Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.07.2008, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 18.07.2008, Qupperneq 59
FÖSTUDAGUR 18. júlí 2008 35 útsala Enn meiri íþróttaskór sundföt sportfatnaður barnafatnaður útivistarfatnaður ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 43 00 5 07 /0 8 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Hljómsveitin Bang Gang verður mikið á ferð og flugi næstu daga. Í gær var hún stödd í Frakklandi til að spila á rokktónlistarhátíðinni Plage de Rock sem haldin er rétt fyrir utan St. Tropez. Bang Gang heldur svo til Parísar í dag þar sem hljómsveitin verður með útgáfutónleika og að þeim loknum er ferðinni heitið alla leið austur á land þar sem hljómsveitin spilar á LungA á Seyðisfirði. Tónleikarnir á Seyðisfirði verða jafnframt þeir fyrstu sem hljóm- sveitin heldur hér á landi í rúm tvö ár. „Bang Gang kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir stuttu en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem hljómsveitin kemur fram ein og óstudd. Það er gaman að þessir fyrstu tónleikar verði á Seyðisfirði þar sem ég er hálfur Seyðfirðingur og löngu orðið tímabært að ég haldi tón- leika fyrir austan,“ segir Barði Jóhannsson tónlistarmaður. Barði mun ekki sitja auðum höndum í sumar því eftir tónleikana á Seyð- is firði mun hann taka að sér að semja tónlistina fyrir nýjustu kvikmynd Óskars Jónassonar, Reykjavík/Rotterdam og því næst heldur hann út á ný í tónleika- ferðalag um Evrópu. „Ég er með bókara úti sem sér um að bóka mig á tónleika. Ég mun spila á milli tuttugu til þrjátíu tón- leikum í september og október, þannig að þetta er nokkuð strangt prógram sem er framundan,“ segir Barði áður en hann rýkur í hljóðprufu. - sm Nóg að gera hjá Bang Gang BARÐI Á FLEYGIFERÐ Í SUMAR Bang Gang spilar á laugardaginn á LungA. Egill Sæbjörnsson og hljómsveit- in Flís spila á tíu ára afmæli „Warm Up“, sem nýlistasafnið P. S.1 MoMA í New York stendur fyrir um helgina. „Warm Up“ var valið besti klúbbur New York í tímaritinu Time out 2005 og er viðburður sem beðið er eftir. Þúsundir gesta mæta ár hvert. Tónleikar eru haldnir alla laugardaga frá 5. júlí til 6. september í sex klukkustundir í senn. Meðal annarra hljómsveita sem fram koma má nefna Au Revoir Simone og James Murphy og Pat Mahoney úr LCD Sounds- ystem. Egill og Flís koma fram næsta laugardag, ásamt Au Revoir Simone. Egill Sæbjörns- son hefur starfað um árabil sem myndlistarmaður en margir muna þó eftir hljómplötu hans Tonk of the Lawn frá árinu 2000 og sumarsmellum eins og I love you so. Flís eru þekktastir fyrir tónlist við Leg, eftir Hugleik Dagsson, sem sýnt var í Þjóðleik- húsinu síðustu tvö leikár. -kbs Egill og Flís í New York Amy Winehouse, Razorlight og Bloc Party leika í nýrri sjón- varpsseríu á netinu. Þá má sjá Duffy, Girls Aloud og The Feeling í aukahlutverkum. Sápan heitir ‘The Secret World Of Sam King’ og verður aðeins aðgengileg þeim sem nota Bebo-vefsvæðið. Á hún að eiga sér stað innan Universal Records, sem standa að fram- leiðslu þáttarins ásamt Bebo og framleiðslufyrirtækinu Monkey Kingdom. Sápan á að snúast um ungling sem vinnur hjá Universal en setur upp eigin skrifstofu inni í skrifstofuskáp. Ekki hefur verið gefið upp hvaða hlutverk falla til stjarnanna. Tónlistarfólk í stjörnusápu LEIKARAR Bloc Party leika í nýrri sápu. Stórpródúsentinn Timbaland segir þá Jay-Z stefna á samstarf við næstu plötu rapparans. Hafa þeir kappar áður starfað saman, til dæmis við „Big Pimpin“ sem sló í gegn á heimsvísu árið 2000. Timba- land tjáði áhuga sinn á samstarfi við MTV, þótt ekkert hafi verið staðfest í þeim efnum. Það stendur þó ekki í vegi fyrir því að Timbaland tali um málið eins og um staðreynd væri að ræða. „Hann vill að ég sjái um þetta allt saman núna. Ég er að gera handa honum algjöran klassíker. Ég segi það satt, þetta verður algjört skrímsli. Við viljum ná heiminum. Þetta verða tíu Big Pimpin.“ Jay-Z er á tónleikaferðalagi og hefur ekki tjáð sig um málið. Timbaland og Jay-Z saman í hljóðveri Í HÖRKU STUÐI Egill Sæbjörnsson og Flís spila fyrir þúsundir í New York. MYND/EGILL SANNFÆRÐUR UM SAMSTARF Timbaland segist ætla að pródúsera Jay-Z.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.