Tíminn - 17.01.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
BSÉSfil
Vinnuveitendasambandið og A.S.Í. kveðast á:
VSÍ hafnar kröfum ASÍ alfarið
HEI — 1 samþykkt fram-
kvæmdast jórnar Vinnuveit-
endasambands Islands frá i
fyrradag er lögb áhersla á að i
komandi kjarasamningum
verði ekki unnt að semja um
aukinn kaupmátt og þvf sé úti-
lokað að ná nú þvi kaupmáttar-
stigi er samið var um 1977 eins
og felst i kröfum ASl
Að sögn_Þorsteins Pálssonar,
framkvæmdastj. VSI var árið
1977, samið um meiri launa-
hækkanir en aukning þjööar-
tekna þaö ár leyföi og af þvi höf-
um við verið aö súpa seyðið
siðan. S.l. tvö ár hafi siðan ekki
verið um auknar þjdðartekjur á
mann að ræða og jafnvel spáð
lækkun á næsta ári. Kaup-
máttur útflutningstekna þjóðar-
innar hafi minnkað um 14% á
siðasta áriog þvi sé óraunhæft
aðbúast við að hægt sé aö auka
kaupmáttinn nú. Auðvitað væri
tiltölulega auövelt að hækka
launin, en það gæti ekki leitt til
annars en gengisfellinga og
verðhækkana.
VSI visar einnig kröfum ASl
um nýtt verðbótakerfi á bug
sem algerlega óraunhæfum um-
ræðugrundvelli i samningavið-
ræðum, enda sé um blekkinga-
leik aðræða, m.a. vegna þess að
með afnámi skerðinga sem
verið hafa i gildi varðandi kaup-
álög og ákvæðisvinnu, væri um
aðræða margfalt meiri hækkun
en fram kæmi i tillögunum. Aö
sögn Þorsteins gæti VSI heldur
ekki sætt sig við það,það væri
verðbólgan sem réði launahlut-
föllunum i' landinu, um þau ætti
að semja i kjarasamningum.
Þá mótmælir VSI kröfum ASl
um aukin friöindi. Um það sagði
Þorsteinn, að þegar aðstaðan
væri eins og nú, aö ekki væri
hægt að auka kaupmátt beinna
ráöstöfunartekna væri þvi að
siður grundvöllur fyrir auknum
launakostnaði i formi friðinda.
Væri af einhverju aö taka væri
nær að byrja á að hækka ráö-
stöfunartekjunar, þvi launa-
hækkanir I formi alls kyns frið-
inda kostuðu fyrirtækin alveg
jafn mikið og beinar hækkanir,
þó svo virtist að of margir
áttuðu sig ekki á þvi.
Viðræðunefnd A.S.I. fjailaði i
gær um samþykkt VSl. og telur
þar margt mótsagnakennt m.a.
að i einu orðinu væri lýst vilja til
viðræðna og i hinu aftekið aö
ræöa kröfur ASl. Itrekaði við-
ræðunefndin kröfur ASI og
óskar eftir fundi þar sem
sjónarmiöin fáist betur skýrð.
Hækkun fyrirframgreiðslu skatta i ár:
Útsvar 70% og skattar
65% — miðað vlð álögð gjöld fyrra árs
HEI— Neðri deild Alþingis sam-
þykkti i gær, að fyrri hluta þessa
árs verði innheimt sem fyrir-
framgreiösla af útsvörum 70% af
útsvörum fyrra árs, en fyrir-
framgreiðsla af sköttum til rikis-
sjóðs verði aftur á móti 65%.
Eftir er að taka máliö fyrir i
efri deild, en ekki búist við að
þessu verði breytt þar.
Með þvi að deila 10 i álögð opin-
ber gjöld i fyrra og hækka þá tölu
um nefndar prósentur eftir þvi
hvort um útsvar eða skatta er að
ræða fær fólk út mánaöarlega
fyirframgreiðslu þessara gjalda
fyrri hluta yfirstandandi árs.
Mokkakápur fyrir
80 milljónir króna
til Svíþjóðar
JSS— Gráfeldur h.f. hefur gert
samning um sölu á 500 mokka-
kápum til Sviþjóðar , að verð-
mæti um 80 milljónir króna.
Kaupandinn er heildsölufyrir-
tæki, sem dreifir vörum sinum
um alla Sviþjóð, og selur ekki
einungis mokkafatnað, heldur
einnig leðurfatnaö. Sem fyrr
sagði, mun andviröi kápanna,
sem Gráfeldur selur til Svi-
þjóðar vera um 80 milljónir
króna, og er það stærsti samn-
ingar sem fyrirtækið hefur gert
til þessa.
Borgin veiði lax
við Viðey
Kás— Borgarráð hefur samþykkt
að fela Jóni G. Tómassyni,
borgarlögmanni að semja við eig-
anda Viðeyjar um að borgin leysi
til sin veiðirétt á lax i sjó i kring-
um eyna.
