Fréttablaðið - 07.09.2007, Page 18

Fréttablaðið - 07.09.2007, Page 18
taekni@frettabladid.is Kapphlaupið til tunglsins: Önnur umferð Þarftu að breyta textaskjali í pdf- skjal en átt ekki Adobe Acrobat? Á vefsíðunni media-convert.com má gera það á eins einfaldan hátt og unnt er að ímynda sér. Þar er enn fremur hægt að framkvæma nær allar slíkar umbreytingar sem hugurinn girnist. Til að breyta einni tegund af skjali í aðra á síðunni þarf lítið annað en að smella á einn hnapp, velja skjalið sem breyta á og svo þá tegund af skjali sem breyta skal í. Þetta er talsvert einfaldara en gengur og gerist með forrit af sama meiði, sem jafnan þarf að greiða fyrir. Á vefnum má meðal annars breyta vídeóskjölum af DVD- diskum í skjöl sem spila má í venjulegum myndbandsspilara í tölvu, þótt stærð skjalanna sem breyta á sé takmörkuð við 150 megabæt. Einnig er til dæmis hægt að breyta hljóðskjölum úr einni tegund í aðra. Myndaskjöl- um, þar á meðal vektorgrafík og Photoshop-skjölum, má breyta í hvaða annað myndform sem er. Hægt er að slá inn vefslóð í stað þess að velja skjal og fá út mynd af vefsíðunni. Þá býður síðan upp á einkenni- legri möguleika, eins og að búa til svokallað MIDI-skjal úr hvaða hljóðskjali sem er, sem mætti þá nýta sem hringitón í síma, og að færa textaskjöl yfir á morskóða. Þjónustan er ókeypis en vissu- lega ekki fullkomin. Tilraun blaðamanns til að búa til pdf-skjal úr textaskjali skilaði því til dæmis að textinn í pdf-skjalinu varð brúnleitur en ekki svartur. Apple kynnti splunkunýja línu af iPod í fyrrakvöld. Meðal þeirra er iPod Touch, sem hefur snertiskjá og getur tengst netinu, og glæ- nýr iPod Nano sem hægt er að nota til að horfa á mynd- bönd. Samhliða var kynnt mikil verðlækkun á iPhone, sem hefur ekki selst eins og vonir stóðu til eftir að nýjabrumið fór af símanum. „Hann er einn af sjö undrum veraldar – hann er hreint ótrúlegur,“ sagði Steve Jobs, forstjóri Apple, um hinn nýja iPod Touch á veglegum blaðamannafundi sem blásið var til í ráðstefnuhöll í San Francisco í tilefni af útgáfunni. Hinn nýi iPod er talsvert frábrugðinn þeim sem hingað til hafa verið á markaði. Hann hefur raunar verið kallaður iPhone án síma, vegna þess hversu mjög honum svipar til símans fræga. Meðal nýrra eiginleika er mögu- leiki á að tengjast netinu í gegnum spilarann. Safari-vafri Apple er inn- byggður í hann og auk þess eru sér- stakir hnappar á nýjum snertiskjá sem leiða notendur beint á YouTube eða Google- og Yahoo-leitarvélarnar. Einnig verður notendum gert kleift að kaupa tónlist beint af iTunes í gegnum spilarann. Snertiskjárinn er einnig stærri en iPod-notendur eiga að venjast, eða 3,5 tommur. Nýju eiginleikarnir vöktu að vonum mikla athygli en einnig var tekið eftir því hversu lítið geymslu- pláss iPod Touch hafði að geyma. Hann er einungis framleiddur í tveimur útgáfum, með átta og sextán gígabæta geymsluplássi, en er þó nettur eftir því, einungis átta millimetra þykkur. Átta gígabæta útgáfan mun kosta 299 dollara og sú sextán gígabæta 399. Spilarinn ratar í verslanir vestan hafs í lok september. Hinn nýi iPod Touch var aðalefni kynningarinnar, en einnig var kynntur til sögunnar nýr iPod Nano sem spilað getur myndbönd. Útliti spilarans hefur verið gjörbreytt og svipar honum nú meira til hefð- bundins iPod, þótt talsvert smærri og léttari sé. Hann mun fást í fjögurra og átta gígabæta útgáfum og mun koma út nú í lok vikunnar. Þá var kynntur nýr 160 gígabæta sígildur iPod, tvöfalt stærri en sá 80 gígabæta sem áður var stærstur. Einungis verða framleiddar 80 og 160 gígabæta útgáfur hér eftir. Fundurinn var einnig nýttur til að kynna mikla verðlækkun á iPhone. Átta gígabæta útgáfan lækkar úr 599 dollurum í 399. Jobs sagði þetta vera gert til að auka sölu á símanum fyrir jólin. Frétta- skýrendur eru þó sammála um að tiltölulega slakri sölu megi kenna um – eða mögulega þakka – verðlækkunina. Þá var tilkynnt að hætta ætti sölu á fjögurra gíga- bæta útgáfunni. Nýr iPod með snertiskjá kallaður iPhone án síma Það skiptir máli að spara á réttum stað. Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is *Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. áúgst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is. Þú ert ekki hjá SPRON Verðbréfum Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra peningamarkaðssjóða á Íslandi síðustu 12 mánuði eða 15,4%*

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.