Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 91

Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 91
SUNNUDAGUR 18. maí 2008 31 HANDBOLTI Claes Hellgren hefur leiðbeint markmönnum í 34 ár og miðlaði því af mikilli reynslu til þeirra sem sóttu námskeið hans í gær. Fimm markmenn tóku þátt í verklegum æfingum og yfir 30 manns fylgdust með og lærðu. Meðal þeirra voru þjálfarar í úrvalsdeild karla á borð við Patr- ek Jóhannesson hjá Stjörnunni og Óskar Bjarna Óskarsson hjá Val. Guðmundur Guðmundsson lands- liðsþjálfari leit einnig við. Þegar Fréttablaðið bar að garði var Hellgren að leiðbeina mark- mönnum í verklegri æfingu. Nokkrir strákar komu inn úr horn- inu og Hellgren skipti um mark- menn eftir hentugleika. Svo leið- beindi hann þeim nákvæmlega hvernig þeir ættu að bera sig að, sagði hvað var gott og hvað mætti bæta. Hann tók markmenn líka á eintal og gaf þeim góð ráð. Auk þess kallaði hann á þjálfara eins markmannsins og sagði honum hvað hann ætti sérstaklega að æfa. Sannarlega ítarlegar leið- beiningar og góður skóli fyrir reynslumikla mark- menn sem og þá sem eru að koma upp. Ísland stutt frá verðlaunum Björgvin Páll Gústavsson sótti námskeið hjá Hellgren í fyrra og hefur hann einnig staðið fyrir markmanns- skóla á Íslandi. Hann og HSÍ unnu saman að því að fá Hellgren til landsins. Hann er á því að með betri mark- mönnum myndi Ísland vinna fljótlega til verðlauna á stór- móti. „Ef Íslendingar ættu aðeins betri markmenn gætu þeir unnið til verðlauna á stórmótum. Þeir spila það vel og það vantar lítið upp á. Ef þeir fengju markmann sem varði eins og Hreiðar gerði í einum leik á Evrópumót- inu, í fimm leiki yrði það nóg fyrir Ísland til að vinna mótið. Þeir hafa liðið og þjálfarana. Björgvin getur byrjað á þessu og byggt upp góða kynslóð markmanna. Ísland á marga góða markmenn og þeir sem eru hér núna verða sendiherrar markmanna héðan frá Íslandi í framtíðinni. Þeir hafa áhugann og þeir þurfa að byggja grunninn. Það eru líka góðir þjálf- arar hér sem eru að fylgjast með,“ sagði Hellgren. Skortir einn hlut af þremur En hvað er það sem íslenskir markmenn hafa ekki til að komast í röð þeirra bestu í heimi? „Það eru þrír hlutir sem markmenn í heimsklassa hafa, réttan líkama, tækni og sterka andlega hlið. Það má ekki taka neinn af þessum þátt- um út. Flestir markmenn sem ég hef séð frá Íslandi í gegnum árin hafa verið með tvo af þessum þremur hlutum en skort eitt lykil- atriði. Ég man eftir Einari Þor- varðarsyni og Guðmundi Hrafn- kelssyni. Ég hef séð marga góða en þeir tóku kannski ekki skrefið til að verða á meðal þeirra bestu. Til þess vantaði þá eitt atriði, hvert sem það var,“ sagði Hell- gren og tók dæmi. „Ef við tökum Hreiðar fyrir. Ef hann bætir líkama sinn þá getur hann orðið stórkostlegur markmaður. Hann hefur mikla og góða tækni sem hann þarf þó aðeins að bæta líka, en ekki mikið. Hann hefur andlega þáttinn og hann er á góðri leið,“ sagði Hellgren. Líkami spretthlaupara Hellgren er mikið í mun að markmenn séu með rétt byggðan líkama. „Ég vil að þeir verði með líkama eins og spretthlaupara,“ sagði hann og benti á þegar Guð- jón Valur Sigurðsson leitaði til Jóns Arnórs Magnússonar tugþrautarkappa til að bæta stökkkraft sinn og snerpu. „Þeir eiga að líta út eins og Guðjón Valur. Hann tók skrefið frá því að vera mjög góður í að vera í heimsklassa með því að æfa sig mikið aukalega með frjálsíþróttaþjálfara. Nú er hann meðal bestu leikmanna heims. Markmenn þurfa að hafa líkama eins og bestu útileikmenn í heimi. Það þarf að finna menn sem eru tilbúnir til að leggja þetta á sig. Það á reyndar ekki að vera erfitt,“ sagði markmannsþjálfarinn. Grunnurinn lagður Hellgren fór yfir margt á einum degi en hamraði þó á þessum þrem- ur lykilatriðum. „Við kennum þeim grunninn. Þetta tekur langan tíma. Námskeiðið mitt er yfirleitt í heila viku en við troðum þessu saman hérna á einum degi og því þurf- um við að velja og hafna nokkr- um hlutum,“ sagði Hellgren sem hefur enga tölu á þeim fjölda nám- skeiða sem hann hefur staðið fyrir. Hann benti markmönnunum einnig á að staðsetja sig rétt og til að mynda lét hann Hreiðar og Björgvin ekki staðsetja sig eins. Hreiðar er hávaxnari en Björg- vin. Hellgren bendir á að hæð markmanna skipti litlu máli. „Markmenn geta verið góðir, sama hversu hávaxnir þeir eru. Besti markmaður Íslandsmótsins í ár, Ólafur Gíslason, er til dæmis ekki hávaxinn. Hann er samt sem áður góður markmaður. Ef hann vill