Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 24
námsárið mitt og fæddist Baldur sonur okkar þar.“ Dramatískir hlutir gerast oft í leikhús- inu og á æfingarferli leikrita en Stefán segir að Poppleikurinn Óli hafi þó slegið öll met hvað slíkt varðar. Í enda æfingaárs höfðu leik- arar sýningarinnar farið í gegnum fimm hjónaskilnaði og stofnað hafði verið til tveggja nýrra hjónabanda. Sjálfskoðunin sem átti sér stað í meðferð verks sem fjallaði um einstaklinginn og mótun hans hafði áhrif á raunveruleg líf leikaranna og Stefán og Þórunn eignuðust barn. Þegar þau komu heim með soninn höfðu sænskar velferðartaugar einnig grasserað í taugakerfi Stefáns og Þórunnar og voru þau ein af þeim sem tóku á dagvistarvanda borgarinnar með því að stofna eigið barnaheimili sem enn er starfrækt í dag, það nefnist Ós. Ferilskrá Stefáns er löng og þétt. Stefán var fréttaritari Ríkisútvarpsins í Stokkhólmi öll námsárin og vann sem fréttamaður á sumrin. Árið 1974 sneri hann sér alfarið að leikstjórn. Leikverkin sem hann hefur sett upp eru nú orðin 80 talsins og árin orðin 35 sem hann hefur leikstýrt. Þrátt fyrir stjórnunarhlut- verk í Þjóðleikhúsinu og nú sem óperustjóri lítur hann alltaf fyrst og fremst á sig sem leik- stjóra, fær mesta útrás þar og líður best úti á gólfi. „Sem nýtist mér svo mjög vel í leikhús- stjórnun því þar ertu í raun að reka og stjórna mörgum sýningum.“ Spurður um hverja af eigin leiksýningum hann haldi mest upp á, svarar hann: „Það er erfitt að gera upp á milli en mér þykir vænst um sýningar eins og Stundarfrið eftir Guðmund Steinsson. Eins sýningarnar á Sölku Völku og Degi vonar. Af sýningum seinni ára þykir mér hvað vænst um verk Ibsens; Villiöndina og Brúðheimilið og svo er það auðvitað Veislan, sem ég er einna ánægðastur með af öllu sem ég hef gert.“ Stefán gat ekki svo auðveldlega hætt í leik- húsinu eftir að hann lét af störfum Þjóðleik- hússtjóra og stofnaði sitt eigið leikkhús með Hilmi Snæ, leikhúsið Skámána. Þær sýningar sem þeir hafa sett upp þar segir Stefán að sér þykir líka mjög vænt um: Ég er mín eigin kona og KillerJoe. „Jú, auðvitað er það sér- kennilegt að vera kominn í grasrótina í leik- húsheiminum eftir að hafa leikstýrt leikhús- flaggskipinu. Það er líka mikil barátta því stóru leikhúsin hafa fjármunina og þar með auglýsingafjármagnið. Þótt KillerJoe þyki til dæmis ein besta sýning bæjarins eigum við erfitt uppdráttar af því að þeir sem peningana hafa geta auglýst okkur í kaf.“ Það sest enginn í stól Þjóðleikhússtjóra án þess að einhverjir kasti brenni á bálið af og til. Stefán segir þó að í það heila hafi engir átakanlegir árekstrar orðið. Í byrjun voru þó, eins og frægt er orðið, nokkrir starfs- menn látnir fara og Stefán segist hafa tekið viðbrögðin í kjölfar þess inn á sig. „Þetta voru ekki margir einstaklingar en ég hafði unnið með þeim lengi og þekkti þá alla per- sónulega. Nokkur hystería fór í gang en hugsunin með þessum aðgerðum var að fá smá hreyfanleika á leikhópinn og yngja hann upp en yngsti fastráðni leikarinn þá var 34 ára gamall. Það var algjör stefnu- yfirlýsing og meðvituð ákvörðun um að fá inn kornunga leikara á fasta samninga.