Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 4
4 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR EFNAHAGSMÁL Áhrif samninga aðila vinnumarkaðarins og aðgerða ríkis- stjórnarinnar verða í heildina jákvæð, segir Edda Rós Karls dóttir, formaður greiningardeildar Lands- bankans. Hún segir aðgerðir ríkis- stjórnarinnar ekki koma á óvart, enda í samræmi við stjórnarsátt- mála. Því þurfi ekki að endurskoða langtímaspár um efnahagslífið hér á landi. „Þetta mun örugglega auka sjálfstraust á hlutabréfamarkaði,“ segir Edda Rós. Það sé mikilvægt að samningar hafi náðst um kaup og kjör, en ekki sé síður mikilvægt að skattalækkanir á fyrirtæki, sem boðaðar voru í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, hafi verið útfærðar og tímasettar. Krónan styrktist lítillega í gær- morgun, en Edda Rós segir of snemmt að dæma um áhrifin á fyrsta degi. „Við erum öll að leita að botninum,“ segir hún. Mikil svartsýni hafi haft áhrif á verð- myndun á hlutabréfamarkaði hér á landi undanfarið, og kjarasamning- ar og boðaðar aðgerðir ríkisstjórn- arinnar muni væntanlega draga úr óvissu og um leið draga úr svart- sýni. Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands hækkaði um 1,33 prósent í gær. Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans segir að boðuð skattalækkun eigi þátt í þeirri hækkun. Kjarasamningarnir munu líklega verða til þess að lendingin í efna- hagslífinu verði mýkri en ella, en Edda Rós segir að þrátt fyrir það sé staðan með þeim hætti að ekki séu lengur líkur á því að lendingin verði mjög mjúk. „Það verða einhver átök að lenda þessu, en þetta útspil er mjög jákvætt.“ Framkvæmd nýgerðra kjara- samninga skiptir miklu máli þegar áhrifin á verðbólguna eru metin, segir Edda Rós. Samningarnir gera ráð fyrir því að lægstu launin hækki umtalsvert á vinnustöðum þar sem greitt er að mestu eftir töxtum, en þeir sem notið hafi mikils launa- skriðs undanfarið fái ekki slíkar hækkanir. Miklu mun því skipta hversu langt upp launastigann hækkanirnar ganga, segir Edda Rós. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabankans, vildi í gær ekki tjá sig um áhrif kjarasamn- inga og aðgerðar ríkisstjórnarinn- ar. Hann segir vandasamt að meta hvað þetta þýði þegar upp er staðið, oft sé ekki allt komið upp á yfir- borðið þó að samningar hafi verið undirritaðir. Sérfræðingar bankans munu fara vandlega yfir áhrifin af samning- unum og aðgerðum stjórnvalda á næstunni, en næsti vaxtaákvörðun- ardagur Seðlabankans er hinn 10. apríl. Sama dag gefur bankinn út ritið Peningamál, þar sem fjallað verður ítarlega um áhrifin, segir Arnór. brjann@frettabladid.is Hafa jákvæð áhrif á hlutabréfamarkað Nýgerðir kjarasamningar og aðgerðir stjórnvalda mun líklega draga úr svart- sýni á hlutabréfamarkaði að mati formanns greiningardeildar Landsbankans. Sérfræðingar Seðlabankans skoða áhrifin fyrir vaxtaákvörðunardag í apríl. HANDSALAÐ Þeir Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, tókust í hendur eftir að kjara- samningar höfðu verið undirritaðir á sunnudagskvöld. Formaður greiningardeildar Landsbankans segir samningana líklega leiða til mýkri lendingar í efnahagslífinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EDDA RÓS KARLSDÓTTIR ARNÓR SIGHVATSSON LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn í fyrrinótt eftir innbrot í söluturninn Bláturn við Háaleitis- braut í Reykjavík. Voru mennirnir teknir skammt frá söluturninum. Var annar þeirra skorinn á fæti en þó nokkuð blóð var á vettvangi innbrotsins. Var sá slasaði fluttur á slysadeild til aðhlynningar og að því búnu í fangaklefa hvar félagi hans beið. Mennirnir, sem eru góðkunningjar lögreglunnar, voru undir áhrifum vímuefna og því látnir sofa úr sér áður en þeir voru yfirheyrðir í gærdag. Þeir höfðu aðeins lítilræði upp úr krafsinu. - ovd Innbrot í söluturn í Reykjavík: Tveir menn handteknir PÁFAGARÐUR, AP Hér eftir verður erfiðara að komast í dýrlingatölu hjá kaþólsku kirkjunni. Páfagarður skýrði í gær frá því að hertar yrðu reglur þær, sem biskupar fara eftir þegar metið er hvort taka skuli látna menn í dýrlingatölu eða lýsa þá helga menn. Meðal annars verða harðari kröfur gerðar til þess að hugsan- leg dýrlingsefni hafi framið nægilega mörg og nægilega merkileg kraftaverk. Nú liggja fyrir til afgreiðslu tillögur um að 2.200 manns verði teknir í dýrlingatölu eða lýstir helgir menn. - gb Páfagarður breytir reglum: Erfiðara nú að verða dýrlingur RÚSSLAND, AP Dmitry Medvedev, forsetaframbjóðandi og líklegasti eftirmaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, gaf í skyn að menningarstofnunin The British Council stæði fyrir njósnum í Rússlandi ásamt erlendum félagasamtökum. Kom þetta fram í rússneska vikublaðinu Itogi í gær. Ásakanir um njósnir vesturveld- anna í Rússlandi hafa ítrekað komið fram undanfarið. Ummæli Medvedevs vekja þó athygli þar sem hann hefur hingað til ekki tekið jafn harða afstöðu gagnvart vestrinu eins og Pútín. Hefur það verið túlkað sem svo að kosning hans í forsetaembætti geti liðkað fyrir samskiptum þarna á milli. - sdg Líklegasti eftirmaður Pútíns: Sakar vestræn ríki um njósnir VLADÍMÍR PÚTÍN OG DMITRY MEDVEDEV Pútín tilnefndi Medvedev sem sinn eftirmann í forsetaembættið sem kosið verður um 2. mars næstkomandi. NORDICPHOTOS/AFP Ökumaðurinn í Danmörku Ölvaður ökumaður reyndi að villa um fyrir lögreglunni á Selfossi um nýliðna helgi. Maðurinn ók bíl út af við Aratungu en vildi meina að félagi hans hefði verið við stýrið. Við eftirgrennsl- an kom í ljós að félaginn var í flugvél á leið frá Danmörku og viðurkenndi maðurinn þá að hafa ekið bifreiðinni. LÖGREGLUFRÉTTIR STJÓRNMÁL Frjálslyndi flokkurinn ber ekki pólitíska ábyrgð á Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra enda er hann í öðrum stjórnmála- flokki, segir í samþykkt miðstjórnar- fundar Frjáls- lynda flokksins frá á föstudag. Jafnframt er þess getið að fólk úr Frjáls- lynda flokknum hafi ekki komið að málum Orku- veitu Reykjavíkur eða REI- málinu og er hvatt til aukinnar siðvæðingar í pólitík og endur- skoðunar á stjórnkerfi Reykjavík- ur í því skyni að gera það skilvirkara, gegnsætt og lýðræðis- legt. - bþs Frjálslyndi flokkurinn: Ber ekki ábyrgð á Ólafi F. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Eiturlyfjafundur í Hveragerði Tæp tuttugu grömm af nýlega ræktuðu marijúana auk kannabisfræja og áhalda til neyslu fundust við leit lögreglunnar á Selfossi í íbúðarhúsi í Hveragerði á laugardagskvöldið. Húsráðandi játaði að eiga fíkniefnin. STJÓRNSÝSLA Vinnuhópur, sem átti að tryggja snurðulausa yfir- færslu á rekstri Keflavíkurflug- vallar, hugleiddi að beita sér fyrir því að loka fyrir kalda vatnið inn á fyrrum varnarsvæðið á Miðnes- heiði. Hefði sú leið verði farin hefði þurft að tæma vatn úr lögn- um. Ekkert varð úr þar sem hópur- inn hafði ekki heimildir til að stofna til útgjalda en tæming lagnanna fól í sér útgjöld. Helgina 18. til 19. nóvember 2006 sprungu vatnslagnir í húsum á svæðinu með þeim afleiðingum að tjón varð á samtals 106 íbúðum í þrettán fjölbýlishúsum og í sjö mannvirkjum að auki. Talið er að tjónið hlaupi á 79-109 milljónum króna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um málið kemur þó fram að frá sjónarhóli brunavarna hafi verið álitamál hvort skynsamlegt væri að skrúfa fyrir kalda vatnið. Í skýrslunni kemur einnig fram að ýmsir hnökrar voru á yfir- færslu mannvirkjanna frá Banda- ríkjaher til íslenskra stjórnvalda. Áformað var að fulltrúar frá hvorum aðila gengu saman í hvert hús sem síðan yrði afhent form- lega. Reyndin varð sú að herinn skilaði lyklum með útfylltum og undirrituðum gátlistum. Ekki var gengið úr skugga um að bygging- arnar væru í viðunandi ástandi. Kom síðar í ljós að í fjölda bygg- inga hafði útidyrum ekki verið læst þó að gátlistar bæru með sér að svo ætti að vera. - bþs Vinnuhópur hugleiddi að skrúfa fyrir kalda vatnið á varnarsvæðinu á Miðnesheiði: Hefði hamlað vatnslekatjóni MANNVIRKI Á MIÐNESHEIÐI VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 8° 6° 7° 2° 7° 9° 10° 10° 10° 6° 17° 15° 11° 8° 20° 6° 21° 14° Á MORGUN 8-13 m/s. FIMMTUDAGUR 5-10 m/s en allt að 20 m/s á syðstu annesjum. Í DAG KLUKKAN 18.00 0 0 -1 2 6 6 7 8 6 2 -3 13 5 5 5 6 8 7 10 13 8 5 3 0 2 2 3 2 3 0 0-2 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur SNÖGGKÓLNAR Það ganga kulda skil inn á vestanvert landið eftir hádegi og í kjölfarið kólnar nokkuð snögglega. Úrkoman breytist þá úr rigningu yfi r í él. Skilin ganga svo austur yfi r land og seint í kvöld verða víða él á landinu með hita mjög nálægt frostmarki. flugfelag.is Fundarfriður Markvissir fundir í friði og ró Upplýsingar: Sími 570 3075 hopadeild@flugfelag.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK GENGIÐ 18.02.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 128,8935 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 66,71 67,03 130,11 130,75 97,59 98,13 13,088 13,164 12,361 12,433 10,501 10,563 0,6165 0,6201 105,23 105,85 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.