Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 11

Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 11
LAUGARDAGUR 5. apríl 2008 11 AUSTURRÍKI, AP Kína hefur bæst í sívaxandi hóp þjóða sem nýlega hafa sent Alþjóða kjarnorkumála- stofnuninni, IAEA, gögn sem sýna fram á mögulegar tilraunir Írans til framleiðslu kjarnorkuvopna. Kínastjórn hefur hingað til verið andstæðingur þeirra refsiaðgerða sem Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt Íran vegna kjarnorkustefnu sinnar. Samkvæmt þeim háttsettu erindrekum sem komu upplýsing- unum um gögnin á framfæri er Kína óvæntasti meðlimurinn á löngum lista þjóða sem lagt hefur fram gögn sem bent gætu til að Íransstjórn hefði ekki hreint mjöl í pokahorninu í kjarnorkumálum. - kg Kjarnorkumál Írans: Gögn frá Kína um tilraunir SKOÐANAKÖNNUN Ríkisendurskoðun nýtur trausts um 66 prósenta þjóðarinnar samkvæmt nýrri viðhorfskönnun Capacent Gallup sem gerð var í mars. Niðurstöður úr þjóðarpúlsi Gallup frá sama tímabili sýna meðal annars að 90 prósent þjóðarinnar treysta Háskóla Íslands, 80 prósent treysta lögreglunni, 52 prósent Þjóðkirkj- unni og 42 prósent Alþingi. Könnunin leiddi einnig í ljós að orðið „eftirlit“ kom oftast upp í huga fólks þegar minnst var á Ríkisendurskoðun og 48 prósent telja stofnunina ekki veita stjórn- völdum nægilega mikið aðhald. - kg Almenningsviðhorf: Treysta Ríkis- endurskoðun NOREGUR Réttarhöld standa nú yfir í Ósló í Noregi þar sem þrír menn, Arfan Qadeer Bhatti, Andreas Bog Kristiansen og Ibrahim Özbabacan hafa verið ákærðir fyrir að hafa skipulagt eða undirbúið hryðju- verkaárás á bandaríska og ísra- elska sendiráðið í Ósló haustið 2006. Bhatti og Özbabacan eru einnig ákærðir fyrir að hafa skotið að bænahúsi gyðinga í Ósló í septemb- er í hittiðfyrra. Yfirheyrslur hafa staðið undan- farna daga. Bhatti, sem er af norsk- pakistönskum uppruna og talinn forsprakki þremenninganna, hefur langan afbrotaferil að baki og er talinn vera félagi í mótorhjólasam- tökum. Hann er ákærður fyrir ýmislegt annað, meðal annars að hafa ætlað að ræna peningum úr peningaflutningabíl og að hafa borið vopn án leyfis. Talið er að þremenningarnir hafi gert með sér samkomulag um að framkvæma eitt eða fleiri hryðju- verk á norskri grund, að sögn Dag- bladet. Réttarhöldin hófust um mánaða- mótin og standa fram í miðjan júní. Um áttatíu vitni koma fyrir réttinn. Síðustu daga hefur meðal annars verið hlustað á upptökur lögregl- unnar á símtölum milli mannanna og félaga þeirra. Þetta eru fyrstu réttarhöldin sem haldin eru í Noregi vegna gruns um hryðjuverk eða skipulagningu hryðjuverka. Líklegt þykir að málið fari fyrir Hæstarétt Noregs hvern- ig svo sem niðurstaðan verður í héraðsdómi í Ósló. - ghs Fyrstu réttarhöldin sem haldin hafa verið vegna hryðjuverka í Noregi hafin: Þrír grunaðir um hryðjuverk FRÁ ÓSLÓ Reiknað er með að málið fari fyrir Hæstarétt. MENNTUN Japönsk stjórnvöld bjóða íslenskum framhalds- skólanemum á fyrsta og öðru ári að sækja um styrk til námsdval- ar í Japan frá ágúst til janúar. Markmiðið er að gefa íslenskum ungmennum kost á því að kynnast japanskri tungu, menningu og lífsháttum. Styrkurinn hljóðar upp á greiðslu ferðakostnaðar, skólagjalda, húsnæðis og fæðis og verða umsækjendur að búa yfir góðri enskukunnáttu. Umsóknarfrestur er til 15. apríl og liggja eyðublöð frammi í sendiráði Japans á Íslandi, Laugavegi 182, eða á síðunni no. emb-japan.go.jp. Allar frekari upplýsingar fást í síma 5108600, eða á japan@itn.is. - kg Japönsk stjórnvöld: Styrkja náms- menn til Japans

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.