrar blessunar sannmentuð al- þýða, þá dirfist einnig eg að leggja orð í belg út af hinu núverandi fræðslu- málaástandi voru. Eg vil undir eins lofa því að reyna að tala um málefni en ekki menn. Málið er fyrir mínum huga svo alvarlegt, svo hreint og heilagt mál, að í það má eigi blanda flokkseitri eða persónulegum óvildar- sora, og eg get lýst yfir því nú þeg- ar, að eg veit, að allir þeir menn, sem drýgstan hlut hafa átt að því að undirbúa og koma þessu máli í laga- framkvæmd, eru mætir menn, og að þeim hefir gengið gott eitt til. Hinn núverandi umsjónarmaður fræðslumála vorra er af flestum þektur að góðu einu, að áhuga fyrir alþýðufræðslunni, elskaður og virtur af flestum sinna mörgu lærisveina, og mér hefir hann verið frá skólaárunum mætur góð- vinur, sem eg ann. Eg tek þetta fram af því, að þó við séum gamlir og góðir »kammeratar« og eftir von- inni verðum það þenna litla tíma, sem við eigum eftir að lifa, þá hygg eg að við getum eigi fylgst eins vel að í skoðunum okkar á fræðslulög- unum frá 1907 og fræðslumálafyrir- komulaginu, er þau setja, eins og í ýmsu öðru. Með gömlum og góðum vinum viljum vér helzt geta fylgst að í vorum heitustu áhugamálum, og eg hefi reynt af öllum mætti að samrýma fræðslulagaákvæðin við fræðsiumála- sannfæringu mína, en þvi meira, sem eg hefi reynt það, því meira djúp hefir orðið á milli laganna og mín. Eg hugsaði framan af, að ógeðið, sem eg hafði á þeim, væri af því að eg, sem gamall maður, gæti ekki lengur fylgst með tímans framþróun; eg væri, eins og körlum er títt, »lauda- tor temporis acti«, eða með öðrum orðum þætti alt bezt, sem f]arst er, en alt verst, sem næst er, steingerð- ur afturhaldsseggur; en svo þegar eg heyrði ýmsa unga, greinda og ment- aða framfaramenn »upp á sitt ið bezta* tala um þetta, þá voru þeir ekkert betri, ef ekki verri en eg. Þá lifnaði eg allur við og fann, að eg var enn ungur i anda, hvað sem smekknum fyrir fræðslulög- unum leið. Og eg eignaðist þannig marga andans bræður, sem eg hafði aldrei séð eða heyrt. Af þeim röddum, sem heyrðust um þetta barn, nýtt fræðslufyrirkomulag, áður en það fæddist, og áður en það datt ofan i brunninn, hefir engin verið mér eins hugðnæm eins og röddin hér um árið frá prestinum i »Fjallk.« um prestkennarana. Það var að minu viti hrópandans rödd, sem var þess verð að eyru væru léð. Þessa rödd þögðu þeir, sem helzt áttu að hvessa eyrun, stjórn og þing og blöð, í hel. Það var þó orð í tíma talað, þá hefði landið ólíklega nú verið í x/8 miljónar kr. sjóðþurð, sem hin nýju fræðslulög, nýr kennaraskóli meðal annara hluta, hafa hjálpað til að koma landinu i, þá stóð til að bæta sultarkjör prest- anna, og vel má segja að það hafi verið geit að miklu leyti; en hefði þeirri rödd verið hlýtt, hefði sú þarfa bót komið ekki eingöngu hinum fáu prestum að haldi, heldur þjóðinni að- allega, tugir þúsunda króna hefðu spar- ast, sannur kristindómur, framfaralyfti- afl hverrar þjóðar, eflst, trygging fengist fyrir ódýrri, en haldgóðri undirstöðu alþýðufræðslu, söfnuðirnir ekki