Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.03.1981, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 4; mars, I98X. 13 Félagslíf Kattavinafélag tslands: Aðalfundur Kattavinafélags ts- lands verður haldinn að Hall- veigarstöðum sunnudaginn 8. mars og hefst kl. 2. Stjórnin. Næsti fræðslufundur Fugla- verndarfélags íslands verður haldinn i Norræna húsinu mið- vikudaginn 4. mars 1981 kl. 8.30. Efni: Kristinn H. Skarphéð- ingsson, líffræðingur flytur fyrirlestur með ligglærum sem heitir: Flækingsfuglar, nýir landnemar á Islandi. öllum heimill aðgangur. Stjórnin Háskólafyrirlestrar Heimspekideild hefur ákveðið að gangast fyrir flutningi opin- berra fyrirlestraum rannsóknir og fræði i deildinni. Nú á vor- misseri munu fjórir kennarar deildarinnar flytja fyrirlestra um fræði sin, og er dagskrá þeirra og efni sem hér segir: Laugardaginn 7. marsmun Páll Skúlason prófessor i heimspeki flytja fyrirlestur sem nefnist Hugleiðingar um heimspeki og frásagnir. Laugardaginn 21. mars mun Jón Gunnarsson lektor i al- mennum málvisindum flytja fyrirlestur sem nefnist Hugleið- ingar um morfemgerð i indó— evrópsku. Laugardaginn 4. apríl mun Vé- steinn Ölason dósent i islensku flytja fyrirlestur sem nefnist Um ensk-islenska orðabók. Þessi laugardagserindi verða öll flutt I stofu 101 i Lögbergiog munu hefjast kl. 15:00. öllum er heimill aðgangur. Kirkjan Föstuguðsþjónustur: Bústaðakirkja: Föstuguðsþjón- usta I kvöld kl.20:30 Organleik- ari Guðni Þ. Guðmundsson. Séra Óiafur Skúlason. Langholtskirkja: Helgistund á föstu miðvikudag kl.20:30 Sókn- arprestur. Frikirkjan i Reykjavik: Föstu- messa i kvöld kl.20:30 sungið úr passiusálmunum, organleikari Sigurður Isólfsson, prestur séra Kristján Róbertsson. Ferðalög Lundarreykjadalur um næstu helgi, góð gisting i Brautar- tungu, sundlaug, gengiö með Grimsárfossum og á Þverfell, einnig gott tækifæri fyrir göngu- skiðafólk. Fararstj. Jón I. Bjarnason. Farseðlar á skrifst. Lækjarg. 6a, simi 14606. Útivist. Minningarkor Minningarkort Hjartaverndar eru til sölu á eftirtöldum stöð- um: Reykjavik: Skrifstofa Hjartaverndar, Lág- múla 9. Simi 83755. Reykjavlkur Apótek, Austur- stræti 16. Skrifstofa D.A.S. Hrafnistu. Dvalarheimili aldraðra við Lönguhlið. Garðs Apótek, Soga- vegi 108. Bókabúðin Embla, við Norðurfell, Breiðholti. Arbæjar Apótek, Hraunbæ 102a, Vestur- bæjar Apótek, Melhaga 20-22. Keflavik: Rammar og gler, Sólvallagötu 11. Samvinnu banjdnn, Hafnargötu 62. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Strand- götu 31. Sparisjóður Hafnarf jarðar, Strandgötu 8-10. Kópavogur: Kópavogs Apötek, Hamraborg 11. Akranes: Hjá Sveini Guðmundssyni, Jað- arsbraut 3. ísafjörður: Hjá Júliusi Helgasyni rafvirkja- meistara. Siglufjörður: Verslunin ögn. Akureyri: Bókabúðin Huld, Hafnarstræti 97. Bókaval, Kaupvangsstræti 4. MirTningarkort Sambands dýravendunarfélaga Islands fást á eftirtöldum stöömn: IReykjavik: Loftið Skólavörðu- stig 4, Verzlunin Bella Lauga- veg 99, Bókav. Ingibjargar "Einarsdóttur Kleppsveg 150, Flóamarkaði S.D.l. Laufásvegi 1 kjallara, Dýraspitalanum Viðidal. Minningarkort Styrktarfélags vangefinna fást á eftirtöldum stöðum: A skrifstofu félagsins Lauga- vegi 11, Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2, Bókaverslun Snæbjarnar, Hafn- arstræti 4 og 9, Bókaverslun Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði. . Vakin er athygli á þeirri þjón- ustu félagsins, að tekið er á móti minningargjöfum i sima skrif- stofunnar 15941 