Tíminn - 20.03.1981, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.03.1981, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 20. mars 1981. Yfir 70% reyk- viskra karla viiuia amk. 50 klst. í viku AM — t gær voru blaðamönnum kynntar nokkrar niðurstöður úr hóprannsókn Hjartaverndar á skólagöngu, atvinnu, húsnæði, heilsutari og fleiru, en hér er um að ræða niðurstöður, sem með timanum ættu að geta visað á á- hættuþætti varðandi hjarta- og æðasjúkdóma á islandi. Eru nú komnar út tvær viða- miklarskýrslur, sem byggðar eru á fyrsta rannsóknaþætti af þrem, sem þegar eru að baki um þetta efni en þessum þætti var lokið á árunum 1967-68. Var þá valið úr- tak fólks úr þjóðskrá á aldrinum 34-61 árs, alis 17000 einstaklingar. Þriðja áfanga lauk 1978 og sá fjórði stendur nú yíir og koma út gögn um þessa siðari þætti seinna. Hóprannsókn Hjartaverndar er viðtæk faraldsfræöileg könnun, fyrst og fremst á hjarta- og æða- sjúkdómum og áhættuþáttum þeirra Niðurstöður fjölmargra rannsókna benda eindregið til þess að lifnaöarhættir fólks ráði miklu um orsakir og gang þess- ara sjúkdóma og annarra svo- nendra velmegunarsjúkdóma. 1 þeim skýrslum sem þegar liggja fyrir, er eingöngu fjallað um karla, en hagkvæmt þykir aö rannsaka hvort kyn fyrir sig og eru karlar teknir til meðferðar á undan konum, þar sem þessir sjúkdómar eru stórfelldara vandamál þeirra á meðal. Hann- sóknin náði yfir Reykjavik og nærliggjandi sveitarfélög og var þriðjungur af sextán árgöngum karla á aldrinum 34-61 árs boðað- ur til könnunarinnar, eða 2955 karlar. Þátttaka var 75.1%. Framhald á bls. 19. Lausar stöður heilsugæslulæknis og tryggingalæknis Lausar eru til umsóknar tvær læknis- stöður: 1) Staða læknis við heilsugæslustöð i Borgarspitalanum, Reykjavik. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðiviður- kenningu eða reynslu i heimilislækning- um. Um laun fer skv. launakerfi rikisstarfs- manna. 2) Staða tryggingalæknis við Trygg- ingastofnun rikisins. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðiviðurkenningu eða langa starfsreynslu. Um laun fer skv. samningi Læknafélags Reykjavikur fyrir sérfræðinga. Stöðurnar veitast frá og með i. júni n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um læknis- menntun og læknisstörf sendist ráðuneyt- inu fyrir 20. april n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 19. mars 1981. Veðurathugunar- menn á Hveravöllum Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo einstaklinga, hjón eða einhleypinga, til veðurathugana á HveravöIIum á Kili. Starfsmennirnir verða ráðnir til árs- dvalar, sem væntanlega hefst i lok júli- mánaðar 1981. Umsækjendur þurfa að vera heilsuhraustir og reglusamir, og nauðsynlegt er, að a.m.k, annar þeirra kunni nokkur skil á meðferð véla. Tekið skal fram, að starfið krefst góðrar at- hyglisgáfu, nákvæmni og samviskusemi. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, heilsufar, menntun, fyrri störf og meðmælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa borist Veðurstofunni fyrir 15. april n.k. Allar nánari upplýsingar gefur deildar- stjóri áhaldadeildar Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9, Reykjavik. Ingvar Gíslason, menntamálaráöherra: Skynsamleg hagræð- ingaraðgerð — sem nauðsynlegt var að gera HEI — ,,Ég vil vara við þvi að láta það líta svo út, sem að þarna sé um einhverjar ógn- vekjandi aðgerðir aö ræða. Það er miklu fremur að um sé að ! ræða skynsamlegar hagræðing- araðgerðir, sem ég held að allir gætnir menn hljóti að viður- kenna, að nauðsynlegt var að gera”, svaraði Ingvar Gislason, menntamálaráðherra er Timinn ræddi við hann um skerðingu sjónvarpsdagskrár- innar. Hann sagði fjárhag Rikisútvarpsins hafa verið mjög slæman undanfarin ár — hallinn á árunum 1979 og 1980 er i kringum 15 millj. kr. (1.5 milljarðar g.kr.) — og nú sé I meiningin að bæta úr þvi. Ætlunin sé að reyna að reka Útvarpið hallalaust á yfirstand- andi ári og stefna siðan að þvi á næstu árum, að greiða upp þann halla sem myndast hefur. Ingvar benti á,að sú hefð hafi komist á hjá útvarpinu, undan- * farin ár, að nota jafnvel svo- kallað afskriftarfé, sem raun- verulega