Fréttablaðið - 19.07.2008, Page 44
19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
LISTMÁLARINN ERRÓ ER 76 ÁRA.
„Á viðburðaríkri ævi hefur mér
lærst að líta helst aldrei til
baka.“
Guðmundur Guðmundsson, sem
betur er þekktur undir listamanns-
nafninu Erró, hefur hlotið fjölmarg-
ar orður og heiðurslaun fyrir list-
sköpun sína. Hann er einn þekkt-
asti íslenski listamaður sögunnar
og býr nú í Frakklandi.
Það var þennan dag
árið 1974 að varð-
skipið Þór stóð
breska togarann C.
S. Forester að ólög-
legum veiðum og
neyddist til að elta
hann um hundrað og
tuttugu mílur á haf
út. Varðskipið skaut
átta fallbyssuskotum
að togaranum áður
en hann stoppaði
og kom þá leki að
honum. Skipstjóri togarans, Dick
Taylor, hlaut fjögurra ára fangelsis-
dóm fyrir brotið.
Varðskipið Þór tók þátt í öllum
þorskastríðum Íslendinga og
Breta. Þorskastríð-
in voru í raun þrjú
og áttu sér stað á
árunum eftir seinni
heimsstyrjöldina.
Á grundvelli Land-
grunnslaganna sem
sett voru 1948 var
fiskveiðilögsaga Ís-
lands færð úr þrem-
ur mílum til tvö
hundruð mílna lög-
sögunnar sem nú er
í gildi. Útfærslan fór
þó fram í nokkrum skrefum. Breyt-
ingin var að mestu í samræmi
við óljós alþjóðalög þess tíma en
Bretar ákváðu engu síður að mót-
mæla henni.
ÞETTA GERÐIST: 19. JÚLÍ 1974
Ólöglegar veiðar Breta
Ljósmyndasýningin „Hvaðan kom og hvert fór?“ verður
opnuð í dag klukkan fimm í Gallerí Tukt sem er í Hinu hús-
inu. Þar mun Rut Rúnarsdóttir sýna og selja myndir sem
hún tók í sumar af Leynileikhúsinu Stígis. „Myndirnar
fanga augnablik í gjörningum sem Leynileikhúshópurinn
Stígis hefur framið. Þetta eru því augnablik sem ég fang-
aði og held mikið upp á en einnig verðum við með hluta úr
gjörningum sem við höfum gert,“ segir Rut og tekur fram
að þótt hún standi að sýningunni þá styðji hópurinn Stígis
við bakið á henni.
Rut hefur lengi haft áhuga á ljósmyndun og byrjaði
snemma að tileinka sér helstu tækni hennar. „Ég byrjaði
að fikta við þetta svona fjórtán fimmtán ára en þá fékk
ég gamla Olympus-vél sem mamma mín hafði átt. Síðar,
þegar ég var aðeins búin að ná tökum á þessu, gaf pabbi
mér Nikon-vél. Ég var alltaf að leika mér með myndavél-
ina og var í raun með hálfgerða dellu lengi vel. Síðan dal-
aði áhuginn aðeins en síðasta haust fór ég að læra förðun
og þá kviknaði áhuginn aftur fyrir alvöru,“ útskýrir Rut
einlæg.
Í framhaldi af því fjárfesti Rut í nýrri vél og fékk í
sumar vinnu hjá Hinu húsinu við að taka myndir. „Við
erum fjögur í hópi sem heitir Stígis og vinnum í Skapandi
sumarstarfi. Þrjú okkar leika og ég er ljósmyndari fyrir
hópinn en við höfum verið með gjörninga tvisvar í viku.
Ljósmyndasýningin er í raun afrakstur sumarsins,“ segir
Rut áhugasöm.
Þó svo þetta sé fyrsta ljósmyndasýning Rutar þá hefur
hún unnið við önnur skemmtileg ljósmyndaverkefni. „Ég
hef verið að mynda fyrir danshópinn Darí Darí Dance
Company sem er atvinnudansarar sem hafa starfað saman.
Síðan hef ég tekið myndir fyrir auglýsingu hjá Klassíska
listdansskólanum þannig ég hef aðeins birt myndir eftir
mig þó ég hafi aldrei haldið sýningu áður,“ segir Rut sem
hefur einna mest gaman af mannlífsmyndum. „Ég hef
mjög gaman af að taka myndir af því sem bregður fyrir en
hef síður gaman af landslagsmyndum og þess háttar. Eins
þykir mér ekkert sérstaklega gaman að taka uppstilltar
myndir heldur vil ég frekar að myndirnar einhvern veginn
verði,“ útskýrir Rut ákveðin og bætir við: „Ég vinn mynd-
irnar mínar ekki meira en hægt er að gera í myrkraher-
bergi. Ég opna ekki Photoshop. Ég vil hafa þetta ekta og er
til dæmis mjög hlynnt því að taka á filmu þó ég geri það
reyndar ekki í þessu verkefni, einfaldlega af því að það er
mun ódýrara að taka stafrænar myndir.“
Rut þykir Photoshop henta vel fólki í grafískri vinnu en
ekki eins vel fyrir ljósmyndara. „Mín skoðun er sú að ef
myndin er það léleg að maður þurfi að vinna hana mikið
þá er hún ekki nógu góð til að byrja með,“ segir Rut sem
þykir mörkin milli ljósmyndunar og grafískrar hönnunar
stundum vera óljós.