en minningar- kortin siðan innheimt hjá send- anda með giróseðli. Þá eru einnig til sölu á skrif- stofu félagsins minningarkort Barnaheimilissjóðs Skálatúns- heimilisins. Minningarkort Kvenfélags Lang holtssóknareru til sölu hjá Sigriði Jóhannsdóttur, Ljósheimum 18, s. 30994, Elinu Kristjánsdóttur, Alf-. heimum 35, s: 34095, Guðriði Gisladóttur, Sólheimum 98, s: 33115, Jónu Þorbjarnadóttur, Langholtsvegi 67, s: 34141, Kristinu Sölvadóttur, Karfavogi 46, s: 33651, Ragnheiði Finnsdótt- ur, Álfheimum 12, s: 32646, Rósin Álfheimum 74. Verslun Sigur- björns Kárasonar Njálsgötu 1. Holtablómið Langholtsvegi 126. ' Minningarkort Breiðholtskirkju fást hjá eftirtöldum aðilum: ’ Leikfangabúðinni Laugavegi I8a. Versl. Jónu Siggu Arnarbakka 2. Fatahreins.uninni Hreinn Lóuhólum 2—6. Alaska Breiöholti Versl. Straumnesi Vesturbergi 76. Sr. Lárusi Hallddrssyni, Brúnastekk 9. Sveinbirni Bjarnasyni, Dvergabakka 28. Minningarkort Barnaspitalasjóðs Hirngsins fást á eftirtöldum stöð- um: Bókaversl. Snæbjarnar, Hafnar- str. 4 og 9 — Bókabúð Glæsibæjar, — Bókabúð Ólivers Steins, Hafnarfirði — Bókaútgáfan Ið- unn, Bræðraborgarstig 16 — Versl. Geysi, Aðaistræti — Versl. Jóh. Norðfjörð hf. Laugavegi og Hverfisg. — Versl. Ó. Ellingssen, Grandagarði, Lyfjabúð Breið- holts, Arnarbakka 6 — Háleitis- apótek — Garðsapótek — Vestur- bæjarapótek — Apótek Kópavogs — Landspitalanum hjá forstöðu- konu — Geðdeild Barnaspitala Hringsins v/Dalbraut. I Allsherjar- atkvæðagreið- sla hjá BSRB Stjórn BSRB hefur borist áskorun liðlega 600 manna um að efnt verði til allsherjar atkvæða- greiðslu um viðaukasamning samtakanna við fjármálaráö- herra. I áskorun þessari er mótmælt röskun kjarasamninga, skerö- ingu verðlagsbóta, uppstokkun launaflokka og lengingu samn- ingstimabils. Stjdrnin hefur fjallaö um áskorun þessa og vill taka fram eftirfarandi: Með aðalkjarasamningi BSRB á s.l. hausti var mörkuð sú stefna og samþykkt i allsherjarat- kvæðagreiðslu að samræma launastiga BHM og BSRB á sa mningstimabilinu. Með úrskurði kjaradóms 5. jan s.l. skapaðist nýtt ósamræmi sem þurfti að leiðrétta. Með viöauka- samningnum frá 11. febr. s.l. er það gert i fullu samræmi við áður markaða stefnu. Jafnhliða þessari samræmingu fékkst nokkur hækkun fyrir þá sem ekki hafa beina viðmiðun við launastiga BHM og lægst laun hafa. Það var mat stjórnar og samn- inganefndar BSRB að rétt væri að gera þennan viðaukasamning enda þótt það hefði i för með sér lengingu samningstima. Þar sem samningar voru ekki lausir var samningsstaða BSRB með þeim hætti að annað hvort var að taka þessum samningi og þeim kjarabótum sem hann færir öllum félagsmönnum bandalagsins, eöa hafna honum. A sameiginlegum fundi stjórn- ar og samninganefndar var samningsviðaukinn samþykktur svo til einróma og jafnframt að ekki væri ástæða til að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu. Þeir félagsmenn sem nú vilja fá tækifæri til að fella þetta sam- komulag i allsherjaratkvæða- greiðslu, eru I raun að óska eftir þvi að afsalað verði 2.0-2.6% kauphækkun til um 85% félags- manna og meiri hækkun til ann- arra. Varðandi röskun kjarasamn- inga og skerðingu verðlagsbóta sem stjórnvöld hafa staðið fyrir vill stjórn bandalagsins taka undirgagnrýni undirskrifenda og itreka fyrri mótmæli sin viö þeirri kjaraskerðingu. 02.03. 81. Samþ. með atkv. allra stjórnarmanna. / Viðförum inn á svæðl ' asttbálksins, og þeir finna ur um leið! ■^okk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.