Ísafold - 06.10.1915, Blaðsíða 2
2
IS A FO L D
gera ráð fyrir hjá mentuðum stá-
dentum. Það sem gerir háskóla-
námið svo frjálst og óbundið er, að
hér er yður heimilt og frjálst að
haga námi yðar í flestum greinum
eins og yður þykir bezt og hag-
kvæmast. Að vísu hefir hver deild
semja látið lestrar- og kensluáætlun
fyrir nemendur sína. En þær áætl-
anir eru ekki annað en leiðbeining-
ar, sem nemendum er í sjálfsvald
sett hvort þeir fara eftir þeim
eða ekki; sérstaklega eiga þær
að gefa byrjendum nokkurn veg-
inn greinilegt yfirlit yfir námið
í öllum þess einstöku greinum.
Það sem enn fremur gerir námið
hér svo frjálst og óbundið er, að
nemendurnir eru alls ekki skyldir til
að tileinka sér skoðanir kennara sinna
óprófaðar og órannsakaðar, og yfir-
leitt ekki skyldir til að gjalda nein-
um öðrum skoðunum og kenningum
jákvæði en þeim, sem þeir hafa sjálfir
sannfærst um við ítarlega prófun og
nákvæma athugun að eru samkvæm-
ar sönnu og réttu. Það er sem sé
meira að segja einmitt einn megin-
tilgangur háskólanámsins að menta
námsmennina til svo sjálfstæðrar
skoðunar á hlutunum og lifinu yfir-
leitt, sem frekast er unt. En þetta
leiðir beint af sjálfu eðtt visindanna
eins og þau eru eftir frumlaki sínu
og markmiði. Eins og hin vísinda-
lega hvöt er í insta eðli sínu hung-
ur og þorsti eftir sannleikanum, svo
er sjálft frumtak allra vísinda sann-
leikurinn og markmið þeirra þekk-
ing sannleikans.
Það er nú ósk mín og von, að
þér hafið þetta hugfast á því skeiði
lifs yðar, sem nú fer í hönd, svo að
þér látið engar tálmanir aftra fram-
sókn yðar í leit sannl^ikans, engar
óviðkomandi hliðsjónir eða hleypi-
dóma hafa áhrif á stefnu yðar, en
keppið að takmarkinu með þann
leiðarstein í stafni, sem er sannleik-
urinn í hverju efni sem er. Þá
verður nám yðar í sannleika frjálst
og óbundið.
Og svo bið eg þess og óska yð-
ur til handa, ungu nemendur! að
þessi dagur verði yður öllum upp-
haf ánægjuríks, giftusamlegs og arð-
vænlegs námstíma, að þér megið
bera gæfu til að færa yður sem bezt
i nyt þá fræðslu, sem hér er á boð-
stólum, til þess að menta sem bezt
anda yðar og auðga hann að nyt-
samri þekkingu, og til þess að þroska
sem bezt þá hæfileika, sem yður
eru af guði gefnir, sjálfúm yður til
gagns og gleði, háskóla vorum til
heiðurs og sóma, og þjóðfélagi voru
til blessunar og heilla.
Með þessari ósk býð eg yður svo,
ungu meyjar og menn, i nafni há-
skóla vors, velkomna hingað sem
rétta háskólaborgara.
Guð blessi háskóla vorn! Guð
blessi alt starf kennenda hans og
nemenda.
Fyrirlestrar þeir á háskólamissir-
ínu þessu, er helzt muuu athyglis-
verðir fyrir aimenning, eru þessir:
Prófessor, dr. phil. Björn M. 01-
sen heldur fyrirlestra um bókmenta-
söqu Islendinga þriðjudaga og laugar-
daga kl. 5—6, fer yfir Sólarljóð og
Eddukvaði fimtudaga kl. 5—6 og
laugardaga kl. 6—7.
Prófessor, dr. phil. Aqúst H.
Bjarnason les fyrir Aqrip aj almennri
sálarfrœði fyrir yngstu stúdentana
mánudaga, þriðjudaga, fimtudaga og
föstudaga kl. 4—5, heldur fyrirlestra
fyrir almenning um undirstöðuatriði
siðjrteðinnar miðvikudaga kl. 7—8.
Dócent Jón Jónsson heldur áfram
fyrirlestrum um sógu Islands ejtir
1700 þriðjudaga og laugardaga kl.
7—8 og heldur fyrirlestra um verzl-
unarsögu Islands fimtudaga kl. 7—8.
