Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2008, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 05.04.2008, Qupperneq 24
24 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR FÖSTUDAGUR, 28. MARS. Smáframhjáhald og ást- arjátning til Fréttablaðs- ins Pétur Gunnarsson redaktör á Eyj- unni.is sem mér finnst skemmti- legasti vefmiðillinn kom að máli við mig og gerði mér tilboð sem ég gat ekki hafnað. Á Eyjunni.is sem er vaxandi vefmiðill handa fólki með greind- arvísitölu sem er hærri en skó- númerið þess getur að líta fréttir, fréttayfirlit og umfram allt mörg skemmtileg blogg, eina vitræn- ustu umræðuna sem fer fram á Íslandi í dag meðal almennings. Pétur bauð mér að vera með og prófa að blogga þarna soldið og gá hvort það gæti orðið mér til skemmtunar. Ókeypis. Blogg er sérstakur hlutur. Ekk- ert getur komið í staðinn fyrir mína Kæru Dagbók! sem ég skrifa í Fréttablaðið vikulega og hefur verið partur af lífi mínu og blaðs- ins síðustu 130 vikur án þess að nokkurn tím- ann hafi fallið út dagur. Kæra Dagbók! er sambland af persónulegu ver- aldarstússi mínu og þeirra sem mér tengjast í mínu dag- lega umhverfi. En til að hin persónulegu og ómerkilegu mál sem að mér snúa verði síður uppá- þrengjandi og til leiðinda fyrir lesendur blanda ég þau með við- brögðum mínum og hugsunum um atburði líðandi stundar. Grundvallarhugmyndin að dag- bókarskrifum í dagblaði var sú að birta í Fréttablaðinu eitthvað per- sónulegt og hvunndagslegt, nokk- urs konar mótvægi við ópersónu- legar fréttir sem erfitt er að tengja sig við – margar hverjar. Nú langar mig til að prófa að blogga á Eyjunni.is og hlífa les- endum mínum þar algerlega fyrir frásögnum af mínu daglega lífi, ástamálum, matseld í Norska bak- aríinu og sögum af hesta- mennsku. Á Eyjunni langar mig til að bregðast við atburðum dagsins. Jafnvel með því að tengja saman gamalt og nýtt. Þetta er ekki framhjáhald með mínu elskaða Fréttablaði. Og vel gæti verið að eitthvað af Eyjublogginu rataði í Frétta- blaðið á endan- um – ef Frétta- blaðsstjórum ofbýður ekki þeim mun meir sýn mín á veru- leikann. Mér þykir vænt um Frétta- blaðið og hef það eftir góðum heimildum að Fréttablaðinu þyki vænt um mig. Sumir lesendur virðast hafa ánægju af því gagnkvæma ástarsambandi. En ég er alltaf skíthræddur um að ofbjóða fólki með því að tala of mikið um fjöl- skyldulífið í Fischerssundi – og upp á hverju barnabörnin mín geta fundið. LAUGARDAGUR, 29. MARS. Victor Hugo Til að undirbúa mig fyrir næsta áfanga í frönskunám- inu er ég að lesa ágæta ævi- sögu Victors Hugos. Hún er á ensku, eftir enskan höf- und. Hún er samt soldið tyrf- in á köflum en mér hrýs hugur við að byrja á hinum endanum með því að lesa verk þessa andlega risa, kvennabósa, stjórnmála- manns og rithöfundar. Ég hef sérstakan áhuga á góðum rithöfundum sem skrifuðu fyrir stóran markað, það er að segja lesendur úr ýmsum stétt- um og af mismunandi menntunarstigi. Og ég er að reyna að afsanna þá kenningu að rit- höfundar sem stundum skrifa sakamálasögur séu fábjánar að skrifa handa öðrum fábjánum. Persónuleg reynsla mín bendir til þess að hærra hlutfall flóna finnist meðal þeirra sem skrifa bækur en þeirra sem lesa þær. SUNNUDAGUR, 30. MARS. Matseld og Mannaveið- ar Hápunktur dagsins var beinlaus eldislax sem ég skar í smábita og eldaði í maríneringu af hnetu- smjöri og sojasósu með fersku engifer og furuhnetum. Horfði á annan þáttinn af íslensku seríunni „Mannaveiðum“. Þetta er miklu skárra en „Press- an“. Það gera fyrst og fremst leik- ararnir og handrit sem er ekki alveg áttavillt. Um íslenskt sjónvarpsefni gegn- ir sama máli og knattspyrnu. Ég mundi aldrei í lífinu horfa á landslið Slóvakíu leika knattspyrnu – nema hinn keppandinn væri íslenska landsliðið. Ég er stuðningsmaður íslenska landsliðsins í öllum greinum. Líka í sjónvarpsmyndagerð. MÁNUDAGUR, 31. MARS. Nálarstungur í Heilsu- drekanum Loksins, loksins er ég aftur kom- inn í nálarstungur í Heilsudrekan- um