Tíminn - 30.07.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.07.1980, Blaðsíða 6
Miövikudagur 30. júli 1980 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur óiafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sföu- múla 15. Simi 86300. — Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 250. Askriftargjald kr. 5000ámánuöi. Blaöaprent. Villandi viðtal Viðtal, sem birtist við Steingrim Hermannsson sjávarútvegsráðherra i Visi 12. þ.m., hefur orðið þess valdandi, að hann hefur verið talinn óvinsam- legur skipasmiði innanlands: Sjávarútvegsráðherra hefur nú birt leiðréttingu i Visi (28. þ.m.) og þykir rétt að birta hana hér: ,,í Visi, laugardaginn 12. júli s.l., birtist viðtal, sem tveir blaðamenn áttu við mig um sjávarút- vegsmál. Viðtal þetta er verulega stytt, sem ekki er óeðlilegt. Þvi miður sýnist mér að i styttingunni hafi ýmis atriði komið illa eða óljóst til skila. Þó mun ég ekki gera athugasemd við nema eitt slikt atriði. Til þess að ekkert fari á milli mála hef ég jafn- framt fengið frá Visi segulbandsspólur þær, sem viðtalið geyma. í viðtalinu er áberandi undirfyrirsögn, þar sem segir: „Hlynntari skipakaupum að utan en nýsmiði innanlands”. í þeim kafla kemur siðan fram spurning blaða- mannsins, sem endar þannig: ,,Ertu ekki hlynntur þvi að nauðsynleg endurnýj- un flotans fari fram innanlands?” Þessa spurningu finn ég að visu ekki á segulband- inu svo orðaða, á þessum stað, að minnsta kosti, en það er aukaatriði. Svar mitt fylgir á eftir og er svo- hljóðandi i Visi: ,,Ég vil stuðla að þvi að gamlir togarar fari úr landi og nýir komi i staðinn, með þvi móti verður að visu einhver aukning i sóknarþunga en ekki eins mikil og ef togararnir væru smiðaðir innanlands og enginn færi i staðinn. Ég er þvi hlynntari kaupum að utan en nýbyggingu innanlands”. Þetta er efnislega rétt nema hvað niðurlaginu er aðeins breytt. Skv. segulbandinu var það þannig: „Þannig að ég er i sambandi við togaraflotann hlynntari þessu heldur en nýbyggingu innanlands, en hins vegar er...” í blaðinu er svar mitt gert almennara en það var. Það er látið ná til alls flotans en ekki bara togara- flotans. Það er þó einnig aukaatriði. Hitt er mikil- vægara að þvi er sleppt, sem ég segi siðar um skipasmiðar innanlands. Þar segi ég m.a.: „Þær (þ.e. islenzkar skipasmiðastöðvar) geta annað endurnýjun og það eru nú i smiðum nokkrir togarar... Fyrir þá togara er engu skipi lagt”. Blaðamaður spyr: „Má ekki setja reglur um að selja beri skip úr landi, þegar endurnýjun fer fram innanlands?” Svar mitt: „Salan úr landi er algerlega háð kaup- um á skipi. Það, sem ég held að þurfi að gera i þessu sambandi, er að stórauka aldurslagatrygg- ingu, þannig að aldurslagatryggingin geti keypt upp gömul skip, en menn skulu gæta að þvi að slikt þýðir opinbert fjármagn. Staðreyndin er jafnframt sú, að skipasmiðastöðvar erlendis, þvi miður, njóta gifurlegra rikisstyrkja. Ég er þeirrar skoðunar að skoða beri kalt og rólega, hvort rétt sé að taka upp slika aðstoð, e.t.v. i gegnum aldurslagatryggingu eða á annan máta hér innanlands. Við skulum gæta að þvi að mjög mikið fjármagn fer úr landi á þenn- an máta. Það getur þvi borgað sig að veita jafnvel aðstoð til að byggja megi skip á samkeppnisfæran máta hér heima, ef við tökum til greina atvinnuna, skattana og allt, sem frá slikri starfsemi kemur. Þetta vil ég láta skoða”. Ljóst er af þessu svari Steingrims Hermannsson- ar sjávarútvegsráðherra, að hann er siður en svo mótfallinn skipasmiði innanlands, heldur vill gera stórátak til að efla hana. Þ.