gerðir nær prestþjónustulausir fyrir hóflausa prestakalla-samsteypu, og prestunum gert mögulegt að vera prestar og æskulýðsuppfræðarar. Alt þetta var þagað í hel, fræðslulögum og fordýr- um barnakennaraskóla dembt á, prait- unum með 9—12 ára vísindalegri mentun stíað frá allri æskulýðsfræðslu, en hún fengin í hendur unglingum með 18 mánaða barnakennaramentun, já því »monopol« skotið inn i lögin, að þessir æskufræðarar skuli sitja fyrir öðrum, sem fræðslulagakennarar, og fastákveðin laun þau, er minst megi bjóða þeim, kr. 6 upp í 24 um viku hverja, auk fæðis og húsnæðis, hita, ljóss og aðhlynningar o. s. frv. o. s. frv. Eg ætla ekki að eyða orðum að þess- ari ráðstöfun, slíkt dæmir sig sjálft, hvort viturlega og búmannlega er hér að farið. Hin fjármunalega eftirtekja og aukning hinna andlegu ávaxta af þessari ráðstöfun verða framtíðardóm- arar hennar. Nú er of seint, eða eins vel of snemt, að gremjast út af þessu, en á sínum tíma sér þjóðin vonandi, að augu hennar voru blind, er hún sá ekki hvað með þessu var verið að gera, og eyru hennar dumb, að hlusta ekki betur á viðvörunarröddina. En vorkunn er þjóðinni, þó hún þegði að mestu, því ötullega og rösklega var gengið að þvi að demba þessum nýju framförum á; þjóðin hafði svo sem ekki efni á að lifa lengur í fáfræð- inni, og ekki var vel gert að standa henni í ljósi fyrir öllum þeim mikla hagnaði, er fræðslulögin bera í skauti sínu. Þjóðin þurfti ekki að hafa tíma til að átta sig, hún gat eins gert það seinna, þegar nýja kennarastéttin var komin á; og svo var vonin þessi, að þó einhverir væru að malda á móti, og efast um að í þessu væru sannar framfarir fólgnar, og teldu að alt þetta yrði of dýrt samanborið við ávextina, þá sættu menn sig við það með tímanum, vaninn og timinn mundi hér sem oftar verða allra meina græðari. Eg býst því ekki við, að þó í næstu framtíð eitthvað yrði breytt til um, að það yrði í þá átt að taka upp stefnu Fjallkonuprestsins. Leið- togarnir og nýtizku framfaramennirn- ir segja, að nú sé réttast að láta reynsl- una skera úr um gagnsemi fræðslu- laganna, fara ekki að breyta til undir eins aftur. Þetta er fyrir minni sann- færingu sama sem að lofa þjóðinni að reka sig á, vita hvort hún meiðir sig tilfinnanlega eða ekki. Síðasta al- þingi komst að þeirri niðurstöðu, að þetta væri réttast í bráðina, og drap því niður viðleitni síðustu stjórnar til þess, að laga agnúana áður en þeir meiddu tilfinnanlega. Eg meina ekki með þessu það, að mér hafi líkað að öllu frumvarp stjórnarinnar til nýrra fræðslulaga, en aðalstefnan líkaði mér vel úr því sem gera var, 0: úr þvi sú tillaga, sem bezt var að mínu áliti, gat ekki komist að, enda væri hún jafnvel vel samrýmanleg við aðalstefnu þá, sem frumvarp stjórnarinnar hefir, unglingaskólana. Þegar eg hefi sagt þetta, hefi eg þegar lýst yfir aðalstefnu minni í alþýðufræðslumálinu, þ. e. unglingaskólar reistir á grundvelli nauðsynlegrar barnafræðslu. Þjóðin er fróðleiksgjörn, vill ment- ast, þetta er óhrekjandi sannleiki, og um þessa