Í haust ætlar Rut að fara á upplýsinga- og fjölmiðla-
braut í Tækniskólanum og reyna í framhaldinu að komast
inn í ljósmyndun í Iðnskólanum í Reykjavík. „Það eru bara
tólf sem komast inn í ljósmyndun þannig þetta er svolít-
il keppni og nauðsynlegt er að vinna vel að umsókninni,“
segir Rut og horfir björtum augum til framtíðar.
hrefna@frettabladid.is
RUT RÚNARSDÓTTIR: HELDUR SÍNA FYRSTU LJÓSMYNDASÝNINGU
Að fanga augnablikið
HEILLANDI MANNLÍF Rut þykir einna skemmtilegast að taka myndir af
því sem bregður óvænt fyrir og safnar þannig skemmtilegum augna-
blikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
timamot@frettabladid.is
Við undirrituð þökkum auðsýnda samúð
og velvild við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu, sem
lést hinn 1. júlí sl. og var jarðsett 4. júlí.
Guðrún Ó . Hafberg.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Dalbraut 27,
fyrir frábær störf, og reyndar fyrir að hafa farið nokk-
uð fram úr sínum skyldum. Þá skal einnig þakka fyrir
störf starfsfólks deildar B-7 á LHS, Borgarspítala.
Einnig kærar þakkir til starfsfólks á deild K-5 líknar-
deild LHS, Landspítala.
Ingibjörg Þ. Hafberg Leifur E. Núpdal Karlsson
Ólafur Þ. Hafberg
Engilbert Hafberg Auður Sæland Einarsdóttir
Sigurður Hafberg Janina Hafberg
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku hjartans drengurinn okkar, bróðir,
barnabarn, frændi og vinur,
Bjarni Páll Kristjánsson
Ægisíðu 107, Reykjavík,
lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans við
Hringbraut aðfaranótt þriðjudagsins 15. júlí. Útförin
verður auglýst síðar.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Kristján Geirsson Droplaug Guðnadóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
Baldvin Eyjólfsson
Birkir Kristjánsson.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
Arndísar Árnadóttur
frá Ísafirði,
sem jarðsungin var frá Fossvogskirkju föstudaginn
4. júlí sl.
Birgir Finnsson
Auður Birgisdóttir Páll Skúlason
Finnur Birgisson Sigurbjörg Pálsdóttir
Arndís Birgisdóttir Sigmundur Sigurðsson
Björn Birgisson Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
60 ára afmæli
Þórunn V.
Eggertsdóttir
(Dísa)
Einigrund 4, Akranesi, verður 60 ára
21. júlí nk. og ætlar að taka á móti
gestum á heimili sínu sunnudaginn 20.
júlí milli kl. 14.00-18.00. Ætting jar og
vinir hjartanlega velkomnir.
Okkar ástkæri
Höskuldur Svavarsson
lést á heimili sínu hinn 5. júlí síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram. Við þökkum hlýhug
og samúðarkveðjur.
Ásrún Snædal Svavar Björnsson
Gígja Svavarsdóttir Egill Gunnarsson
Þóra Björg Gígjudóttir Sjöfn Egilsdóttir
Svavar Egilsson.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og stjúpföður,
Hilmars Jóhannessonar
rafeindavirkjameistara, Brekkugötu 19,
Ólafsfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Hrafnhildur Grímsdóttir
Jóhann G. Hilmarsson Anne I. Turunen
Haukur Hilmarsson
afabörn
Gunnar B. Þórisson Helga Helgadóttir
Súsanna V. Þórisdóttir Gunnar S. Sigurðsson
Gísli V. Þórisson Guðný Ó. Viðarsdóttir
Grímur Þórisson Anna Ingileif Erlendsdóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til allra okkar fjölmörgu
ættingja og vina er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
Kristjáns Eðvalds Jónssonar
bónda, Hólum, Dalabyggð.
Elín Þ. Melsteð
Elías Melsteð Kristjánsson
Sigurður Finnur Kristjánsson Margrét Ásta Jónsdóttir
Hjalti Freyr Kristjánsson Rebecca C. K. Ostenfeld
Ásdís Kristrún Melsteð Jóhannes Haukur Hauksson
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýhug við andlát og útför
mannsins míns, föður, tengdaföður og afa,
Jóns Ármanns Jakobssonar
Péturssonar
Kringlunni 17, Reykjavík.
Blessuð sé minning hans.
Hafdís Einarsdóttir
Pétur H. Jónsson Oddný Þ. Óladóttir
Margrét Jónsdóttir Arnór H. Arnórsdóttir
Einar Þ. Jónsson Gína Jónsson
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Lilju Guðlaugsdóttir
Víðilundi 24, Akureyri.
Innilegar þakkir til starfsfólks á handlæknisdeild á
Sjúkrahúsi Akureyrar fyrir einstaklega góða og hlýja
umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Margrét Þórhallsdóttir Karl Eiríksson
Þórhalla Þórhallsdóttir Hjörtur Hjartarson
Valdimar Þórhallsson Inga Hjálmarsdóttir
Gylfi Þórhallsson
Eyþór Þórhallsson Margrét Sigurðardóttir
ömmubörn og langömmubörn.