Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 17
SUNNUDAGUR 9. desember 2007 17
FÓTBOLTI Ásthildur segir það hafa
verið erfitt að horfa upp á
íslenska liðið tapa fyrir Slóveníu,
neðsta liðinu í riðlinum, í fyrsta
leiknum án hennar.
„Þetta er ekkert búið þrátt
fyrir þetta tap. Það eru ennþá
möguleikar á því að vinna riðilinn
og annað sætið gefur umspil.
Þetta er því allt opið ennþá. Það
væri gaman ef maður gæti
hjálpað liðinu á einhvern hátt en
ég kem til með að fylgjast vel
með þeim og styðja við bakið á
þeim á allan mögulegan hátt. Það
er engin eftirsjá að hætta núna þó
að ég hefði vissulega viljað klára
þessa undankeppni.“ - óój
Ísland í undankeppni EM:
Þær geta ennþá
unnið riðilinn
STYÐUR VIÐ STELPURNAR Ásthildur
Helgadóttir fagnar hér með íslenska
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FÓTBOLTI Meiðslin sem sjá til þess
að Ásthildur Helgadóttir leggur
skóna á hilluna hljóma kannski
ekki svo illa en það varð líklega
dýrkeypt að hún spilaði átta leiki á
ónýtum liðþófa.
Sumarið var Ásthildi því erfitt.
„Miðað við hvernig sumarið er
búið að vera þar sem ég átti í erf-
iðleikum með að ganga þá verður
þessi ákvörðun mikið auðveldari.
Mér var svo illt að ég gat varla
hlaupið en var samt að reyna að
spila. Gat varla gengið á milli
leikja, æfði ekkert og spilaði bara
leikina. Þá er þetta ekkert jafnga-
man,“ segir Ásthildur sem vann
sig út úr krossbandaslitum árið
2004.
„Krossbandaslit eru vissulega
mjög alvarleg meiðsl en á vissan
hátt hafa þessi meiðsli verið erfið-
ari fyrir mig. Þegar ég sleit kross-
band þá fékk ég reyndar blóðtappa
og þurfti að bíða í þrjá mánuði
eftir aðgerðinni. Svo fór ég í
aðgerðina og þurfti að bíða í sex
mánuði. Ég vissi bara að þannig
væri líf mitt. Ég tók endurhæfing-
unni bara eins og hverju öðru
verkefni. Þessum meiðslum núna
fylgir svo mikil óvissa og ég fékk
engin tímamörk. Eftir að ég fór í
aðgerðina þá var mér sagt að ég
ætti að ná mér á sex til átta
vikum.
Ég var þá dugleg í endurhæf-
ingunni en þegar ég ætlaði að fara
að skokka eftir sex vikur þá gekk
það ekki. Ég beið í eina viku og svo
aftur í eina viku en það breyttist
ekkert og þetta varð allt leiðinda-
óvissa og alltaf sömu vonbrigðin,“
segir Ásthildur. - óój
Ásthildur um liðþófameiðslin sem þvinga hana til þess að hætta í fótbolta:
Erfiðara en að slíta krossbönd
FERILL ÁSTHILDAR
1991 Breiðablik (ÍM) 13 leikir / 0 mörk
1992 Breiðablik (ÍM) 14 leikir / 7 mörk
1993 KR (ÍM) 12 leikir / 5 mörk
1994 KR 13 leikir / 19 mörk
1995 Breiðablik (ÍM) 14 leik. / 9 mörk
1996 Breiðablik (ÍM) 13 leik. / 17 mö.
1997 Breiðablik 8 leikir / 6 mörk
1998 KR (ÍM) 10 leikir / 10 mörk
1999 KR (ÍM) 10 leikir / 6 mörk
2000 KR 14 leikir / 18 mörk
2001 ÍBV 5 leikir / 2 mörk
2002 KR (ÍM) 14 leikir / 20 mörk
2003 KR (ÍM) 12 leikir / 16 mörk
2003 Malmö 3 leikir / 2 mörk
2004 Malmö Meidd (Krossbönd)
2005 Malmö 22 leikir / 17 mörk
2006 Malmö 21 leikir / 19 mörk
2007 Malmö (LdB) 11 leikir / 8 mörk
Titlar og viðurkenningar
Íslandsmeistari 9 sinnum
Bikarmeistari 4 sinnum
Besti leikmaður 3 sinnum
Markahæst 2 sinnum
ÞRISVAR KNATTSPYRNUKONA ÁRSINS
Ásthildur með Eiði Smára Guðjohnsen.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
135 MÖRK Í ÍSLENSKU DEILDINNI Ást-
hildur skoraði 135 mörk í 152 deildar-
leikjum á Íslandi með Breiðablik, KR og
ÍBV. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LEIÐTOGI Ásthildur Helgadóttir var fyrir-
liði íslenska landsliðsins í 34 leikjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
46 MÖRK Í 57 LEIKJUM Ásthildur skorar
hér eitt af mörgum mörkum sínum fyrir
sænska liðið Malmö. FRÉTTABLAÐIÐ/URZSULA
ALDREI Á BEKKNUM Ásthildur hitar upp
fyrir einn af 69 landsleikjum sínum. Hún
byrjaði inni á í þeim öllum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR JÖKULL
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
JÓLAGJÖF
SEM FLÝGUR ÚT
Sölutímabil er til 24. des. 2007 kl. 18:00. Bókunartímabil er til og með 25. jan. 2008. Ferðatímabil er frá 12. janúar til og með 31. maí 2008. Til Bergen, Gautaborgar, Halifax og Toronto er ferðatímabilið til og með
15. júní 2008. Jólapakkatilboð gildir til allra áfangastaða sem Icelandair flýgur til í beinu áætlunarflugi frá Íslandi. Undantekningar eru: Orlando, Salzburg, München, Madrid, Mílanó og Barcelona. Lágmarksdvöl er
aðfaranótt sunnudags. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 500 til 12.800 Vildarpunkta. Jólapakkarnir fást líka á söluskrifstofum Icelandair og í Fjarsölu í síma 50 50 100
gegn þjónustugjaldi.
Safnaðu
Vildarpunktum
Evrópa 26.900 kr.*
Bandaríkin 36.900 kr.*
Saga Class Evrópa 52.900 kr.*
Saga Class Bandaríkin 62.900 kr.*
Einungis fyrir handhafa
Vildarkorta VISA og Icelandair.
Evrópa 32.900 punktar**
Bandaríkin 47.900 punktar**
20% barnaafsláttur gildir í almennu farrými.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
**Greiða verður flugvallarskatta (Evrópa 8.205 kr., USA 13.065 kr.)
*Skattar eru innifaldir í verði.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
02
05
1
2/
07