Dócent Bjarni Jónsson frá Vogi
heldur fyrirlestra um bókmentir
Grikkja miðvikudaga kl. 5—6 og
um bókmentir Rómverja laugardaga
kl. 2—3.
Sendikennari, mag. art. Holger
Wiehe heldur fyririestra um dönsk
hetjukvaði og pjóðvísur mánudaga og
föstudaga ki. 5—6, ætingar í dönsku
fyrir þá, sem lengra eru komnir,
mánudaga og föstudaga kl. 6—7,
heldur fyrirlestra um sógu danskrar
tungu miðvikudaga kl. 6—7.
Dr. phil. Alexander Jóhannesson
hefir æfingar í þýzku mánudaga og
föstudaga 'kl. 8—9; skýrir ieikrit
Schillers: Mærin frá Orleans, mið-
vikudaga kl. 8—9 síðdegis og held-
ur fyrirlestra um Schiiler fimtudaga
kl. 8—9 síðd. (byrjar 14. okt,).
Bókafregn.
Bólu-Hjáimars-kvæði eru að byrja
að koma út i nýrri útgáfu, á
kostnað Hjálmars Lárussonar, son-
arsonar Bólu-Hjálmars. Dr. Jón
Þorkelsson hefir búið þau undir
prentun. Er 1. heftið komið, 192
bls. í átta blaða broti, en von á
3 heftum alls. Bólu-Hjálmars-
kvæði í fyrri útgáfunum munu
nú nær ófáanleg, svo að þörf var
orðin á nýrri útgáfu. Heftið kost-
ar kr. 1,75.
Iðunn, 2. hefti hins nýja flokks,
er nýkomið. Byrjar á tveim þul-
um að vestan, sem eru svo vel
kveðnar, að vér getum eigi stilt
oss um að taka þær hér upp:
I.
Sólrún, Gullbrá, Geislalín!
gaktu í lundinn fríða,
fákurinn brúni bíður þín,
bæði skulum við ríða
fram til hliða,
fram til Lambahlíða.
Við skulum liggja í lautunum,
á lóusönginn hlýða,
tína blóm í brekkunum
0g berin út á móunum.
En líttu’ ekki undir lyngið
»þar launbirnir skríða*.
Við skulum ganga í gilið,
þó gatan sé mjó,
upp að stóra steininum,
sem stendur undir fossinum.
Þar býr hann Litar,
dvergurinn digri.
Hann á að gera þér gyltan stól
og gersemar fleiii:
höfuðdjásn og hálsmen,
hring og linda,
silfurhnapp og sylgju,
söðul og keyri,
gullskeifu’ undir gæðinginn.
Grætur rós á eyri.
Greið er löngum gatan fram að
Eyri.
»Hvað er fegra en sólarsýn?«
Sittu hjá mér dúfan mín,
seinna flýg eg suðr að Rín,
og sæki þér gull 0g dýra vín.
»Hirði eg aldrei, hver mig kallar
vóndan<
heldur kyssi’ eg húsfreyjuna’ en
bóndann.
II.
Stúlkurnar ganga
sunnan með sjó.
Mitt út á firði
svam marbendill og hló.
Báran upp að berginu
bylti sér og dó.
Hafmey sat á steini
og hörpuna sló:
»Hafðu við mig stakkaskifti
stúlkukindin mjó;
mig langar svo tii landsins
í laufgaðan skóg.
Eg hef litið ungan svein
út, á grænum mó,
upp frá þeirri stundinni
enga fann eg ró.
Tindilfætt er lukkan,
treystu’ henni aldrei þó.
Valt er á henni völubeinið
og dilli-dó.
Gef mér fima fótinn þinn,
þú færð í staðinn sporðinn minn,
kongurinn lætur kórallinn
í krónuna þína binda,
gljáskeljar og gimsteina
gefur hann þér á linda.
Glóir sól á tinda, —
gaman er að synda
um Unnarsali
og Ægis lönd,
yztu fram að sævarrönd,
þá Sunna gengur Græði á hönd
og geislabál þau lcynda.
Aftansunna svæflr káta vinda«.
Selur sefur á steini,
svíður í fornu meini.
Upp í sveit hann eitt sinn bjó
með fturvöxnum sveini.
Nú er honum um og ó,
á hanu »sjö« í löndum
0g urtubörnin »sjö* í sjó
synda út með ströndum —
sofa á skerjum,
synda fram með ströndum.
