Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 68
46 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. grútur, 6. kúgun, 8. skjögur, 9.
bar að garði, 11. mun, 12. hólf, 14.
yfirstéttar, 16. tveir eins, 17. hlaup, 18.
flan, 20. tveir eins, 21. slagæð.
LÓÐRÉTT
1. tónlistarstíll, 3. bogi, 4. eyja í Mið-
jarðarhafi, 5. svelg, 7. eldsneyti, 10.
samhliða, 13. iðn, 15. óhapp, 16. kvk
nafn, 19. sjó.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lýsi, 6. ok, 8. rið, 9. kom,
11. ku, 12. klefi, 14. aðals, 16. gg, 17.
gel, 18. ras, 20. yy, 21. ósæð.
LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. ýr, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. kolagas, 10. með, 13. fag, 15.
slys, 16. gró, 19. sæ.
„Þrisvar hef ég reynt að fá viðtal
við Kára en – nei,“ segir Vestur-
Íslendingurinn og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Hörður Arnar-
son eða H.A. Arnarson.
Hörður er að gera sjónvarps-
þáttaseríu um Kára Stefánsson
og deCODE-ævintýrið. „Ég er
loksins búinn að klippa fjóra
hálftíma þætti af sex. Þetta verð-
ur þriggja tíma þáttaröð sem
byrjar með athyglisverðri frétt
á RÚV frá árinu 1998 þar sem
sagt er frá samningi Kára við
Hoffmann-la Roche,“ segir
Hörður sem starfar í Los Angel-
es sem leikstjóri og klippari.
Hann hefur þrisvar verið til-
nefndur til Emmy-verðlauna en
hans þekktustu verk eru líklega
þau í tengslum við raunveru-
leikaþáttinn Survivor sem hann
hefur klippt og svo sem leik-
stjóri atriða í Ripley´s Believe it
or not. „Það þyrfti að borga mér
mikið fyrir að tala um samstarf
mitt við Mark Burnett [framleið-
anda vinsælustu raunveruleika-
þátta veraldar] en klippiher-
berginu er staðurinn þar sem
hlutirnir gerast og nei verður
stundum já.“
Mynd Harðar um Kára hefur
verið lengi í vinnslu og fylgt
Herði allt frá því að hann var að
hasla sér völl í Bandaríkjunum.
Hörður sá frásögn um fyrirtæk-
ið og taldi þarna hafa komið eitt-
hvað fyrir sig. „Þetta byrjaði
sem hefðbundin fréttaheimild-
armynd árið 1999. Ég vildi að
hún yrði mitt fyrsta verkefni á
þessu sviði og steinféll fyrir öllu
„PR-inu“ frá Kára: Gjöf Íslend-
inga til heimsins og svo fram-
vegis. Hörður kom til Íslands
1999 og hóf að taka viðtöl bæði
við menn sem voru með og á
móti. Allt hékk þó á viðtali við
Kára. „Ég var búinn að filma í
sex vikur, mæti og kynni mig.
Kári mælir mig og kvikmynda-
tökuliðið út. Segir þá að ég hafi
talað við Jóhannes Jónsson, Erlu
Eyfjörð og fleiri sem höfðu krít-
iserað hann og henti okkur svo
öfugum út. Ég sat þá uppi með
rjúkandi rúst í höndunum.“
Myndin fór á ís en Hörður
hefur síðan unnið að henni sam-
hliða öðrum verkefnum. Ekki er
ákveðið hvenær og hvar þætt-
irnir verða sýndir en Hörður
hefur ekki áhyggjur af því að
henni verði ekki fundinn staður.
Hörður segir sögu deCODE, ris
og fall, ævintýralega, eða allt frá
því að Davíð Oddsson hélt 17.
júní-ræðu 1999 og í kjölfarið
keyptu ríkisbankarnir upp upp-
runalega fjárfesta og seldu
íslenskum fjölskyldum fyrir
ævintýralegar fjárhæðir.