“ „Stjörnufaðirinn“ hafa einhverjir kallað Stefán og vísa þá í þá fjölmörgu ungu leik- ara sem þá fengu tækifærið og komu sér rækilega á kortið. Stefán hefur áður blásið á stjörnuhugtakið í viðtölum og gerir það enn. Honum finnst sígilda umræðan um „gulldrengina“ með tilvísun í meðal annars Baltasar, Ingvar og Hilmi Snæ líka mjög ósanngjörn. „Ungu leikkonurnar sem komu þarna fram voru líka mjög sterkar og eru. Ég setti þetta unga fólk í framlínuna af því ég hafði tröllatrú á hæfileikum þeirra. Það er grundvallarkrafa leikhússtjóra að rækta sitt listafólk. Gefa því fjölbreytileg tæki- færi og ólík. Þegar fólk fær slík tækifæri hefur það möguleika á að verða betra og betra. Það má segja að þessir leikarar hafi verið undir mínum verndarvæng. Maður vonaðist allavega til þess að þetta yrðu burðarleikarar framtíðarinnar.“ Sé þreifað fyrir sér er fljótlegt að komast að því að Stefán er fremur vel liðinn maður miðað við hversu umdeildur hann gæti verið í sínu starfi og stöðu. Af hverju telur hann það vera? Stefán tekur mínútu í umhugsunar- frest. „Ég reyni að byggja mín mannlegu samskipti á því að mynda traust og vera hreinskiptinn. Mér hefur alltaf fundist fáránlegt, eins og einstaka leikstjóri gerir, að öskra og æpa á fólk og skipa því fyrir. Þú færð ekkert til að springa út hjá leikaranum nema það gerist í mjög miklu trúnaðar- sambandi. Ég reyni að láta fólk njóta sann- mælis og virða það. Svo skiptir auðvitað öllu máli í starfi að trúa því að við séum að gera gagn.“ Almannarómurinn segir þó ekki aðeins að Stefán sé vel liðinn. Hann segir einnig að hann sé ofurstundvís og stilli klukkuna sína nokkrum mínútum á undan. Hafi jafnvel stillt klukku annarra leikara of fljótt. Stefán staðfestir það. Einnig hefur heyrst að hann sé yfirleitt skapgóður og mjög dagfarsprúður en misbjóði honum, sé vissara að verða ekki á vegi hans. „Það fýkur ekki oft í mig, ef ég á að lýsa sjálfum mér – sem enginn á auðvitað að gera. Í grunninn er ég húmanisti en þrjóskari en andskotinn, segir konan mín. Ég er fæddur í tvíburamerkinu sem skýrir líka ýmislegt – fyrir þá sem eru í þeim pælingum. Tvíburinn er mjög óút- reiknanleg persóna og við erum nokkur úr leikhúsinu sem eigum sama afmælisdag í þessu merki, 18. júní klúbburinn, Viðar Eggerts, Kristbjörg Kjeld, Tinna Gunnlaugs og fleiri.“ Afköst listamanna eru misjöfn en Stefán skorar hátt á því prófi. Er hann jafnskipu- lagður og stundvís? „Um leið og maður hefur gaman af því sem maður er að gera verður maður aktífur. Mér finnst ég sko eiga fullt eftir og leyfi mér að segja að mér finnst ég aldrei hafa jafnmikið að gefa í starfi og núna því lífsreynslan er orðin svo miklu meiri og dýpri.“ Stefán er einn þeirra sem stundað hefur kínverska leikfimi hjá Gunnari Eyjólfssyni leikara í nokkur ár og ætlar hann að byrja fljótlega aftur eftir að hafa trassað það um langa hríð. „Maður kemst auðvitað ekki yfir allt en mig hefur alltaf langað að læra á píanó, bara fyrir sjálfan mig, sem og að læra ítölsku! Kannski óperustjórastarfið verði til þess að ég drífi í málinu.“ Tilveran er þá kannski eitthvað rólegri eftir að hann kom í óperuna? Eða hvað? „Já, þetta er auðvitað aðeins umfangsminna og starfseminni meiri takmörk sett. Þannig séð er þetta eitt leikhúsið enn og maður hefur því nokkuð góða stjórnunarreynslu í far- teskinu. Þó er þetta öðruvísi. Hér ræður tónlistargyðjan ríkjum og það finnst mér skemmtileg ögrun. Ég fór að hafa áhuga á óperum um það leyti sem ég byrjaði í menntaskóla og fór þá að kaupa þær á grammafónplötum. Ég á margar eftirlætis- óperur og eftirlætistónskáldin eru Verdi og Mozart – svo sem ekki mjög frumlegt. En þeir eru bara einfaldlega óviðjafnanlegir.