Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 89

Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 89
51 MENNING S enn lýkur uppboðahrinu hjá stóru uppboðshúsunum austan hafs og vest- an og þótt niðurstöður liggi ekki fyrir frá nokkrum stórum uppboðum í næstu viku er ljóst að verð á málverk- um eftir hin stærri nöfn frá síðustu öld hækkar og hækkar. Christie’s, Sotheby’s og Philips de Pury seldu í nóvember myndlist fyrir áður óþekkta upphæð, 948 milljónir dala. Hrær- ingar á fjármálamörkuðum höfðu engin áhrif á markaðinn nema síður væri, sjóðir og fjársterk- ir einstaklingar líta á verk eftir tiltekna lista- menn sem örugga fjárfestingu. Hafa uppboðs- húsin ekki séð önnur eins verð síðan markaður með myndlist náði hámarki á tíunda áratugn- um. Á uppboðum nóvember seldust 83 prósent verka. Málverk eftir írska málarann Francis Bacon, Second Version of Study for Bullfight No. 1, var slegið á 46 milljónir dala hjá Sotheby’s. Sjálfsmynd hans á sama uppboði seldist fyrir 33 miljónir dala. Meðfylgjandi listi sýnir hvaða listamenn fóru á hæstu verðum í nóvember: Francis Bacon, Andy Warhol, Mark Rothko sitja efst á listanum, Untitled (Red, blue, orange) eftir bandaríska málarann Mark Rothko seldist á 34,2 milljónir dala og eitt þrettán málverka Warhol af Liz úr eigu Hugh Grant leikara fór á 23,6 milljónir. Höggmyndir eða þrívíð verk eru líka seld á þessum uppboðum og þar er líka mikil hreyfing á fjárhæðum sem gefnar eru fyrir verk tiltekinna höfunda: Hanging Heart (Magenta/Gold) eftir Jeff Koon fór á 23,6 milljónir hjá Sotheby’s og sló metið frá í vor þegar hæsta verð var goldið fyrir verk eftir núlifandi listamann, en þá seldi Sotheby Lullaby Spring eftir Damien Hirst. Metverð fékkst einnig fyrir verk eftir John Chamber- lain, Anish Kapoor og Richard Serra, svo menn geta litið Áfanga hans í Viðey með verðmerki í huga þyki það betra. Verk eftir eldri höfunda halda sinni stöðu, Picasso, Calder og Modigli- ani seldust vel. Kínversk verk eftir lifandi málara hafa farið háu verði á uppboðum bæði í Asíu og Ameríku á síðustu misserum: Zhang Xiaogang er í miklum metum en eitt verka úr röð hans Family Portrait seldist fyrir skömmu á tæpar 5 milljónir dala. Hann mun eiga verk á sýningu Listasafns Akureyrar í vor á Listahátíð. Tekið er eftir að svokallaðar dagsölur eru teknar að velta stórum upphæðum, sem hafa verið bundnar við kvölduppboðin. Dagsala Sotheby’s í síðustu viku sló met; þar fóru verk fyrir 102 milljónir dala enda í boði verk eftir Gerhard Richter, Robert Indiana, Andy Warhol og Takashi Murakami, Warhol þeirra Japana. Tekið er eftir að þátttaka í uppboðum er nú alþjóðleg, ræður þar tilkoma netsins og boð um síma. Bandaríkjamenn er enn fyrirferðarmest- ir á uppboðum. Þeir áttu 55 prósent boða hjá Sotheby´s í síðustu viku. - pbb MYNDLIST SÍFELLT DÝRARI Topp tíu listinn í seldum verkum síðasta mánaðar. Francis Bacon, Second Version for Bullfight. Nr. 1. $45,961,000 Mark Rothko, Untitled (Red, blue, orange) $34,201,000 Francis Bacon, Self Portrait $33,081,000 Jeff Koons, Hanging Heart (Magenta/Gold) $23,561,000 Andy Warhol, Liz $23,561,000 Mark Rothko, No. 7 (Dark Over Light) $21,041,000 Willem De Kooning, Untitled XXIII $19,921,000 Lucian Freud, Ib and Her Husband $19,361,000 Andy Warhol, Elvis 2 Times $15,721,000 Andy Warhol, Self Portrait (Green Camouflage) $12,361,000 FRANCIS BACON 1909-1992: SEC- OND VERSION OF STUDY FOR BULL- FIGHT NO. 1. 200 x 147,7 sm. Olía á striga 1969. MYND: SOTHEBY´S IMAGES 19 Björn Ingólfsso n Endurminninga r Sveins í Kálfss kinni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.