„Ég fór að kaupa í deCODE
þegar gengið var komið í 3,5
dollara. Hugsaði, þeir geta ekki
látið þetta lognast út af. Það er
of vandræðalegt. Nú er gengið í
einum dollara en ég myndi segja
að gengi mitt sem kvikmynda-
gerðarmanns hafi hækkað
meðan það hefur lækkað í
de CODE,“ segir Hörður.
jakob@frettabladid.is
H.A.ARNARSON: HEIMILDARÞÁTTASERÍA UM KÁRA STEFÁNSSON OG DECODE
Kári henti þeim öfugum út
HÖRÐUR MEÐ STJÚPDÓTTUR SINNI GEORGIA RAE DEL GEORGE Hefur nú klippt fjóra
þætti af sex í þriggja tíma heimildarmynd um Kára Stefánsson og ævintýralegt ris og
fall deCODE.
KÁRI STEFÁNSSON Mynd Harðar verður
honum líklega ekki að skapi, í það
minnsta hefur hann ekki viljað ljá máls
á viðtali, að sögn Harðar.
„Við lögðum af stað sautjánda júní
og þetta er búið að vera mjög
ævintýralegt,“ segir Guttormur
Þorsteinsson sagnfræðinemi í
Háskóla Íslands, sem fór keyrandi
ásamt fjórum vinum sínum á tón-
listarhátíðina í Hróarskeldu.
„Snorri vinur minn á 1986 módel
af Toyota Camri sem við ferðuð-
umst á austur og tókum Norrænu
þaðan. Bíllinn var auðvitað troð-
fullur af farangri, enda vorum við
fimm saman. Þegar við vorum
lögð af stað uppgötvuðum við að
það voru bara fjögur belti í bíln-
um, svo pabbi sendi mér bílbelti
með flugpósti til Egilsstaða sem
við settum sjálf í bílinn áður en
við fórum í Norrænu,“ útskýrir
Guttormur.
„Við vildum gera svolítið ferða-
lag úr þessu og keyra um Noreg
og Svíþjóð, en fyrst vorum við í
þrjár nætur í Þórshöfn í Færeyj-
um. Þar keyrðum við um eyjarnar
og gerðum örugglega allt sem
hægt var að gera í Færeyjum á
þeim tíma,“ segir Guttormur og
hlær, en þegar komið var til Nor-
egs tók torfarnari vegur við. „Leið-
in milli Björgvinjar og Óslóar ligg-
ur í 1200 metra hæð á kafla og
bíllinn var oft við það að ofhitna á
erfiðustu köflunum. Við þurftum
þá stundum að stoppa, jafnvel í
miðjum göngum eða á þröngu veg-
unum í Harðangursfirði, en Snorri
er góður bílstjóri svo þetta hafð-
ist,“ segir Guttormur.
-ag
Fór keyrandi á Hróarskeldu
GUTTI Á HRÓARSKELDU Keyrði frá
Íslandi á tónlistarhátíðina vinsælu.
FRÉTTABLAÐIÐ/KOLBRÚN
Bryndís Björgvinsdóttir
Aldur: 26
Starf: Nemi.
Fjölskylda: Unnustinn heitir
Haukur Már Helgason
Foreldrar: Katrín Bára Björnsdóttir
húsmóðir og Björgvin Þór Jóhanns-
son kennari.
Búseta: Bý í Hafnarfirði.
Stjörnumerki: Ég er hrútur með
fiska rísandi.
Bryndís er nemi í þjóðfræði og nýráðinn
ritstjóri Stúdentablaðsins.
Logi Bergmann Eiðsson sást á
föstudaginn rogast með fjóra bjór-
kassa í sinn fjölskyldubíl. Reyndist
það hans hlutur í EM-potti Stöðvar
tvö manna en Logi, sem ávallt er
potturinn og pannan í félagslífi hvers
vinnustaðar þar sem hann er, hefur
árum saman staðið fyrir vinnustaða-
veðmálum þegar mikið liggur við.
Logi vann pottinn að þessu sinni
og eftir því sem næst verður komist
mun þetta vera í fyrsta
skipti sem hann vinnur
slíkt veðmál. En ljóst
er að potturinn hefur
verið stór því Logi deildi
honum með fimm
öðrum sem giskuðu
á að Spánn myndi
vinna keppnina.