“ Stefán segir óperuheiminn vera ótrúlega lítið framandi eftir að leiðin hafi legið um leikhúsið í svo langan tíma. „Ég hef séð flestar uppfærslur Íslensku óperunnar frá upphafi. Óperan er auðvitað ákveðið leik- húsform sem er mjög spennandi og ótrúlega mótsagnakennt. Því þótt að hver einasta nóta sé þar fyrirfram skrifuð er formið um leið svo abstrakt og opið að það býður upp á óendanlegt frelsi í sviðsetningu. Slíkt er mjög spennandi fyrir leikhúsmann eins og mig. Mig langar að gera íslensku óperuna að meira spennandi leikhúsi en hún hefur oft verið. Sýningarnar á undanförnum árum hafa oft verið frábærar tónlistarlega séð en kannski ekki alltaf jafn spennandi út frá leikhússjónarmiði.“ Þegar óperustjórinn er inntur eftir stefnu- yfirlýsingu ítrekar hann að það sé alltaf hættulegt að vera með einhverjar stefnu- yfirlýsingar. „Ég hugsa að ég reyni frekar að sýna stefnu mína í verki á næstu misser- um. Og það tekur alltaf smá tíma að marka sér ímynd. Þegar ég var ráðinn hingað var til dæmis búið að skipuleggja töluvert af þessum vetri. Ég fékk að vísu að breyta því flestu. Mín fingraför munu því betur koma í ljós þegar líður á vetur og það tekur um tvö til þrjú ár að sýna andlit sitt almenni- lega.“ Fyrsta stóra óperan sem Stefán ber alfarið ábyrgð á er sjálf drottning óperunn- ar; La Traviata. Er hún dæmi um það sem koma skal? „Það var stefna forvera mína hér að sýna fyrst og fremst óperur sem hafa ekki verið sýndar áður. Það er mjög virðingarvert að kynna þær en það má samt ekki gleyma hinu. Fjöldinn fer frekar á óperur sem þeir kannast við og hefur heyrt aríur og dúetta úr og þess vegna er það ákvörðun mín að opna dyrnar aftur fyrir þessum þekktari og vinsælli óperum sem er alltaf hægt að gera upp á nýtt með nýjum listamönnum á ferskan og spennandi hátt. Samhliða þessu er auðvitað nauðsynlegt að bjóða svo upp á eitthvað kröfuharðara fyrir áhorfendur og flytjendur sem og íslenskar óperur.“ Stefnt er að að gjörnýta hús Íslensku óper- unnar með samstarfsverkefnum, tónleikum og ýmsu öðru en óperum vetrarins. „Hús- næðið sem slíkt er alltof lítið. Það er mjög sjarmerandi en bæði eru sætin of fá til að þau standi undir kvöldkostnaði óperusýn- inga fjárhagslega og svo er engin aðstaða baksviðs. Það er í raun kraftaverk hve oft hefur verið hægt að koma hér upp flottum sýningum. Nú er hinsvegar verið að leggja drög að því að koma upp Óperuhúsi í Kópa- vogi í miklu samstarfi við okkur. Óperan mun þá afsala sér húsinu hér í Ingólfsstræti þegar ný bygging verður risin. Við skulum vona að húsið verði notað áfram undir menningarstarfsemi og ekki verði opnaður hér stórmarkaður. Það er trú mín og ósk að Íslenska Óperan eflist og dafni enn frekar á næstu árum og mikilvægt að ráðamenn haldi áfram eindregnum stuðningi við óperuflutning. Okkar er að vanda okkur og standa okkur gagnvart áhorfendum.“ Ætl- arðu að vera jafn lengi hér og í Þjóðleikhús- inu? „Ég er ráðinn hér til fjögurra ára. Lengra hugsa ég ekki í bili.“ Auðvitað þótti okkur á þessum tíma óperan hámark niðurnjörvaðra borgaralegra gilda. Barsmíðarnar áttu sér stað þegar við ætluð- um að hertaka óperuhúsið þar í Stokkhólmi. Mann grunaði eflaust ekki hvar maður ætti eftir að lenda tæpum 40 árum síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.