Fréttablaðið - 25.07.2008, Page 40

Fréttablaðið - 25.07.2008, Page 40
1. Vertu heima í kvöld. Hvort heldurðu að sé eft- irminni- legra, leiðindakvöld heima að horfa á sjón- varpið eða ofneysla áfengis á bar í miðbænum? Þegar vinnufélagarn- ir spyrja hvernig helgin var þarftu ekki að rifja upp gleymd augnablik enda manstu nákvæmlega hvar þú varst og hvað þú gerðir. 2. Vertu brjálaður/brjál- uð í skapinu. Þá meina ég í trylltu skapi. Hreyttu ónotum og fúkyrðum í einstakl- inga sem eiga það ekki skilið og beittu vini og samstarfsfólk andlegu ofbeldi. Dagurinn verð- ur lengi í minnum hafður sem „brjálaði föstudagurinn“. 3. Pakkaðu þér í pappamassa. Fáðu vini til að pakka þér inn eins og múmíu. Dagurinn mun aldrei gleym- ast – sérstaklega ekki ef þú ferð með dæmið lengra og lætur koma þér fyrir á fjölförnum stað. 4. Borðaðu eitthvað ógeðslegt. Þú munt ávallt minnast dagsins sem þú borðaðir viðbjóðinn – maður borðar daglega þannig að þú munt að öllum líkindum minnast hans á hverjum degi. 5. Labbaðu afturábak allan daginn. Þú munt aldrei gleyma þessum föstu- degi. Þú vekur mikla athygli og dagur- inn verður ekki aðeins eftirminnilegur fyrir þig, heldur einnig vinnufélaga, vini og fjölskyldu. Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Monitor. FÖSTU DAGUR LEIÐIR TIL AÐ GERA FÖSTUDAG ÓGLEYM- ANLEGAN5 Ólöf Helga Arnalds er fædd 04.01.1980. Útkoman úr því er 23 sem er jafnt og 5. Ólöf er mjög jarðbundin kona og heillar alla með látleysi sínu og einlægni. Allt sem hún segir virðist vera vandlega ígrundað en samt leikur hún lífið af fingrum fram. Hún hefur mjög þægilega nærveru og er ansi húmorísk. Þar sem hún er talan 5 á hún gott með að koma fyrir sig orði og semja bæði sögur og söngva. Hún ætti að nota talandann til að koma sér áfram, sem hún er að sjálfsögðu að gera. Ólöf er á árstölunni 6 sem er ofsa- lega sterk tala, en til að sjá á hvaða tölu við- komandi er leggjum við saman fæðingar- dag og bætum við 2008. Árstalan 6 er afar mikil frjósemistala sem þýðir að allt mun margfaldast í höndunum á henni. Þetta er líka oft mikið sprengjuár og hreinsar út gamalt og bætir við nýju mjög hratt, svo Ólöf veit trúlega ekki hvaðan á sig stendur veðrið um þessar mundir. Ólöf er á hápunkti árstölunn- ar núna og ætti að fara inn í tíð- indamikið ferli frá september. Hún á auðvelt með að fá fólk til að vinna með sér og er ógleymanleg þeim sem þekkja hana. Hún á eftir að ná miklum árangri erlendis og þótt furðulegt megi virðast á Amer- íka eitthvað eftir að koma við sögu. Ólöf er dugleg í því að hjálpa öðrum og veita góð ráð. Hún þarf að passa sig á því í framtíðinni að vera vel jarð- tengd og muna eftir uppruna sínum. Hún er að fara inn í frábæra tíma og ekkert fær hana stöðvað. www.klingenberg.is SIGRÍÐUR KLINGENBERG spáir fyrir Ólöfu Helgu Arnalds Á leið inn í frábæra tíma 16 • FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.