verða einn sá besti í heimi þarf hann að líta út eins og Dejan Peric,“ sagði Hellgren en Peric er markmaður serbneska lands- liðsins. Hann bætti við að Hreiðar þyrfti að líta út eins og rumurinn Arpad Sterbic. Mismunandi, en samt ekki Hellgren segir að íslensku mark- mennirnir hafi flestir yfir góðri tækni að ræða. „Markmenn eru mismunandi, en samt ekki, ef þú skilur hvað ég á við,“ og ringlaður blaðamaður kinkaði kurteisislega kolli. „Það þarf bara að vinna með eiginleika hvers og eins, það er stóra leynd- armálið. Það er ekki hægt að láta þá líta út eins og ég vil láta þá líta út en það er hægt að vinna með ýmislegt,“ sagði hinn reynslumikli markmaður sem á heiðurinn að því hve marga góða markmenn Svíar hafa átt. Ný kynslóð að koma upp „Við höfum alltaf haft markmenn í Svíþjóð. Peter Gentzel og Tomas Svensson fengu ekki næstu mark- menn til að hlusta á sig og því misst um við dampinn um tíma. Við byrjuðum því aftur fyrir þremur árum þar sem það var ekki hlustað nóg þá. Núna erum við að fá upp góða kynslóð.“ Hellgren kemur til landsins í þrjú skipti enn á árinu til að leið- beina íslenskum markmönnum og ef marka má áhugann í Digranesi í gær verður fullt á þeim nám- skeiðum líka. hjalti@frettabladid.is Íslenska mark- menn skortir eitt lykilatriði Hin víðfrægi Claes Hellgren hélt námskeið fyrir íslenska markmenn í gær. Hann segir íslenska mark- menn yfirleitt hafa tvö af þremur lykilatriðum sem markmenn í heimsklassa þurfa að hafa. Fréttablað- ið leit við á æfinguna í Digranesi og settist niður með Hellgren eftir eina af verklegu æfingunum sem hann stóð fyrir. HANDBOLTI Landsliðsmarkmaðurinn Hreið- ar Levý Guðmundsson var einn af mark- mönnunum sem tók þátt í námskeiðinu hjá Claes Hellgren. Hreiðar leikur nú með Savehof í Svíþjóð og er ánægður með fram- takið. „Þetta er algjör snilld og frábært fram- tak hjá HSÍ og Bjögga sem mér skilst að hafi eitthvað með þetta að gera,“ sagði Hreiðar og átti þar við Björgvin Pál Gúst- avsson. Hreiðar sendir skilaboð til þjálfara á Íslandi sem hann segir oft skorta þekkingu á markmannsþjálfun. Skortir oft þekkingu „Margir þjálfarar mega taka þessar æfing- ar til sín, það þarf að gera miklu meira fyrir markmenn hér á Íslandi. Það er engin spurning að það þarf að leggja meiri áherslu á markmannsþjálfun. Margir þjálfarar viðurkenna sjálfir að þeir hafa ekki nægilega vitneskju á mark- mannsþjálfun, þeir hafa oft verið útispilar- ar sjálfir. Það kemur á móti að markmenn eins og ég eru ekki að fara að stýra mönn- um á borð við Snorra Stein hvað einhver leikkerfi varðar,“ sagði Hreiðar léttur. Farið yfir alla flóruna „Hann er að fara í gegnum ýmislegt. Hann fór í gegnum hugarfarið í morgun, hvernig búa á til markmið og hann er í raun að fara í gegnum allan skalann á einum degi. Þetta er venjulega gert á einni viku þannig að það verður mikið að melta fyrir okkur eftir námskeiðið. Engu að síður getur maður notað þetta mikið. Þetta kemur ekkert einn, tveir og bingó, heldur æfir maður eftir þessu áfram,“ sagði Hreiðar sem lýsir Hellgren sem einum af þeim fremstu á sínu sviði. Ánægður með Júggastílinn Allir markmenn hafa sinn stíl og lýsir Hell- gren Hreiðari sem austantjaldsmark- manni. „Fyrst sagði hann mig vera eins og Rússa og síðan eins og Júgga. Það er bara fínt. Ég vissi svo sem fyrir að ég væri ekki þessi liðuga Svíatýpa. En allir hafa sína eiginleika og byggja á sínum styrkleikum. Ég hef það kannski fram yfir aðra að ég get gert mig breiðari og ég er aðeins hærri. Svo eru þeir með annað sem ég hef ekki, til að mynda hraða,“ sagði glaðbeittur Hreiðar í Digranesi í gær. - hþh Landsliðsmarkmaðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson er ánægður með tilsögnina frá Claes Hellgren: Vill meiri áherslu á markmannsþjálfun EINKAKENNSLA Hellgren gefur Hreiðari góð ráð í gær. RÉTTABLAÐIÐ/VALLI LEIÐBENINGAR Hellgren miðlar hér af reynslu sinni til markmannanna. Komu hans er lýst sem miklum feng fyrir Handboltasam- bandið og er mikil ánægja með störf hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÓTRÚLEG REYNSLA Hellgren byrjaði að kenna markmönnum þegar hann var barnungur. Þetta er ár númer 34 hjá honum sem kennari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MARKMENN Á NÁMSKEIÐINU Aron Rafn Eðvarsson (Haukum) Björgin Páll Gústavsson (Bittenfeld) Björn Ingi Friðjónsson (Fram) Hreiðar L. Guðmundsson (Savehof) Ólafur Haukur Gíslason (Val)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.