Tíminn - 19.07.1981, Side 7

Tíminn - 19.07.1981, Side 7
Sunnudagur 19. júli 1981 7 Edward Crankshaw: The Fall of The House of Habsburg Papermac / Macmill- an 1981. Austurrfska keisaradæmið var merkilegt, en þó ekki al- veg einstætt, að þvi leyti að það var ekki þjóðriki heldur spannaði einungis eignir Habsborgarfjölskyldunnar sem voldugust varð á fyrri tlð ef Romanovar eru undan- skildir. Af þessu leiddi að keisaradæmið stóð og féll með þessari einu ættog i ljós kom að hiín hafði ekki hæfileika til að laga sig að breyttum þjóð- félagsaðstæðum á 19. öld, að hún var orðin úrkynjuð og spillt — þá megnaði hún ekki að standa gegn vaxandi þjóð- ernis- og frelsishreyfingum i rfkjunum sem hún réði. Crankshaw, einn mesti sagn- fræðingur Breta, rekur söguna allt frá ti'ma Napoleons mikla og til hrunsins sem varð i fyrri heimsstyrjöld þegar Franz Josef féll og stóð ekki upp aft- ur. Bókin er frábær íysing á hnignandi heimsveldi hún er mjög löng og itarleg en útgifa Papermac er mjög aðgengileg og þægileg. Nauðsyn fyrir áhugamenn um Hábsborg- ara... Benjamin Siegel: The Jurors Pan Books Það er hressandi — einmitt nú þegar allir reyfarar og spennusögur gerast á heims- grundvelli, New York,, Paris, London, Moskva og helst Sviss, og snúast um kalda kappa sem eru ekkert minna en að bjarga heiminum með kynósandi aðstoðarstúlkum sinum — að fá uppí hendurnar bók á við þessa hér sem fjallar bara um eitt „venjulegt” morð. Aukinheldur gerist sag- an i réttarsal, slik drama voru mjög vinsæl I eina tið en hafa illu heilli komist úr tisku. The Jurors er bandarisk, vændis- kona hefur verið myrt i smá- bæ og kærastinn er handtek- inn. Hann virðist sekur en sönnunargögn eru fá ein. Það er þvi kviðdómurinn sem hlýt- ur að taka ákvörðun einn og óstuddur og frá hans sjónar- miði er sagan sögð. Hvaða áhrif hefur það að eiga að ákveða örlög manns, nánast eins og að kasta upp krónu? Siegel tekst bærilega að kom- ast frá viðfangsefni sinu og bókin er hressandi sem áður sagði. James Purdy: Malcolm Penguin 1980. Þessi bók var fyrst gefin út árið 1959, f Bandarikjunum, og vakti þá mikla athygli. Þótti mörgum sýnt að upp væri ris- inn nýr snillingur. Siðan hefur Purdy að mestu fallið i gleymsku og dá og þessi út- gáfa Penguin-forlagsins á frægustu bók hans er i og með tilraun til að beina sviðsljós- inu að nýju að honum. Og það á hann fyllilega skilið, ef marka má Malcolm. Þetta er stutt saga og litskrúðug, segir af fallegum manni sem stjörnuspekingurinn Cox finn- ur sitjandi á bekk. Cox vill uppræta einmanakennd Malcolmsog kynnir hann fyrir vinum si'num — fjölskrúðug- um, ýkjukenndum hópi. Og Malcolm lætur sér I bili vel h'ka. Still Purdys er eftirtekt- arverður og þessi bók sver sig i ætt við margar þær skáldsög- ur sem vinsælastar hafa orðið á 20. öld, glaðlegar sögur með dapurlegum undirtón (eða öfugt). Malcoím er fyndin, heiðarleg bók. David Lippincott: Sal Mine A Signet Book / New American Library 1979 Þessi bók er einmitt ein af þessum reyfurum þar sem flest snýst hreint og beint um heimssögulega atburði. Ætli reyfarahöfundar verði ekki bráðum búnir að þurrausa alla möguleika á heimsfrelsun og æsingi sem til eru? Þessi gerist i Svovétrikjunum: i hjarta kerfisins er ótrúlegur hópur af „andtífsmönnum” sem ráðast inni sjálfa Kreml- arhöllina og taka þar menn i gfslingu. Sovésku stjtírninni eru settir úrslitakostir og þeir svakalegir — annaðhvort má hún hlýða eða farast. Og með- an fresturinn rennur út er bit- ist á hæl og hnakka meðal hauka og dúfna og endirinn er vis með að koma á óvart. Salt- náman er engin gullnáma en Lippincott kann að vefa sögu- þráð og leysa Ur honum, á oft á tíðum fjarska spennandi hátt. Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bóka- verslun Máls og menningar. Volvo-eigendur! Við lokum EKKI VERKSTÆÐINU vegna sumarleyfa — en biðjum viðskiptavini okkar að sýna um- burðarlyndi þar eð hluti starfs- manna er i sumarleyfi til ágústloka VELTIR H.F. KENWOOP, Stálskál Ávaxtapressa Dósahnífur Grœnmetisrifjárn Endingargóð og varan- Skilar ávaxta- og græn- Opnar allar tegundir Sker og raspar niður I leg skál, tilvalln I alla köku- og brauðgerð. metissafa meö öllum dósa án þess að skilja salat. — Búið til yöar vltamlnum. eftir skörðóttar brúnir. eigin frönsku kartöflur með til þess gerðu járni. KENWOOD er engin venjuleg hrærivél. Verð með skál, þeytara, hnoðar og hrærara Kr. 3.550. . Hakkavél Hakkar kjöt og fisk jafn- óðum og sett er I hana. Einnig fljótvirk við geró ávaxtamauks. Grænmetiskvörn Blandar súpur, ávexti, kjötdeig og barnamat. Saxar hnetur, o.fl., malar rasp úr brauöi. Kaffikvörn Malar kaffiö eins gróft eða flnt og óskaó er og ótrúlega fljótt. i iiiwiiir Hraðgengt rifjárn Sker niður og afhýðir grænmeti á miklum hraða og er með fjórum mismunandi járnum. Þrýstisigti Aðskilur steina og annan úrgang frá ávöxt- um. Auöveldar gerö sultu og ávaxtahlaups. Rjómavél Býr til Ijúffengan, fersk- an rjóma á nokkrum sekúndum, aðeins úr miólk og smjöri. Sitrónupressa Býr til Ijúffengan fersk- an sltrussafa á litlu iengri tlma en tekur að skera sundur appelslnu. Grænmetisrifjárn Sker niður rauðrófur, agúrkur, epli, kartöflur. Raspar gulrætur, ost, hnetur oa súkkulaði. KENWOODchef ggypj SLDHÓSHJÁLPIN Kartöfluhýðari Eyðió ekki mörgum stundum i aó afhýða kartöflur sem Kenwood afkastar á svipstundu. Hetta Yfirbreiðsla yfir Ken- wood Chef vélina.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.