mentun, alþýðumentunina, hefir verið ritað mikið og margt, af lærðum sem leikum. Alþýðan hvað eftir annað beðið um »meira ljós«. Og fjarri sé mér að neita því að mörg heiðarleg viðleitni hafi verið sýnd til þess, að verða við óskum hennar, gagnfræðaskólar settir á stofn, kvennaskólar fengið stórfé úr lands- sjóði, unglingaskólar, sem upp hafa komið hér og hvar, notið töluverðs styrks, barnaskólar og farkennarar styrktir o. s. frv. Þetta virðist nú alt vera gott og blessað, að ógleymd- um stórfúlgunum til æðri skólanna, sérskóla bænda-, sjómanna og verzl- unarmanna og síðast en ekki sízt hins nýja kennaraskóla, og fleiri fræðslustofnana. En þrátt fyrir þetta alt, hygg eg raddir alþýðunnar um almenna fræðslu, alþýðufræðslu í eig- inlegum skilningi, hafa eigi enn verið heyrðar. Mér er sagt, að einmitt fræðslulögin frá 1907, heyri fyllilega þær bænir. Titill þessara laga er lög um fræðslu barna, en ekki lög um «//>ýdttfræðslu, en svo skín þó víða út úr lögunum sjálfum, að þau séu (iginlega a//>ýJíífræðslulög, og aftur ví )a að þau séu að eins barnafræðslu - lcg d: veiti undirstöðu undir eigin- lega alþýðufræðslu. Eg hefi oft heyrt í viíræðum um lög þessi þennan sama rugling, að meðhaldsmenn þeirra skcða þau hvorttveggja undir eins, bamafræðslulög og alþýðufræðslulög, en geta þó ekki afneitað skírnarnafn- inu bamafræðslulög, enda þarf ekki annað en l'íta á fræðslualdurinn 10— 14 ár, að það eru aðeins börnin, sem eiga að njéta, en ekki alþýðan í heild sinni, en hvergi gera lögin ráð fyrir framhaldsfræðslu eftir 14 ára aldur. Alþýðumaðurinn hefir þvi fengið sitt afskamtaða, lögboðna fræðsluuppeldi, þegar hann er 14 ára; hvort hann aflar sér meiri fræðslu eftir þann tíma eða ekki, kemur ekki þessu máli við, það er á sjálfs hans valdi. Þetta er, að mér finst, einn af stærstu göllum þessara velmeintu laga, að þau eru hvorki fugl né fiskur, eða rnáske bæði fugl og fiskur, vilja »þéna« sem fullkominn fugl og fullkominn fiskur, en geta auðvitað ekki gegnt þeirri tvöföldu köllun, svo að verulegt gagn sé að, verða þess vegna það, sem land- inn kallar viðrinislög, meira í orði, en á borði, fénu sem eytt er til fram- kvæmda þeim, að miklu leyti kastað á glæ, eða fyrir kák og nafn eitt. Mér finst alls ekki ósanngjarnt, þó elskendur fræðslulaganna krefjist þess, að eg færi þessum orðum stað, og það vil eg reyna að gera. (Meira). Málaferli. Konsúll Svía hér í bæn- um hr. Kr. Ó. Þorgrímsson ætlar í mál við blaðið Lögróttu fyrir aðdróttanir um að hafa sagt ósatt í embættisskjali. Lúaleg aðferð. Silfurbergsrógnum við kosningarnar hór í Reykjavík, var fram haldið til síðustu stundar og endir bundinn á hann jafn-drengilega og byr- jað var. Á laugardag kl. 10 */2, sjálf- an kosningardaginn, kom opinberlega fram kæra á þá M. Blöndahl og Guðm. Jakobsson fyrir fjárvanskil við landssjóð (silfurbergsrógurinn); hún kom fram svo seint, að ókleift var að hrinda henni fyrir kosningarnar — kom fram rótt fyrir atkvæðagreiðsluna og sýndi þar með, að ekki var hún annað en einhver 1 ú a ! e g- asta og