undir handleiðslu hennar Qing sem ætti að fá marg- falda fálkaorðu fyrir að halda Íslending- um vinnufærum og jafnvel heilbrigðum án þess að leggjast upp á heilbrigðis- kerf- ið. Þetta kostar ekki mikið. Það er vit í kín- verskri læknis- fræði. Ann- ars væru Kínverjar varla svona margir. Ekki hafa þeir haft það svo gott gegnum tíðina. Góðu fréttirnar við þessa gigt sem ég geng með eru þær að mér er sagt að hún læknist yfirleitt á sex til tólf mánuðum. Nú er ég búinn að vera undirlagður af þess- um fjanda í níu mánuði. Vondu fréttirnar eru þær að ef hún hverf- ur ekki á sex til tólf mánuðum hverfur hún sennilega aldrei. Það eru líka vondar fréttir að lyfin sem ég þarf að taka eru eiginlega verri en sjúkdómarnir: þunglyndi og fjölvöðvagigt. Frá og með í dag ætla ég að fasta til föstudags- kvölds eða leng- ur. Þetta er reyndar ekki ströng fasta því að daglegur matseðill er svona: tveir lítrar af vatni, grænt te eftir þörfum, tvö epli á dag, tveir bananar og ein appelsína. Einn bolli af kaffi þegar ég fer á fætur, annar kaffibolli fyrir svefninn og svo aukabolli ef ég vakna um miðja nótt og verð andvaka. Annars get ég ekki sofn- að aftur. Það skal tekið fram að þessi matarkúr er uppfundinn af sjálf- um mér án samráðs við lækna og tryggingafélög og ég tek enga ábyrgð á þeim sem ákveða að reyna þetta mér til samlætis. Sigrid vinkona mín hefur mikið álit á föstum. Og þá er hún að tala um alvöruföst- ur. Maður lætur ekkert í sig nema vatn eða grænt te. Ég væri alveg til í að prófa þetta, en Sigrid segir að manni fari ekki að líða verulega vel fyrr en eftir fjórtán daga. Það finnst mér dáldið bratt. ÞRIÐJUDAGUR, 1. APRÍL. Apríl velkominn Ég er feginn því að apríl skuli vera genginn í garð. Ég hefði gjarna viljað fá að eiga afmæli í apríl en ekki í nóvember. MIÐVIKUDAGUR, 2 APRÍL. Mér hlýtur að vera að skána gigtin. Sólveig heimtaði að við færum austur í Landeyjar að skoða reiðhest sem Viðar vinur minn á Kaldbak heldur að sé eins- og skapaður fyrir mig. Stór og fal- legur og ákaflega sérvitur. Ég prófaði hestinn. Hann var alveg yndislegur. En þrátt fyrir stærðina og sérviskuna var eins og hann væri soldið einn í heimin- um og gæti ekki orðið hamingju- samur nema hann eignaðist góðan vin. Það varð úr að Viðar ætlar að senda mér klárinn í bæinn til að gefa okkur kost á að kynnast og athuga hvort við getum orðið vinir. Hver veit. En þegar maður er kominn á minn aldur er það alvöru- mál að finna sér reiðhest sem gæti orðið besti vinur manns - og sá síð- asti. Hérna megin. FIMMTUDAGUR, 4. APRÍL. Fasta á fimmtudegi Þessi fimmtudagur ætti eigin- lega að vera föstudagur því að nú er ég orðinn soldið leiður á föst- unni. Leiður, en ósveigjanlegur. Alla vega verður mér þó ekki kennt um að hafa ekki hert sult- arólina þegar þjóðarbúið þurfti að draga saman seglin. Var sold- ið eftir mig eftir reiðtúrinn. Hvað hef ég að gera við gæðing sem þarf að svífa um veröldina daglega ef ég er kraftlaus og næ ekki upp í ístaðið? En sennilega er það fastan sem gerir mig svona svartsýnan. Fasta er nefni- lega ekki skemmtileg meðan á henni stendur frekar en svo margt annað. En það er gaman þegar hún er búin. Þá tekur hófsemin við. Ástarjátning, framhjáhald og hugsanleg hrossakaup Í dagbók Þráins Bertelssonar er birt hugljúf ástarjátning til Fréttablaðsins, en einnig er vikið að saklausu framhjáhaldi. Þá er birtur matseðill vikunnar hjá manni sem fastar sér til heilsubótar. Einnig er minnst á Darwin, stjórnmálamenn, Mannaveiðar og Heilsudrekann. KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun býr nemendur undir að takast á við eitt af mest knýjandi viðfangsefnum framtíðarinnar, nýtingu og stjórnun auðlinda. Kennsla fer fram á Ísafirði við Háskólasetur Vestfjarða en námsleiðin er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Nánari upplýsingar: www.hsvest.is Umsóknarfrestur: 5. júní 2008 Í samstarfi við: Lj ó sm yn d : A g n es G ei rd al
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.