Fréttablaðið - 25.07.2008, Side 51

Fréttablaðið - 25.07.2008, Side 51
FÖSTUDAGUR 25. júlí 2008 Parques Majeures er franskur leik- og gjörningahópur sem hefur sér- hæft sig í sýningum á nýstárlegri hreyfimyndalist. Hópurinn er um þessar mundir hér á landi í boði fyrirtækjanna Adami og Spedidam og hefur ferðast um landið með sýningu sína Skin & the Whales. Hún var til að mynda sýnd á Húsa- vík nú um síðustu helgi. Þeir höfuðborgarbúar sem eru sérlega áhugasamir um franska gjörningalist geta nú tekið gleði sína þar sem að sýningin verður sett upp í Norræna húsinu nú um helgina. Höfundur sýningarinnar er Marc Joseph Sigaud, en hún byggist upp í kringum hreyfimynd- ir sem varpað er í leikmyndina og að auki hreyfa leikarar sig inn og úr mynd. Sýningin skiptist upp í þrjá hluta þar sem fyrstu tveir hlut- arnir takast á við mannslíkamann en þriðji hlutinn, Whales, fjallar um samband mannlegs eðlis við náttúruna. Þessi síðasti kafli verks- ins varð reyndar til fyrir tilstuðlan fyrstu ferðar Marcs Joseph til Húsavíkur fyrir tveimur árum og má því halda því fram að íslensk náttúra hafi enn á ný sannað áhrifa- mátt sinn. Sýningarnar í Norræna húsinu fara fram í kvöld og annað kvöld kl. 20. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. - vþ Frönsk leik- og gjörningalist Tónlistarhópurinn Njúton stendur í stórræðum þessa dagana. Hópur- inn heldur þrenna tónleika á næst- unni; í dag og annað kvöld og svo um verslunarmannahelgina. Njúton kemur fram í Ketilhús- inu á Akureyri í dag kl. 12 á vegum Listasumars á Akureyri. Á efnis- skrá tónleikanna eru verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Karólínu Eiríks- dóttur og Ragnhildi Gísladóttur. Einnig verða frumflutt verk eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Þráin Hjálmarsson. Á sunnudag kl. 16 kemur Njúton svo fram í íbúð á jarðhæð á Grett- isgötu 18 í Reykjavík. Tónleikarn- ir eru styrktir af Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna á Íslandi, og verður því einungis flutt tónlist eftir konur, þeirra á meðal Malin Bång og Mist Þorkelsdóttur. Tón- leikarnir eru unnir í samstarfi við myndlistarkonuna Ingibjörgu Magnadóttur. Njúton tekur svo þátt í tónlistar- hátíðinni í Skálholti laugardaginn 2. ágúst kl. 21. Þar mun hópurinn leika verk eftir Malin Bång, Önnu S. Þorvaldsdóttur, Ragnhildi Gísla- dóttur, Helga Guðmundsson og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Njúton skipa að þessu sinni þau Berglind María Tómasdóttir flautuleikari, Grímur Helgason klarinettuleikari, Hildur Ársæls- dóttir sem leikur á sög og fiðlu, Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari og Frank Aarnink slagverksleik- ari. - vþ Njútón á ferðalagi Mánudaginn 21. júlí kom út hjá bókaforlaginu Bjarti LJÓÐA- SAFN 1978-2008 eftir Sjón. Er þetta sérstök hátíðarútgáfa, í tilefni þess að nákvæmlega 30 ár eru liðin síðan hans fyrsta ljóðabók, Sýnir, leit dagsins ljós. Í þessu heildarsafni eru prentaðar ellefu ljóðabækur skáldsins, sem margar hafa verið ófáanlegar um langt skeið. Sjón (f. 1962) er ljóðskáld og sagnahöfundur sem hóf feril sinn með ljóðabókinni Sýnir sumarið 1978. Á níunda áratugnum var hann í farar- broddi þeirra ungu skálda sem leituðust við að endurnýja íslenska ljóðlist með tækjum súrreal- ismans. Jafnframt því að hafa samið ellefu ljóðabækur hefur Sjón ritað söngtexta, líbrettó, kvikmyndahandrit og sex skáldsögur. Bókin er 380 bls. og er prentuð á Englandi. JPV útgáfa gefur út rit eftir Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson sem hefur að geyma allt það sem nauðsyn- legt er að vita um furðudýr og ferlegar ófreskjur úr íslenskum þjóðsagnaarfi. Bókin, Íslenskar kynjaskepnur, kemur út á bæði íslensku og ensku og heitir hún í þýðingu Meeting with Monsters. Skepnurnar sem fjallað er um í bókinni skutu landsmönnum skelk í bringu á fyrri öldum en hafa að mestu haldið sig til hlés síðustu ár. Skepnunum og sérkennum þeirra eru gerð nákvæm skil í texta og heimkynni þeirra og birtingarstaðir eru sýndir á korti. Einnig prýða bókina einstæðar myndir sem varpa nýju ljósi á þennan þátt í arfi Íslendinga. Jón Baldur Hlíðberg er myndlistar- maður og Sig- urður Ægisson, þjóðfræðingur og guðfræð- ingur að mennt, hefur í gegnum tíðina skrifað jöfnum höndum um náttúru- fræði, þjóðfræði og guðfræði. Íslenskar kynjaskepnur er þriðja samstarfsverk- efni þeirra félaga en fyrr hafa þeir gefið út í sameiningu Ísfygla: íslenskir fuglar = aves islandicæ og Íslenskir hvalir fyrr og nú. Bókin er 136 bls. og prentuð í Slóveníu. Út er komið Stafróf dýranna eftir Halldór Á. Elvarsson í ódýrri og handhægri útgáfu með mjúkum spjöldum en þessi vinsæla bók kom út innbundin árið 2006. Þetta er bók sem kennir ungum bókaormum stafina í stafrófinu. Bókstafirnir frá a til ö eru kynntir til sögunnar með hjálp þrjátíu og tveggja dýra úr öllum heimshornum. Léttum fróðleik um dýrin er fléttað saman við fyrstu skrefin í lestrarnámi með einföldum texta og sniðugum mynd- um. Höfundurinn gerir lestrarnámið mjög spennandi í þessu skemmtilega stafrófskveri fyrir fróðleiksfús börn sem langar að kynnast stöfunum. Mál og menning gefur út. NÝJAR BÆKUR MARC JOSEPH SIGAUD Höfundur sýn- ingarinnar Skin & the Whales sem sýnd verður í Norræna húsinu um helgina. SKÁLHOLTSKIRKJA -Tónlistarhópurinn Njútón kemur fram í kirkjunni um versl- unarmannahelgina.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.