Þ. Erlent yfirlit Þórarinn Þórarinsson: Atvinnuleysið stór- eykst hjá Thatcher Atvinnuleysingjar orönir um tvær milljónir TOLUR þær um atvinnuleysi I Bretlandi, sem birtar voru í siö- ustu viku, gefa til kynna aö at- vinnuleysingjar séu nú orönir um tvær milljónir. Þegar talningin fór fram, voru þeir skráöir 1869 þúsund, en hefur fjölgaö siöan aö taliö er. Af þeim voru 295 þúsund skóla- nemendur innan viö 18 ára aldur. Samkvæmt talningunni bitnar atvinnuleysiö hlutfallslega mest á ungu fólki. Sé miöaö viö 18 ára aldur, voru 1264 þúsund eldri en 18 ára, en 662 þúsund yngri. Atvinnuleysiö er nokkuö mis- munandi eftir landshlutum. Verst er þaö I Noröur-trlandi eöa 11.6% þegar miöaö er viö vinnufært fólk. Næst kemur Noröur-England meö 11.1% en siöan Skotland og Wales meö 9%. Þaö er nokkurt dæmi um at- Margaret Thatcher vinnuleysiö I Noröur-Englandi aö ráöningarstofa fyrir ungt fólk i Liverpool haföi aöeins fimm störf laus en 6100 umsókn- ir. Nokkru skárra var þetta hjá ráöningarstofu I Manchester, þar sem 115 störf voru laus, en umsóknirnar 3000. Samkvæmt þessum siöustu tölum er atvinnuleysiö nú oröiö jafn mikiö i Bretlandi og þaö var á kreppuárunum fyrir siö- ari heimsstyrjöldina. Þaö hefur aldrei veriö meira eftir striös- lokin. Síöan rikisstjórn Thatchers kom til valda I maibyrjun 1979 hefur atvinnuleysingjum fjölgaö um 600 þúsund, þar af eru 300 þúsund innan 18 ára aldurs. Þetta linurit New York Times sýnir atvinnuleysiö I Bretlandi 1969-1980. ÞAÐ var eölilegt aö þingmenn Verkamannaflokksins brygöust hart viö þessum tölum og geröu hróp aö Thatcher I þinginu: Segöu af þér, segöu af þér, eins og ekki er ótitt þar. Thatcher lét sér hins vegar hvergi bregöa. Hún sagöi, aö höfuömál hennar væri aö ráöa niöurlögum dýrtiöarinnar og þaö yröi ekki gert, nema nokk- urt atvinnuleysi kæmi til sögu um skeiö. Hjöönun veröbólg- unnar væri óhjákvæmileg, ef brezkir atvinnuvegir ættu aö veröa samkeppnishæfir, en þeir færu nú mjög halloka á erlend- um mörkuöum. Þá benti fjármálaráöherrann, Geoffréy Howe á aö veröbólgan heföi heldur minnkaö i júni- mánuöi svo aö árangur væri aö byrja aö nást. Healey, fyrrv. fjármálaráöherra svaraöi þvi til aö öll hjöönun veröbólgunnar I umræddum mánuöi ætti rætur aö rekja til verölækkana á inn- fluttum vörum. Bæöi Thatcher og Howe reyndu aö kenna kauphækkun- um um, aö atvinnuvegirnir væru ekki samkeppnishæfir og drægjust saman. Verkalýös- hreyfingin kynni sér ekki hóf. Leiötogar Verkamanna- flokksins svöruöu á þá leiö aö kaupiö geröi ekki meira en aö elta verölagiö. Sökin væri þvl ekki verkalýösfélaganna. Callaghan kvaö vaxtastefnu stjórnarinnar eiga mikinn þátt I versnandi afkomu atvinnuveg- anna, en vextir hafa hækkaö verulega slöan Thatcher kom til valda. Þá taldi hann samdrátt opinberra framkvæmda alltof mikinn. A atvinnuleysistlmum þyrfti frekar aö auka opinberar framkvæmdir en draga úr þeim. Margir atvinnurekendur viröast nú orönir efins um, aö efnahagsstefna Thatchers sé rétt. Frá sjónarmiöi rikis- stjórnarinnar er þaö ávinn- ingur, aö sterlingspundiö hefur heldur hækkaö I veröi, miöaö viö ýmsa erlenda mynt, en þaö hefur ekki bætt stööu út- flutningsa tvinnu veganna. EF James Callaghan, leiötogi Verkamannaflokksins, stendur viö þaö, sem hann var búinn aö boöa, mun fara fram i þessari viku umræöa I neöri málstofu þingsins um vantraust á rikis- stjórn Margaretar Thatchers. Callaghan boöaöi vantrausts- tillöguna I siöustu viku, þegar umræöur fóru fram um siöustu talningu atvinnuleysingja. Talningin þótti leiöa svo ógn- vekjandi staöreyndir I ljós, aö Callaghan taldi Verkamanna- flokkinn nauöbeygöan til aö sýna andstööu slna gegn stjórnarstefnunni meö þvi aö knýja fram atkvæöagreiöslu um, hvort íhaldsflokkurinn stæöi enn óskiptur um hana. J Eftir öllum sólarmerkjum aö dæma, eru engar llkur til þess aö tillagan veröi samþykkt. Þótt vaxandi gagnrýni gæti hjá sumum þingmönnum Ihalds- flokksins, eru þeir enn sammála um, aö Thatcher fái tækifæri til aö sannreyna stefnu sina I framkvæmd. Hún fær þvl enn nokkurn frest. En haldi svo áfram sem nú horfir, mun óánægja I flokknum vafalaust magnast og kröfunum um breytta stefnu aukast fylgi. Þingstyrkur Ihaldsflokksins er hins vegar svo mikill, aö Thatcher ætti ekki aö þurfa aö óttast neitt aö sinni. Ihalds- flokkurinn hefur 43 þingmönn- um fleira en andstæöingarnir sameinaöir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.