ódrengilegasta kosn- ingarbrella, sem sögur fara af á þessu landi. Undir kæruna var ritað nafnið P. J. Torfason. Jafnvel heimastj.menn sáu það, er kæran var fram komin, og reyndu að hreinsa s i g með því að skella skuld- inni fyrir framkomu kærunnar á Krist- ján Jónsson. Síðan hefir ekki til þessarar kæru spurst. Alþingiskosningar (síðustu fréttir). Auk þeirra kosningafrétta, sem greindar eru á 1. bls. hefir enn- fremur frézt, að í Suður-Þingeyjar- sýslu er kosinn Pétur Jónsson með 327 atkv. Sig. Jónsson á Arn- arvatni hlaut 126. í dag mun eiga telja saman at- kvæði i Húnavatns- Skagafjarðar- Eyja- fjarðar- og Norður-Þingeyjarsýslum, en á mánudag í báðum Múlasýslum. Bókafregn. Mln aðferö (Mit sýstem) eftir J. P. Múller, hinn danska heilsufræðing og líkamsmentamann er komin út í íslenzkri ‘þýðingu eftir dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði. Kostnaðar- menn eru Sigurjón Pétursson glímu- kappi og Pétur Halldórsson bóksali. Þessarrar bókar verður nánara getið síðar. Frá kjördæmunum. Kosningamolar. Reykjavík : Aldrei mun nokkur kosn- ing í þessu landi hafa kostað jafnmikið fó, eins og kosning þeirra LHBogJóns Jónssonar hefir kostað heimanstjórnar- menn. Að þvl verður ekki Ijósum lýst nándarnærri að öllu leyti. En haft er m. a. fyrir satt, að heimanstjórnarmenn hafi haft 65 koaningastarfsmenn á þön- um um bæinn síðustu dagana í vikunni sem leið. Sjálfan kosningadaginn snemma morg- uns dreifðu heimanstjórnarmenn út hver- jum fregnmiðanum á fætur öðrum með óhróðri um mótstöðumenn sína, en sjálf- stæðismenn svöruðu jafnharðanmeð fregn- miðum frá sór og röðuðu ósannindunum ofan í andstæðingana. Þessi f r e g n - miðabardagi gekk fram eftir deg- inum. — Miðbik bardagans var barna- skólagarðurinn, og er á leið daginn flugu þar um loftið blaðatætlur með öllum regnbogans Iitum. Það voru fregnmiða- leifarnar. Svo var mikil aðsóknin að kosning- unni hór, að kjósendur framan af deg- inum urðu að bíða tímum saman til þess að komast að. Veður var kalt — moldryk mikið. Vistin því leið úti í garðinum. Ekki fekst samt leyfi til þess að hleypa kjósendum, er biðu, inn í leikfimissal barnaskólans, þótt farið væri fram á það. Kl. nál. 9 var kosningarathöfninni lok- ið. Var svo nokkuru sfðar tekið að telja atkvæðin saman í leikfimissalnum. Því var ekki lokið fyr en kl. 3 um nóttina. Atkvæði greiddu alls 1732 kjósendur — af 2254 kjósendum á kjörskrá. En margir voru vitaskuld fjarverandi eða veikir. Hafa aldrei kosið hór í bæ til- tölulega jafnmargir kjósendur. Ógildir urðu 54 seðlar. Af þeim voru 2 auðir. Samkvæmt skýrslu mjög á- reiðanlegs manns, sem var við kosning- una allan tímann, fóllu nú greinir: atkvæöi svo sem G. F. — H. D. fengu saman 60 atkv » » — J. J. — — 6 — » » — J. Þ. — — 6 — » » — L.H.B. — — 6 — » » — M. Bl. — — 4 — H. D. —J. J. — — 23 — » » — J. Þ. — — 9 — » » — L.H.B. — — 73 — » » — M. Bl. — — 6 — fH 1 «H 1 — 6 — » » -- L.H.B. — — 830 — » » — M. Bl. — — 10 — J. Þ. — L.H.B. — — 8 — » » — M. Bl. — — 624 — L.H.B. — M. Bl. — — 7 — Samtals 1678 atkv. Hið einskæra bannfjendafylgi, sem alt metur minna en bann-andstöðuna — er ekki hrikalegt eftir þessum bókum. Bannfjendur bera við, að þeir hafi verið sviknir mjög, haft loforð t. d. fyrir 700 atkv. til H. D. (»700 bókfærðir fyrir kosninguna með H. D.