Fréttablaðið - 10.10.2008, Side 4
4 10. október 2008 FÖSTUDAGUR
OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM,
OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI,
SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI,
OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI
12 STAÐIR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
15°
12°
13°
17°
19°
19°
20°
21°
17°
24°
26°
22°
18°
24°
24°
30°
17°
8
Á MORGUN
3-8 m/s
SUNNUDAGUR
5-13 m/s, stífastur
vestan til
9
8
8
7
10
10
8
5
7
5
4
3
3
3
13
10
8
9
8
7
4 3
6
5
5 1
2
66
HELGIN
Á morgun snýst
hann í norðanátt,
yfi rleitt 3-8 m/s.
Rigning eða slydda
verður norðan til
á landinu en syðra
léttir smám saman
til. Á sunnudag
snýst þetta við. Þá
verður suðaustan
átt með vætu
sunnan til en þurrt
og skýjað með
köfl um nyrðra.
Veður fer heldur
kólnandi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
BRETLAND „Þetta er mjög óvenju-
legt ástand, að heilt land sé í raun
orðið gjaldþrota,“ sagði Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, í viðtali við bresku sjón-
varpsstöðina Sky síðdegis í gær.
Hann telur engan vafa leika á því
„að þegar íslenskir bankar hafa
hrunið þá verði íslensk stjórnvöld
að taka fulla ábyrgð á því“.
„Þau geta ekki bara neitað að
standa í skilum,“ segir Brown.
„Þau geta ekki sagt að þau ætli sér
ekki að bera neina ábyrgð á því
sem hefur gerst.“
Hann var spurður út í þau
ummæli Geirs Haarde forsætis-
ráðherra að það væri óviðeigandi
að beita Íslendinga lögum sem sett
voru gegn hryðjuverkastarfsemi:
„Ég tel að almenningur, sem
fylgist með þessum atburðum
öllum, átti sig á því að þegar sparn-
aður fólks og innstæður eru í
hættu, þá höfum við rétt til að grípa
til þeirra aðgerða sem nauðsynleg-
ar eru til að kyrrsetja eignirnar ef
við höfum engar aðrar leiðir,“ sagði
hann. „Við gripum til þessara
aðgerða. Ég biðst ekki afsökunar á
því. Ég tel rétt að hafa gert þetta
við þessar kringumstæður. Við
höfum einnig áhyggjur af því að fé
hafi verið flutt frá London til
Íslands. Ég tel mikilvægt að átta
sig á því að þetta er eitthvað sem
við erum að skoða líka.“
Hann segir engan vafa leika á
því að ábyrgðin á fjárfestingum
breskra sveitarstjórna í íslenskum
bönkum liggi einnig hjá íslenskum
stjórnvöldum: „Þau eiga að greiða
þetta fé til baka. Þau bera ábyrgð á
því,“ segir Brown. „Þau hafa sett
reglurnar, þau hafa eftirlitsskyld-
una, það eru þau sem bera ábyrgð-
ina á því sem íslenskir bankar með
aðsetur á Íslandi eru að gera. Við
væntum þess að þau standi við
skuldbindingar sínar.“
Bresk stjórnvöld hafa að hans
mati brugðist við af fullri ábyrgð:
„Við erum staðráðin í að gera
það sem við getum til að hjálpa
sveitarstjórnunum og líka einstakl-
ingum sem hafa átt inneignir á
reikningum í íslensku bönkunum.
En ábyrgðin á þessu liggur alger-
lega hjá íslenskum stjórnvöldum
og þeim ber skylda til að finna leið-
ir til að standa við skuldbindingar
gagnvart almennum borgurum
sem hafa fjárfest í íslenskum bönk-
um.“ gudsteinn@frettabladid.is
Ábyrgðin er alfarið
hjá Íslendingum
Forsætisráðherra Breta segir Ísland í raun gjaldþrota. Stjórnvöld hér verði að
taka fulla ábyrgð á hruni íslenskra banka. Engrar afsökunarbeiðni er að vænta
vegna þess að beitt var lögum um hryðjuverkastarfsemi gegn bönkunum.
GORDON BROWN Forsætisráðherra Bretlands segir íslensk stjórnvöld bera ábyrgðina,
bæði á innstæðum einstaklinga í íslenskum bönkum í Bretlandi og einnig á fjárfest-
ingum breskra sveitarfélaga í íslenskum bönkum.
VIÐURKENNING „Ég veit ekki til þess
að heilli þjóð hafi verið veitt slík
verðlaun áður. Ég er því frekar
stolt af þessari hugmynd minni,“
sagði Yoko Ono, ekkja Johns
Lennon, að lokinni afhendingu
LennonOno-friðarviðurkenningar-
innar í Höfða í gær.
Verðlaunin komu í hlut íslensku
þjóðarinnar, fyrir áratuga hollustu
og frumkvöðlastarf við nýtingu
jarðhita og hreinnar orku, og
indverski vísindamaðurinn dr.
Vandana Shiva, fyrir ævistarf í
þágu umhverfis og friðar. Hvorri
viðurkenningunni fylgir 50.000
dollara peningagjöf, andvirði
ríflega fimm milljóna króna
Friðarsúlan var tendruð í gær. - kg
LennonOno-viðurkenningin:
Íslenska þjóðin
verðlaunuð
LENNONONO-VEITING Yoko Ono og
dr. Vandana Shiva eftir afhendingu
LennonOno-viðurkenningarinnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN, AP Heimsverð á olíu
hefur lækkað hratt síðustu daga og
hefur ekki verið lægra á þessu ári.