Nokkur vafi hefur leikiö á þvi
hvort laxveiðihlunnindi I sjó viö
Viöey séu lögleg, og hefur mönn-
um sýnst sitt hvað þar um.-Em-
bætti lögreglustjórans I Reykja-
vik hefur frá þvi i ágústmánuöi sl.
haft á hendi rannsókn á umrædd-
um veiðum og er henni enn ekki
að fullu lokiö. Er þess aö vænta,
að rannsókninni verði fljótlega
lokið, og að niðurstöður hennar
verði sendar rikissaksóknara,
sem tekur ákvörðun um, hvort af
hálfu hins opinbera veröur að-
hafst frekar i málinu.
Akvörðun sina um að leysa
veiðiréttin til sin tók Borgarráð i
ljósi greinarge^ðar borgarlög-
manns, sem telur ekki annað sýnt
en að eigandi Viðeyjar eigi rétt til
laxveiði i sjó við eyjuna. Þvi sé
ekki ástæða til að biða endan-
legrar niðurstöðu af rannsókn
FRI — Um kl. 1 i fyrrinótt kvað
viðmikil sprenging i Drafnarfelli
i Breiðholti. Munu unglingar hafa
útbúiö heimatilbúna sprengju úr
eldflaugapúðri og vatnsröri og
sprengt hana við Iðnaðarbankann
iDrafnarfelli. Stór rúöa I bankan-
um brotnaöi.
Stór krakkahópur var við stað-
inn er lögreglan kom og flutti hún
lögreglunnar, enda megi allt eins
búast við að næsta veiöitimabil
verði hafið, áður en hún liggi
fyrir.
Réttur Reykjavikurborgar á að
leysa veiðiréttinn til sin byggist á
þvi, að ef veiðivatn liggur svo
nærri sjávarveiði, aö hún rýri
veiði i vatninu getur ráðherra
leyft veiöieiganda I vatninu, að
leysa sjávarveiðina til sin.
Samkvæmt skýrslum hefur
meöalveiði siðustu þriggja ára
við Viðey verið 256 laxar og
meðalþyngd um 651 kiló á ári.
Hefur verið áætlað að hæfilegt
endurgjald fyrir sjávarveiðinavið
Viðey sé um tiu og hálf milljón
króna, ef tekið er mið af laxveiði-
réttindum sem borgin keypti I
Grafarvogi árið 1965.
Eigandi Viðeyjar vill fyrir sitt
leyti samþykkja, að borgin sem
eigandi veiðiréttar i Elliðaám
leysi sjávarveiöina við Viðey til
sin, en vill fá fyrir sinn snúð 12
millj. kr. og er þá um að ræða sölu
á bæði lax- og silungsveiðirétti.
fimm 17 ára unglinga niöur á stöð
og játuðu þeir að hafa útbúið
sprengjuna.
Svona sprengja mun vera
kraftmikil og stórhættuleg getur
jafnvel valdið mannskaða og
brýndi lögreglan það fyrir
unglingunum að hætta þessu en
þeir höfðu áður sprengt sllka
sprengju úti i móa.
Frá höfninni á Vopnafiröi.
JSS — Atvinnuhorfur á Vopna-
firði eru nú heldur slæmar vegna
þess, að togarinn á staðnum,
Brettingur, bilaði fyrir skömmu
og er hann nú I Reykjavik til við-
gerðar. Mun lega hafa bilaö I tog-
aranum og er ekki vitað hve lang-
an tima viðgerðin tekur.
Sr. Haukur Agústsson á Hofi
sagöi i viðtali við Timann i gær,
aö annars hefði afli veriö þokka-
legur og heldur glæðst á trillu og
smábáta að undanförnu. Brett-
ingurhefði aflað þokkalega þar til
hannbilaði.ennú væruútlit fyrir
að f rystihúsinu á staðnum yrði aö
loka, a.m.k. annaö veifið vegna
aflaleysis. Þorskveiðibannið
hefði verið um það bil að ganga i
garö og svo bættist bilunin við,
svo ekki færi hjá þvi aö menn
væru nokkuð svartsýnir á at-
vinnuástandiö á staönum. Nokkr-
ir tugir manna heföu atvinnu sina
beinteða óbeintvið aflannog hætt
væri við að þeirheföu litla vinnu i
bili.
Annars sagöi sr. Haukur, aö at-
vinnumái i þorpinu heföu verið I
mjög góðu lagi. Mikið hefði verið
byggt og mikill hugur i mönnum
að efla byggöina. Allmargir að-
komumenn hefðu sest að á
Vopnafirði og heimamenn litið
flutt i burtu, þannig að ibúunum
hefði fjöigað verulega á siðari ár-
um, og þorpiö stækkaö stórlega.
Aðspurður um framkvæmdir
sagði sr. Haukur, að hrqjpurinn
hefði veriðaö byggja fjölbýlishús.
Væri ætlunin að selja hluta þess,
en hluti yrði i eigu hreppsins, og
yrði notaður fyrir t.d. kennara,
Litiðværi um aðrar framkvæmd-
ir, enda óvissa um fjármagn
vegna óöruggs stjórnmálaá-
stands I landinu. Vegafram-
kvæmdir hefðu ekki verið miklar
sl. sumar innan byggðar, en von
manna væri, aðþær framkvæmd-
ir næðu til héraösins á næsta
sumri.
Sprenging í
Breiðholti
— fimm unglingar fluttir á lögreglustööina
Slæmar atvinnuhorfur
á Vopnafirði
Togarinn Brettingur bilaður