«, hafði einn ósórhlífnasti smali H. D. sagt um nótt- ina eftir kosninguna, »og yfir 500 æru- lausar sálir í Rvík eftir kosninguna« !). Það sem bagaði sjálfstæðismenn mest við þessar kosningar hór í bænum var sundrungin um m e n n i n a . — Mjög margir sjálfstæðismenn sátu þess vegna heima. Óefað meginið af þeim ca. 300 —350 viðstöddum kjósendum, er heima sátu, voru sjálfstæðismenn. En aftur má fullyrða, að kosningasmalar heiman- stj.manna drógu »vanaða,halta ogblinda« sór fylgjandi á fundinn. Ekkert heiman-' stj.atkvæði hefir fengið að sitja heima. Það er samt ekki ólaglegur stofn meira en 6^/2 hundrað kjósenda. Og þegar þess er gætt, að æskulýðurinn, sem er um það leyti að fá kosningarrétt, fyllir nærri óskiftur hóp sjálfstæðismanna, verður það bert, að þelr þurfa engu að kvíða um framtíð sína hór í bænum, — þótt svo slysalega tækist til þetta sinni. Vestmaaneyjar: Fylgi sjálfstæðis- manna þar hefir vaxið drjúgum frá síð- ustu kosningum. Þá hlaut þingmanns- efni sjálfstæðismanna aðeins 43 atkv., en nú 72. Þlngmaðurinn hlaut þá 77, nú 99. Góðar horfur á því, að Vest- mannaeyjar verði Sjálfstæðiskjördæmi við næstu kosningar. Seyðisfjörður: Af kosningabardag- anum þar ganga miklar tröllasögur um meðul þau, er fylgismenn dr. Valtýs hafi beitt. Þar hafi fó ekki verið spar- að — fremur en i Rvík. Kosningafrótt- inni af Seyðisfirði var dauflega tekið hór í bæ í allra herbúðum. Við kosn- ingarnar 1908 hlaut dr. Valtýr 57, s/ra B. Þ. 63 atkv. Akureyri: Þegar fróttin um fall Sigurðar Hjörleifssonar barst hingað, lét einn heimastjórnarforkólfurinn — ekkl sá orðvarasti — svo um mælt, að gefa vildi hann 3 kjördæmi í skiftum fyrir þetta eina. Svo mikið lagði hann upp úr tjóni því, er sjálfstæðisflokkuum er að missa Sig. H. af þingi. Hann var meðal allra nýtustu, starfsömustu og samvizkusömustu þingmanna á undan- förnum þingum. Þinginu í heild sinni er mikil eftirsjá að öðrum eins dugn- aðar-þingmanni — án flokksgreinarálits. — Við kosningarnar 1908 hlaut Sig. H. 137 atkv., en mótstöðumaður hans 127. ísafjörður: Þar er meiri hluti sjálf- stæðismanna mjög mikill, 179 atkv. móti 111, því að bæði þeir er kusu síra Sig. Stef. og Sigfús konsúl hafa verið sjálfstæðismenn. Fylgi Sigfúsar kon- súls hefir reynst miklu minna en kunn ugir menn þar vestra fullyrtu, er mið- stjórn sjálfstæðisflokksins bað Sig. Stef. draga sig í hló. Og hefði þá verið rótt- ara, að S. B. hefði dregið sig í hló fyrir kosuingardag — og þakkarvert, að eigi hlauzt það af, að kjördæmið lenti í höndum heimanstjórnarmanna. — Árið 1908 hlaut Sig. Stef. 154 atkv., en Jón Laxdal 83. í Dalasýslu hefir Haraldi prófessor Níelssyni tekist að safna utan um sig talsvert álitlegri minnihluta en við mátti búast, þegar á móti var teflt svo hóraðs- ríkum manni og