Tunnan af olíu kostaði 87,10 dali í
gær.
Stýrivaxtalækkanir helstu
seðlabanka heims höfðu líka sín
áhrif til lækkunar á olíuverði.
Einnig virðast hafa haft áhrif
nýjar upplýsingar frá Bandaríkja-
stjórn um að efnahagsvandræðin í
Bandaríkjunum hafi valdið því að
Bandaríkjamenn noti bifreiðar
sínar minna en áður.
Samtök olíuframleiðsluríkja,
OPEC, hafa boðað til fundar 18.
nóvember til þess að ræða
ástandið. Talið er að þau muni
draga úr framleiðslu til þess að
stöðva verðlækkunina. - gb
Olíuverð lækkar áfram:
OPEC-ríkin
boða til fundar
FÓLK „Ég er alls ekkert miður mín vegna
þessa ástands. Ég er alltaf bjartsýn og vona
bara það besta,“ segir Sigurlaug Gísladóttir,
86 ára gamall Seltjarnarnesbúi. Sigurlaug
hefur að öllum líkindum tapað sparifé sínu á
krepputímum tvisvar sinnum, fyrst árið 1930
og aftur nú, en tekur fram að í hvorugt
skiptið hafi verið um háar fjárhæðir að ræða.
Sigurlaug var níu ára stúlka á bænum
Þórisdal í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu
þegar alheimskreppan reið yfir árið 1930.
Hún segir enga banka hafa verið úti á landi í
þá daga, heldur hafi fólk átt reikninga í
kaupfélögunum sem lagt var inn á og tekið út
af. „Ég heiti í höfuðið á hjónum sem dóu ung
og hafði verið ánafnað einhverjum peningum
í þeirra nafni. Foreldrar mínir höfðu nýlokið
við að byggja stórt hús og skulduðu vegna
þess, og þegar kreppan kom og fólk gat ekki
borgað reikninga voru allar eigur þeirra
teknar yfir af kreppulánasjóðnum svokall-
aða. Þar á meðal voru aurarnir mínir.“
Þegar Flugfélag Íslands hóf flug til og frá
Hornafirði nokkrum árum síðar fékk
Sigurlaug minnstu hlutabréfin í fyrirtækinu í
afmælisgjöf. Með viðkomu í Flugleiðum
enduðu þau bréf svo í Glitni í vor.
„Þá vildi ég selja bréfin því mér leist
ekkert á fyrirtækið, en kom mér aldrei að
því. Nú eru bréfin líklega einskis virði,“
segir Sigurlaug og bætir við að hún sé
pollróleg yfir þessu. Skellurinn sé ekki
mikill fyrir sig.
- kg
Sigurlaug Gísladóttir hefur lifað tvær kreppur en er bjartsýn nú sem endranær:
Hefur tvisvar tapað sparifénu í kreppu
POLLRÓLEG Sigurlaug missti sparifé sitt til kreppu lána-
sjóðs árið 1930 og býst við að bréfin í Flugfélagi Íslands
sem hún eignaðist sem unglingur séu verðlaus eftir fall
Glitnis. Fréttablaðið/Anton
NEYTENDUR „Okkur datt í hug að
fólk myndi vilja setjast niður á
þægilegum stað og fá sér kaffi og
kökur á viðráðanlegu verði,“ segir
Glen Barken,
einn eigenda
kaffihússins
Babalú við
Skólavörðustíg.
Babalú býður
þessa dagana
upp á svokallað
„kreppukaffi“ á
200 krónur
bollann. Sama verð er á stórum og
stökkum hafrakökum, sem gefið
hefur verið hið viðeigandi nafn
„credit-crunch cookies“, eða
„lánsfjárkreppukökur“.
Glen segir ástandið í efnahags-
málum vissulega áhyggjuefni. „Við
höfum þó ekkert keypt með lánum.
Við fjárfestum í bjór og kaffi og
erum góðir næstu tvo mánuði að
minnsta kosti,“ segir Glen og
skellir upp úr. - kg
Babalú á Skólavörðustíg:
Lánsfjárkreppu-
kökur í boði
GLEN BARKEN
EFNAHAGSMÁL Mjög mikið álag
hefur verið í Kvennaathvarfinu
undanfarnar vikur. Sigþrúður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastýra
athvarfsins, segir þó óvarlegt að
tengja álagið efnahagsástandi
þjóðarinnar beint.
Vitað sé að þegar vandamál
aukist á heimilum og í samfélaginu
geti reiðin brotist út í heimilisof-
beldi. Annríki hafi þó ríkt í um það
bil ár í athvarfinu og þótt tímabilið
sé afar erfitt þurfi það ekki að
tengjast þrengingum í efnahags-
málum. - kdk
Heimilisofbeldi:
Mikið annríki í
Kvennaathvarfi
GENGIÐ 09.08.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
191,6819
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
105,17 105,67
181,87 182,75
143,87 144,67
19,296 19,408
17,189 17,291
14,868 14,956
1,0455 1,0517
161,05 162,01
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR