Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 8. mars, 1981. Hvilikt samsafn fagurra kvenna! Dettur nokkrum i hug að halda þvi fram, að Brigitte Bardot, Bette Midler, Anita Ek- berg, Gina Lollo- brigida, Dolly Parton, Claudia Cardinale eða Liz Taylor séu ekki glæsilegar með „njóttu-lifsins" kilóin sin. Mynd- irnar tala sinu r**í spegli tímans um „æskilega” þyngd sé bara uppátæki tiskufröm- uða. 'Nú er það „njóttu - lífsins ” þyngd sem gildir Ert þú ein af þessum pinu- litið ávölu? Ef svo er, ert þú i góðum félagsskap. Littu bara á myndirnar, sem fylgja hér mcð. Þessar fögru konur fá að ráða sér sjálfar, láta þær sér i lettu rúmi liggja, þó að á þær bætist nokkur ný kiló. Þegar þær njóta lifsins, koma þær sér I „njóttu—lifsins” þyngd. Þaö ætti okkur lika að vera óhætt að gera, bæði körlutn og kon- um. Það cr visindalega sannað nú, að okkur liði miklu betur og við lifum lengur mcð nokkur aukakiló á réttum stöðum. Eru læknar i Bandarikjunum og Þýska- landi sammála um það. Þessir „ávölu riddarar” mannúðarinnar og björg- unarmenn andmæla öllum skclfingaráróðri gegn ofþyngd.sem við höfum ver- ið ofurseld siöústu áratugina. Læknar hafa rænt okkur lifsgleðinni mcð sifelldum hótunum um að sérhvert kiló umfram „æskilega" þyngd stytti lif okkar um 8 mánuði. En nú hefur hjólið snúist við og eru margir þakklátir fyrir. Nýjustu rannsóknir hafa nefnilega leitt i ljós algera andstæöu þeirra, sem sagt,aö viðlifum lengur með okkar aukakltó. i Farmingham i Bandarikjunum hefur læknahópur rannsakaö þyngd ákveðins hóps manna og lifslengd undanfarin 24 ár. Arangur rannsóknarinnar gengur af goösögninni um, að hin svokallaða „æskilega”þ_yingd sé heilsu- bætandi, dauöri. Bandarisku læknarnir komust að raun um að á þessum 24 árum dóu 5,5% af þeim þátttakendum, sem voru af „æskilegri” þyngd. Dánartiönin meðal þcirra, sem létu sér liöa vel meö aukakilóin sin, var rúmu einu prósenti lægri! Nú er nokkur timi liöinn frá áramótafyrirheitunum góðu, og ekki vist, að öllum hafi tekist aö hrinda þeim i framkvæmd enn. Þeir, sem höfðu sett sér það markmið að segja skilið viö nokkur kfló, geta nú glaðst yfir þvi, aö öll sólarmerki benda til að þeir ættu bara að láta kyrrt liggja. Og þetta getur líka veitt þeim, sem hafa haft minnimáttarkennd vegna ávöiu línanna, aukið sjálfs- traust. Aðalatriðið er, aö þér þyki vænt um sjálfa þig! Sumir mæla lika meö að klippa þessa siðu úr blaöinu til aö sýna þeim, sem kannski eiga til að koma með óþægilegar athugasemdir Muniö að nýja tiskuþyngdin heitir „njóttu—lifsins”. krossgáta & &> <c mma 3527. Lárétt 1) Kúgun. 6) Aria. 7) Þröng. 9) Stafrófs- röð. 10) Heilsuspillandi. 11) Goð i þolf. 12) Trall. 13) Kindina. 15) Óréttlát. Lóðrétt 1) Fugl. 2) Þófi. 3) Þvingun. 4) Eins. 5) Núast. 8) Tása. 9) Hyl. 13) Utan. 14) Naf- ar. ráðning á gátu No. 3526. Lárétt 1) Vending. 6) Ýri. 7) Es. 9) Mu. 10) Tjónkar. 11) Ná. 12) LI. 13) Aum. 15) Maurinn. Lóðrétt 1) Vietnam. 2) Ný. 3) Drangur. 4) II. 5) Gaurinn. 8) Sjá. 9) Mal. 13) AU. 14) MI. bridge I tengslum við stórmótið i Borgarnesi var haldin rúbertukeppni. Svoleiðis keppnir geta verið þrælskemmtilegar þvi keppnisformið er þannig aö pör spila 3 spil saman. Eftir þau er gert upp og það parið sem hefur hærri tölu úr spilunum þrem heldur áfram, hitt dettur út. Það parið sem er undir eftir 2 spil verður þvi aðgripa til örþrifaráða i siðasta spili til að reyna að bjarga málunum. Spilið i dag er frá keppninni i Borgarnesi. Norður. S. 6 H.D8753 T. K5 L.DG975 Austur. S. — H. A106 T. D93 L. AK108642 Suður. S. AKD9874 H. 9 T. A 10762 L. — Þegareftir voru 8 pör mættust þeir Val- ur Sigurðsson, sem sat i suður, og Sverrir Ármannsson, sem sat i vestur. Eftir 2 spil áttu NS 250 fyrir ofan strik og geim að auki. AV þurftu þvi slemmu til að ná á- fram og Sverrir opnaði einfaldlega á 6 laufum á austurspilin. Nú var Valur i ó- þægilegri stöðu. 6 lauf gátu sem best stað- ið miðað við hans spil og hann ákvað þvi að láta kylfu ráða kasti og sagði 6 spaða, norðri til litillar ánægju. Vestur doblaði að sjálfsögðu og spilaði út laufi en Valur trompaði, tók tigulkóng og ás og trompaði tigul og trompaði lauf heim. Siöan tók hann þrjá efstu i spaða og spilaði tiglun- um og vestur fékk 2 slagi á spaða og einn á hjarta, +500 en NS fengu 300 fyrir geimið og unnu þvi viðureignina með 50. Vestur. S. G10532 H.KG42 T. G84 L. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.