er framkvæmda- fjármagn — ætlað til uppbygg- ingar og endurnýjunar taátja- kosts — til dagskrárgerðar. Nú eigi að breyta til i þessu efni, enda nauðsynlegt fyrir stofnun- ina að þetta fjármagn fari til þeirra hluta sem það er ætlað til. Vissulega komi það niður á ráðstöfunarfé til dagskrárgerð- ar. Vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur fram, að ekki hafi verið leyfð eölileg hækkun af- notagjalda, sagðist Ingvar álita að ríkisstjórnin hafi eftir atvik- um viðurkennt hækkanir af- notagjalda, þó svo það hafi nægt til að greiða upp mikinn hallarekstur fyrri ára. Afnota- gjöldin hafi nú nýlega verið hækkuð um 22% fyrir fyrri helming yfirstandandi árs og siðar komi til athugunar hvað nauðsynlegt verði að hækka þau fyrir siðari hluta ársins. Dýrasta sjónvarpsefnið er það nærri. sem islenskir listamenn koma Sparnaður af styttingu sjónvarpsdagskrár: Yfirvinna sjónvarps- i manna á að minnka — Útsending erlends efnis kostar 130 kr. á minútu HEI — „Dagleg stytting sjón- varpsdagskrár bitnar eiginlega ekki á neinu efni öðru fremur. Ilins vegar það, að fara úr vetrardagskrá yfir i sumardag- skrá mánuðifyrr en vanter, það I þýðir að ýmsir fastir þættir detta niður fyrr en ella. Þar má t.d. nefna þætti eins og Frétta- spegil. Vöku og Stundina okk- ar", sagði Pétur Guðfinnsson, frmkv.stj. Sjónvarpsins, i sam- (ali i gær, vegna þeirrar dag- . skrárstyttingar sem nú hefur verið ákveðin. Auk þessa hættir útsending efnis milli kl. 18-19 á miðviku- dögum. Pétur sagði fækkun starfs- fólks ekki ráðgerða, a.m.k. Ifyrsta kastið. Hins vegar er reiknað með að yfirvinna — sem verið hefur töluverð — minnki. Einnig er reiknað með að leng- ing sumardagskrár um mánuð — en sá tirni er venjulega not- aður til að viða að efni i vetrar- dagskrá — auðveldi vinnu að innlendri dagskrárgerð án yfir- keyrslu og pressu á mann- skapnum. Spurður um hvert sé dýrasta sjónvarpsefnið, sagði Pétur þætti með innlendum lista- mönnum — hvortsem þarer um að ræða leikara eða hljómlistar- menn — gjaman verða nokkuð kostnaðarsama. Varðandi annað innlent efni sé þetta nokkuð breytilegt, þar sem sumt efni kostaði t.d. mikið i vinnulaunum og hráefni en litið i dagskrárgreiðslum, eins og t.d. heimildamyndir ýmiss konar, sem gerðar eru út um landið. Varðandi erlent efni er reiknað með að það kosti um 130 kr. á hverja minútu. Þar af er bein leiga til erlendra seljenda tæpur helmingur, eða um 60 kr. Næst dýrasti þátturinn i þvi er þýðingin og annar kostnaður er fragt til landsins, tryggingar og ýmis vinna við útsendingu. Pétur sagðist ekki viija samþykkja, að nýlegur samningur við leikara fæli i sér auknaleikritagerð — en það er dýrasta efni sjónvarpsins — heldur eiginlega aukna hvatn- ingu i þá átt. Aður hafi verið stefnt að þvi að gera 8 frumflutt leikrit á ári, en nú sé talað um að frumsýna eða endursýna leikrit mánaðarlega. Auk þess hafi endursýningar á vissan hátt verið auðveldaðar, þar sem nú megi endursýna verk ótak- markað á hálfugjaldi. Aður hafi verið miðað við 3 ár, en fullt gjald fyrir endursýningu að þeim tíma liðnum. Afnotagjöldum haldið niðri að áliti starfsmanna Sjónvarpsins: 1 Haf a hækkað um 86% á rúmu ári — segir ríkisstjórnin og því verulega umfram hækkun launa og verðlags á sama timabili HEI — Aðalfundur Starfs- mannafélags Sjónvarps hefur enn á ný samþykkt áskorun á stjórnvöld að sjá ti! þess að tekjumöguleikar Rfkisútvarps- ’ ins verði ekki skertir og stofn- uninni verði heimilað að hækka afnotagjöld f samræmi við verð- bólgu, að þvi er segir i frétt frá félaginu. Fundarmönnum þykir hart, að afleiðingar vanstjórnar í cfnahagsmálum skuli bitna á veigamestu menningarstofnun landsins. En fjársvelti þetta bitni illa á dagskrárgerð auk þess að koma í veg fyrir eðlilega endurnýjun tækja. í fréttatilkynningu frá rikis- stjórninni kemur fram aldeilis annað sjónarmið. Þar segir, að frá þvi'núverandi rikisstjórn tók til starfs, 8. febr. 1980, hafi verið heimilaðar 86% hækkanir á afnotagjöldum. Rikisútvarpið hafi þannig fengið verulega hækkun á afnotagjöldum um- fram hækkun launa og verðlags á sama ti'mabili.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.