Fréttablaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 96
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Nýlega var Gaukur Úlfarsson dæmdur til fjársekta fyrir að kalla Ómar R. Valdimarsson „aðal- rasista bloggheima“. Dómurinn er að mínu mati gersamlega fráleitur. Ekki aðeins vegna þess að Ómar er langt frá því að vera aðalrasisti bloggheima (í þeim efnum kemst hann ekki með tærnar þar sem svæsnustu rotþrærnar á netinu eru með hælana), heldur vegna þess að ef dómurinn er fordæmisgefandi, sem hann hlýtur að vera, er enginn endir fyrirsjáanlegur á þeim mála- ferlum sem fram undan eru. Íslenskir femínistar gætu upp til hópa sest í helgan stein og lifað í vellystingum praktuglega á kostn- að bloggandi pungrottna, stjórn- málamenn fyndu nýja tekjulind og þannig mætti lengi telja. Jafnvel Gilzenegger væri vís með að koma út í plús ef allt væri tínt til. Í mínum huga réttlæta þau óhefl- uðu skrif Ómars, sem urðu tilefni þess að umrædd orð féllu, alls ekki ásakanir um rasisma. Þvert á móti þá er barnalegt að vilja engu illu trúa upp á útlendinga, bara vegna þess að þeir eru útlendingar og maður hefur andúð á útlendinga- hatri. Ómar er alls ekki einn um að telja útskýringar ákveðins útlend- ings á þeim ávirðingum sem honum hafa verið bornar á brýn langsóttar og ósannfærandi. Þessar ásakanir hafa verið settar fram á mun rök- fastari, yfirvegaðri og trúverðugri hátt en Ómar gerði í geipi sínu. Slóðin er icelandweatherreport. com (leitið að „jadetree“). GAUKI til afsökunar verður að taka fram að Ómar þessi hefur reyndar orðið uppvís að fordómum í garð útlendinga og því er erfitt að komast hjá því að lesa skrif hans með þeim fyrirvara. Sem almann- tengslafulltrúi Impregilo lýsti hann því yfir að víðtæk matareitrun meðal starfsmanna fyrirtækisins stafaði af því að þeir kynnu ekki að þvo sér um hendurnar. Samkvæmt mínum skilningi felst rasismi hins vegar í fordómum í garð fólks af öðrum kynþætti en manns eigin, óháð uppruna þess. Ómar hefur fremur látið í ljós fordóma í garð erlends vinnuafls en annarra kyn- þátta og því nær að tala um xenóf- óbíu en rasisma í hans tilfelli. ÞAÐ er sem sagt mín skoðun að Ómar sé sekur um fordóma gegn útlendingum, Gaukur um barna- skap og Héraðsdómur Reykjavík- ur um heimsku. Sekt hinna síðast- nefndu er að mínu mati sýnu alvarlegust. Hún veldur mestum skaða. Xenófób kemst í feitt Í dag er sunnudagurinn 16. mars, 76. dagur ársins. 7.41 13.36 19.32 7.27 13.31 19.17 F í t o n / S Í A Bókaðu núna! með ánægju London og Køben um páskana Skelltu þér út um páskana og njóttu lífsins í London eða Køben. Iceland Express býður fjölda flugsæta til þessara spennandi borga á frábæru verði.  Þú bókar flugsætið á www.icelandexpress.is og finnur hótel við hæfi á www.icelandexpress.is/hotel Kaupmannahöfn 50% Börn: Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.