Hans er mesta hugarfró
að horfa upp til dala.
»Vappaðu með mér, vala«.
Fram á sviði fisk eg dró
og fleytuna mína hlóð.
En »fjármannahríðin
er full með bölmóð«.
D.
Forvitnir munu margir að vita,
hver undir D-inu dylst, en eigi
mun unt, minsta kosti að svo
stöddu, að svala þeirri forvitni.
Næst er þýdd saga, Colomba,
eftir italska skáldkonu, Grazíu
Deledda, er þykir nú orðið önd-
vegi skipa ítalskra kvenskálda.
Þá kemur ræða sú, er jungfrú
Ingibjörg H. Bjarnason flutti í
sumar þingsetningardaginn um
stofnun landsspítala og fylgir
mynd af henni í ræðustólnum.
Um landsspitalaþörfina ritar því
næst Guðm. Björnsson. Ágúst H.
Bjarnason birtir frh. af ritgerð
sinni: Heimsmyndin nýja. Eftir
Ferdinand Wrangel, rússneskan
stjórnmálamann, er fróðleg grein
um Friðarhugleiðingar og þar á
eftir kemur Ársyfirlit yfir heims-
styrjöldina tekið eftir Independent.
Jón Olafsson heldur áfram End-
urminningum œfintýramanns og er
nú kominn að skólaárum sínum.
Þá kemur grein um vestur ís-
lenzkt alþýðuskáld, sem alkunnur
er þar í landi, en hefir verið al-
ókunnugur vor á meðal fram að
þessu. Heitir hann Kristján JúU-
us Jónsson frá Akureyri, er nú
um fimtugt og býr í Mountain-
bygð í Pembinasýslu í Norður-
Dakota.
Skáldnafn hans vestra er Cowan
og getur sá, er um hann ritar,
síra Jón prófessor Helgason, þess
til, að smíðað sé upp úr »K-n«,
skammstöfun nafnsins Kristján.
»Eftirtekt á sér mun Cowan
fyrst hafa vakið með gamankviðl-
ingum sínum«, segir J. H. »Eru
margar af lausavísum hans af-
bragð, því maðurinn er meinfynd-
inn, og virðist honum vera afar-
létt um að kasta fram kviðling-
um«.
Nokkurar af vísum og kviðl-
ingum Cowans er tekið upp í
grein J. H. — Hér eru örfá sýn-
ishorn:
1. Cowan launar ilt með góðu.
Einlægt þú tafar illa um mig,
aftur eg tala vel um þig.
En það bezta af öllu er,
að enginn trúir þér — né mér.
2. A »móti«
Borgfirðingar biðu þar
hjá Breiðfirðingum gestir,
Austfirðingar alstaðar,
Eyfirðingar hér og hvar,
en vitfirðingar voru þar langtum
flestir.
3. Cowan visað úr vinnu.
Cowan og tveir aðrir voru rekn-
ir úr vinnu, og þrír aðrir teknir
í staðinn:
Góður, betri, beztur
burtu voru reknir;
illur, verri, verstur
voru aftur teknir.
4. Fyrstu orðin.
Þú móðurtungan-mæra,
sem mér ert hjartakær,
eg man það máske betur
en margt, sem skeði í gær:
hið fyrsta af öllum orðum,
er orð eg mynda fór,
var orð, sem ei eg gleymi,
en orðið það var — hjór.
Svo flýði’ eg feðragrundu,
mér fanst þar alt of þurt;
að leita fjár og frama
eg fullur sigldi burt.
Af hafi hingað komnum
mér heimur birtist nýr.
Þá lærði eg orð á ensku,
en orðið það var — beert
5- Cowan horgar lífsábyrgð.
Af þessum dollar þú mátt sjá,
að þreyttum skrokk ei hlífi
við að borga ábyrgð á
einskisverðu lífi.
Stutt, en einkennileg saga, Stór-
hríð eftir Arna Óla blaðamann,
er enn í þessu hefti og loks all-
ítarleg ritsjá eftir þá Ágúst H.
Bjarnason 0g Jón Ólafsson.
Yfirleitt má um Iðunni segja,
að ef hún heldur svo fram stefn-
unni, sem nú í byrjun, mun hún
vafalaust eignast hylli nöfnu
sinnar — eldri Iðunnar.
Tvö dýrtiðarlðg.
