Fréttablaðið - 10.10.2008, Side 18
10. október 2008 FÖSTUDAGUR2
ÓHÆTT er að segja að hollustan sé í hávegum höfð á veitingastaðnum
Á grænni grein á Suðurlandsbraut 52. Þar er hægt að gæða sér á
gómsætu grænmetislasagna og -buffi, salati og réttum dagsins
sem eru ávallt bornir fram tveir saman, svo fátt eitt sé nefnt.
BANANABRAUÐ
3 vel þroskaðir bananar
2 egg
1 bolli sykur
2 bollar hveiti
1 tsk natrón
1 tsk lyftiduft
Bananarnir maukaðir og öllu
blandað saman. Sett í form og
bakað við 150 gráður á blæstri í
eina klukkustund.
UPPSKRIFT INGU RÓSU
Búrið nefnist ný osta- og sæl-
keraverslun sem hefur verið
opnuð í Nóatúni 17. Þar býður
Eirný Sigurðardóttir úrval af
íslenskum og erlendum ostum.
Þegar komið er inn í Búrið blasa
við bústnir ostar af ýmsum gerð-
um í borðum og skápum. Ilmurinn
er líka höfugur. Sérstaða
verslunarinnar felst meðal annars
í heimagerðum ostum frá
bændabýlum í Bretlandi og
Frakklandi að sögn eigandans
Eirnýjar. „Ég flutti heim frá
Bretlandi fyrir rúmu ári og saknaði
svo gæðaostanna sem ég vandist
þar. Þeir eru meðal annars frá
bændum sem hafa viðhaldið
aldagömlum hefðum. Sú
framleiðsla var að deyja út þegar
maður að nafni Randolph Hodgeson
stofnaði lítið fyrirtæki Neals Yard
Dairy árið 1979 sem bæði fram-
leiðir gæðaosta og tók osta frá
bændunum í sölu. Ég flyt inn osta
frá fyrirtækinu og er líka með
íslenska eðalosta,“ segir Eirný sem
einnig selur hágæðahunang, sultur
og ávaxtamauk. - gun
Aldagamlar hefðir
„Ég saknaði svo bresku ostanna þegar
ég kom heim úr 17 ára útlegð að ég
ákvað að flytja þá inn,“ segir Eirný,
eigandi Búrsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Satt að segja átti ég ekki von á
sigri en þetta er mikill heiður og
styrkir stöðu mína,“ segir Jóhannes
Steinn Jóhannesson, matreiðslu-
maður á veitingastaðnum Silfri á
Hótel Borg, sem hreppti titilinn
Matreiðslumaður ársins í vikunni.
Fimm af fremstu matreiðslu-
mönnum landsins kepptu til úrslita
í keppninni sem fór fram í Hótel-
og matvælaskólanum í Kópavogi.
Keppendur höfðu tvo tíma til að
undirbúa og skila inn þrírétta mat-
seðli eftir að hafa fengið að sjá
hráefnið daginn fyrir keppni. Þeir
fengu fimm tíma til að skila inn
forrétti á sjálfan keppnisdaginn
og hinum réttunum á tíu mínútna
fresti eftir það. Svo skiluðu fimm
íslenskir dómarar, sem hafa
alþjóðleg réttindi, inn áliti þar
sem ljóst var að Jóhannes hafði
tryggt sér sigur þótt mjótt væri á
mununum.
Spurður út í aðferðina segist
Jóhannes hafa varast að taka
óþarfa áhættu heldur notfært sér
hugmyndaflug og reynslu, en hann
hefur starfað innan veitingageirans
síðan 2001.
Óhætt er að segja að með sigrin-
um eigi Jóhannes eftir að safna í
reynslusarpinn því hann hlaut í
verðlaun námsferð til Englands,
vikudvöl hjá Raymond Blanc á Le
Manoir aux Quat’Saisons í Oxford
og tvo daga á Texture hjá Agnari
Sverrissyni í London, auk
ársáskriftar að Gestgjafanum.
Jóhannes keppir svo fyrir Íslands
hönd í Global Chef Challenge-
keppninni sem haldin er í Dublin á
Írlandi í febrúar 2009. „Ég hlakka
mikið til,“ segir hann og færir
aðstoðarmanni sínum Arnþóri
Þórsteinssyni, nema á Silfri, þakk-
ir fyrir framlag hans í keppnina.
- hs, rve
Vann eftir erfiða viðureign
Keppnin um Matreiðslumann ársins er afstaðin en þar þreyttu krafta sína nokkrir af fremstu matreiðslu-
mönnum landsins. Jóhannes Steinn Jóhannesson bar sigur úr býtum eftir erfiða viðureign.
Jóhannes
stefnir á Global
Chef Challenge
í Dublin.
Forréttur Jóhannesar: Hægelduð bleikja
og rauðspretturúlla með rauðsprettu og
tómat-ravioli, bankabyggi, gulrótum og
súraldinsmjörsósu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
F
A
B
R
I
K
A
N
Risaklattar að hætti Jóa Fel
Súkkulaðiklattar
JÓLAHLAÐBORÐ
Í IÐUSÖLUM
Jólahlaðborð fyrirtækja.
Bókið sem fyrst.
Nánari upplýsingar
á idusalir.is
Iðusalir | Lækjargata 2 a - Iðuhúsinu | s: 517 5020 - idusalir@idusalir.is
w w w . i d u s a l i r . i s
Reykjanesbæ • Hafnargötu 10 • s: 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is