Ólafur Stephensen, ritstjóri Morg-
unblaðsins, heldur áfram að koma á
óvart með mannaráðningum sínum.
Nýjasti blaðamaður hans er Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir. Ekki það
að Þóra Kristín sé slæmur blaða-
maður nema síður sé og er hún
varaformaður Blaðamannafélags
Íslands. En móðir hennar er Sigríður
Jóhannesdóttir, fyrrum þingmað-
ur Samfylkingarinnar, og
tilheyrir róttækari vinstri
armi hennar enda úr
Alþýðubandalaginu.
Óhugsandi hefði
verið í tíð Styrmis
Gunnarssonar að
slíkur uppruni þætti
í lagi í Moggabygg-
ingunni.
Umboðsmanni Merzedes Club,
Valgeir Magnússyni, barst nýverið
fyrirspurn frá breska tónlistartíma-
ritinu Music and Media + vegna nýs
lags með hljómsveitinni og Haffa
Haff. Það kom Valla nokkuð á óvart
hversu mikið blaðamaðurinn vissi
um þessi fyrirbæri en til stendur að
skrifa grein um þau í blaðið. Valli
stendur annars í ströngu við að
undirbúa prufu sem verður í dag á
Tunglinu klukkan tvö fyrir söngkonu
sem fær að ferðast með MC
til Portúgal eftir hálfan
mánuð. Og hefur áhyggj-
ur af aðsókn vegna þess
að allt stefnir í að helgin
verði ein mesta ferða-
helgi ársins. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Tjahhhh…,“ sagði stúlkan og
yppti öxlum þegar Dr. Gunni,
umboðsmaður neytenda í Frétta-
blaðinu, spurði hana hvort hún
færi ekki fram á persónuskilríki
þeirra sem hún skipti við. Stúlkan
var með rauðvínskynningu í Hag-
kaupum Skeifunnar á fimmtudag-
inn og mun þetta vera í fyrsta
skipti sem staðið er fyrir vínkynn-
ingu í matvöruverslun hér á landi.
Vínið sem var verið að kynna er
Tommasi sem Mekka Wines and
Spirits flytur inn. Framkvæmda-
stjóri þar er Jón Erling Ragnars-
son og hann vildi nú ekki kannast
við það að verið væri að hella víni
ofan í viðskiptavini Hagkaupa
nema síður sé. „Fyrir þá sem hafa
aldur til. Við lítum á þetta sem
ráðgjöf: Hvaða vín getur farið vel
með helgarsteikinni. Botnfylli í
plastsnafsaglasi,“ segir Jón Erling
sem hefur varla ímyndunarafl til
að geta sér til um hversu mörg
slík þyrfti svo menn færu að finna
á sér. Og Gunnar Ingi Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Hagkaupa,
tekur í sama streng og segir þetta
hluta matarmenningar lands-
manna. „Þetta er ráðgjöf. Og við
viljum prófa okkur áfram með
þetta og sjá hvernig viðskiptavin-
urinn bregst við. Því við erum til
fyrir hann,“ segir Gunnar Ingi.
Hann er sér meðvitaður um að
þetta kunni að reynast á gráu
svæði, jafnvel að þetta sé jarð-
sprengjusvæði.
„Við megum því miður ekki
selja vín þó við glaðir vildum. Við
höfum til þess betri aðstöðu en
víðast býðst. Og margar kannanir
sýna að fólki finnst eðlilegt að
geta keypt léttvín með matar-
innkaupum. En svo fara „lobbý-
istavélarnar“ í gang þegar talað er
um að þetta eigi að fara í búðirn-
ar,“ segir Gunnar Ingi. Hagkaups-
menn hafa áhuga á að prófa sig
áfram með þetta í sumar og tengja
grillstemningunni sem þá mynd-
ast. „Við sjáum til hvað verður
eftir helgi.“
- jbg
Vínkynning og smökkun í matvöruverslun
VÍNKYNNING Í MATVÖRUBÚÐ
Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Hagkaupa, lítur á kynninguna sem
ráðgjöf en ekki vínsmökkun.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Ingrid Betancourt.
2. Will Smith.
3. Ögmundur Jónasson.