ísafold mun smátt og smátt
skýra frá aðalefninu í helztu
laga nýmælum hins síðasta al-
þingis eða. prenta þau upp í
heild, svo landslýður geti þegar
kynt sér þau.
í dag birtum vér tvö dýrtíðar-
lögin. Eru hin fyrri gengin í
gildi og farið að framkvæma þau.
Það eru
I, ö g
um bráðabirgða verðhækkunar-
toll á útfluttum, íslenzkum afurð-
um.
(Afgreidd frá Ed. 14. septbr.).
1. gr. Auk útflutningsgjalds
þess er ræðir um í lögum:
Nr. 16, 4. nóvember 1881,
— 10, 13. apríl 1894,
— 8, 6. marz 1896,
— 11, 31. júlí 1907 og
-- 31, 22. óktóber 1912
skal greitt útflutningsgjald af
íslenzkum vörum, svo sem fyrir
er mælt í þessum lögum.
2. gr. Gjaldið skal miða við
söluverð vörunnar með umbúð-
um, fluttrar um borð í skip (fob)
á þeirri höfn, er hún fyrst fer
frá, eða söluverð erlendis (Cif)
að frádregnu flutnings- og ábyrgð-
argjaldi til útlanda, svo og miðl-
aragjaldi.
3. gr. Gjald þetta hvílir á
allskonar fiski, lýsi, síld, smjöri,
ull, saltkjöti, kindargærum, sel-
skinnum, hestum og sauðfé á
fæti, og einungis á þeim hluta
söluverðsins samkvæmt 2. gr.,
sem fer fram yfir það verð, er
nú skal greina:
Á hverjum kr.
100 kg af fullverk. þorski 58,00
100 » » » smáfiski 52,00
100 » » fullverk. ýsu 46,00
100 » » » löngu 55,00
100 » » » keilu 37,00
100 » » » upsa 30,00
100 » » » Labrad.fiski 36,00
100 » » » harðfiski 72,00
100 » » » blautfisk í
ís eða frystu 20,00
Á fiski upp úrsalti telst gjald-
frjálst verð á hverri tegund 40 %
lægra en á fullverkuðum fiski
sömu tegundar.
Á hverri tunnu kr.
(108—120 lítra) af síld 20,00
(105 kg) af meðalalýsi 70,00
(105 » ) » öðru lýsi 30,00
(112 » ) » saltkjöti 78,00
Á hverju kr.
kg af þveginni, hv. vorull 2,00'
» » annari ull 1,30
» » smjöri 2,00
Á hverju kr.
kg af sauðargærum (miðað
við þyngd á þeim
ósöltuðum og óhert-
um) ij0o
Á hverju selskinni 5,00
» sauðk. á fæti, hvert kg
i lifandi þyngd á 0,40
» hverju hrossi 120,00
4. gr. Gjaldið er 3 af hundr-
aði af hinum gjaldskylda hluta
vöruverðsins. Skal það greitt
áður en skip það, er tekur vör-
urnar til flutnings, er afgreitt frá
útflutning8höfn hennar, hvort
sem skipið fer með vörurnar til
útlanda rakleitt, eða til umskip-
unar í annari höfn innanlands.
Lögreglustjórarinnheimta gjald-
ið og fá í innheimtulaun 2 %.
Skal gjaldið greiðast í pening-
ingum, eða ávísunum, er gjald-
heimtumaður tekur gildar.
5. gr. Sérhver sá, er sendir
á stað til útflutnings fyrnefndar
vörur (sbr. 3. gr.) er skyldur að
fá gjaldheimtumanni í hendur
samrit eða staðfest endurrit, af
farmskrám þeim eða öðrum
hleðsluskjölum, er skipinu fylgja.
Svo er hann og skyldur til að
gefa skriflegt vottorð, að við-
lagðri æru og samvizku, ura
vörumagnið, og ef varan er þeg-
ar seld, um söluverðið (sbr. 2-
gr.) og söluskilmála.
6. gr. Hafi lögreglustjóri grun
um, að rangt sé sagt til vöru-
tegunda eða vörumagns í skipi,
skal hann láta rannsaka farm
skipsins, áður en það er afgreitt
frá höfn.
Nú er gjaldskyld ■ vara sam-
kvæmt lögum þessum send burt
óseld, eða sá er sendir veit ekki
söluverðið, eða gjaldheimtu-
manni þykir skýrsla hans um
söluverðið ófullnægjandi; skal þá
gjaldheimtumaður uppkveða verð-