mosavöxnum í Mýrasýslu eins og síra Magnúsi Andróssyni. — 1908 hlaut Jón frá Haukagili 116 atkv., en Jóh. í Sveinatungu 96. Vcstur-ísafjarðarsýsla: Vafakosn- ing. Urslitin þar eru að kunnugra frá- sögn aðeins i orði kveðnu, en lítill vafi á því, að kosniug Mattíasar Ólafssonar verði ónýtt á þingi. Af 176 greiddum atkv. voru 50 seðlar ónýttir. Þar af 25, sem öllum kom saman um að ónýta, en um bina 25 varð ágreiningur, 4 þeirra (2 handa hvorum þeirra Kr. D. og M. Ól.) voru eitthvað lítilsháttar krotaðir meira en átti að vera. E n 21 seðlanna voru ónýttir aðeins vegna þess, að þeir voru ekki einbrotnir sam- an, heldur tvíbrotnir eða m e i r a. Af þessum 21 seðli átti síra Kr. D. 14, en M. Ól. 7. Þessir 21 seðlar voru ógiltir með 2 atkv. gegn 1 í yfir- kjörstjórn, að því er oss er tjáð af skil- ríkum manni. Og annar þeirra tveggja yfirkjörstjóra, sem ónýtti seðlana, var sjálfur frambjóðandinn Mattías Ólafs- son, en hinn ákveðinn fylgismaður hans (Kristinn á Núpi). En þriðji maðurinn, sem eigi vildi ónýta seðlana, var odd- viti kjörstjórnar Magnús Torfason. Með öðrum orðum: Það er sjálfur keppi- nautur Kr. Dan. sem með s í n u a t- kvæði í yfirkjörstjórn ræður því, að þessir seðlar eru ógiltir. Ef þessir 21 seðlar hefðu ekki verið ógiltir hefði Kr. Dan. haft 126 atkv., en M. Ól. ekki nema 121. Kr. D. því verið réttkjörinn þing- maður. Hór í Rvík er oss sagt, að margir kjörseðlar hafi verið meira en einbrotnir, en allir verið teknir gildir -—• og það mun vera venjan alstaðar. Enginn vafi getur því á leikið, að Vestur-ísfirðingar fá að velja þingmann af nýju. — 1908 var síra Kr. D. kos- inn með 157 atkv., en Jóh. Ólafsson hlaut 96. í Borgarfirði hefir Kr. J. tekist að kljúfa kjósendaflokk sjálfstæðismanna til helminga og heimanstjórnarmenn i kjördæminu fylgt honum uær óskiftir. Árncssýsla: Þar hefir ekki ráðið kosningu Sig. Sig. — landsmálafram- koma hans, heldur Flóaáveitan og rjóma- búa afskifti hans. Hart, að öðrum eins manni og síra Kjartani í Hruna Bkuli hafnað, er hann lætur þess kost að fara á þing. Er fullyrt af Árnesingum, að falli hans valdi það eitt, hversu seint hann róð af framboðið. — Hannes Þor- ateinsson hefir fengið makleg málagjöld fyrir sina framkomu á síðasta þingi, eins og vera bar. — Jón Jónatansson er nýr maður, en er sagður greindur maður og gegn, og má sjálfsagt gera sór góðar vonir um þingmensku hans. í Rangárvallasýslu og Snæfellsnes- sýslu hefir verið unnið of lítið af hálfu sjálfstæðismanna. Með því að leggja meiri rækt við þessi kjördæmi, er vafa- laust hægt að vinna þau. Strandasýsla: Úrslitin þar eru að kenna f a r b a n n i því, er Kristján Jónsson lagði fyrir þingmannsefni sjálf- stæðismanna, Ara Jónsson. — Fjarveru hans er um kent, að ekki fáir kjósend- ur hans sátu heima, en hins vegar var hóað saman öllurn atkvæðum Guðjóns Guðlaugssonar. Kunnugir menn segja, að Ari mundi ekki hafa verið kosinn 1908, ef hann hefði ekki fariö norður sjálfur — og hinir sömu menu fullyrða

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.