Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 24
4 föstudagur 10. október
Stjörnumerki:
U: Hrútur.
S: Tvíburi.
Besti tími dagsins:
U: Þegar sonur minn vekur mig hlæjandi á
morgnana.
S: klukkan 9.15 þegar ég er búin í Pilates hjá
Ástrós. Algjör sæla.
Geisladiskurinn í spilaranum:
U: Emilíana Torrini, Me And Armini...snilld!
S: Kardemommubærinn, hvað annað!
Uppáhaldsverslunin:
U: Er ekki að hugsa um verslanir þessa dag-
ana.
S: Júniform og allar lágvöruverslanir á þessum
síðustu og verstu.
Uppáhaldsmaturinn:
U: Íslensk kjötsúpa.
S: Sushi. Væri til í sushi á hverjum degi.
Ég lít mest upp til...
U: Bjössa míns.
S: Foreldra minna, eiginmanns, barna minna
og vina og allra sem eru sannir og góðir.
Áhrifavaldurinn?
U: Tónlist, leiklist, kvikmyndir, góðar samræð-
ur og gott fólk.
S: Þeir eru ótalmargir, allt frá hvunndagshetjum
upp í snillinga, í fortíð og framtíð.
Draum
U: Snæ
S: Mér
er algjö
góðum
víni, sk
göngu
Ef þú
kaupa
U: Ég
best...
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
Unnur Ösp
Stefánsdóttir og
Selma Björnsdótt-
ir kynntust fyrst þegar
þær voru aðeins átta og
tíu ára gamlar og léku í
Kardemommubænum.
Það var þó ekki fyrr en
tuttugu árum síðar, eftir
símtal frá Selmu, sem
þær Unnur tóku upp
þráðinn og hafa verið
óaðskiljanlegar síðan.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
Í
kvöld verður Fólkið í blokk-
inni frumsýnt í Borgarleik-
húsinu í leikstjórn Unnar
Aspar Stefánsdóttur. Það er
hjartnæm saga af skrautlegu
lífi fólks í blokk í Reykjavík sem
ákveður að setja upp söngleik.
Selma Björnsdóttir hefur komið
fram í rúmlega tuttugu söngleikj-
um og leikritum í atvinnuleik-
húsum, starfað sem danshöfund-
ur og verið fulltrúi okkar Íslend-
inga í Eurovision í tvígang. Hún
settist í fyrsta skipti í leikstjóra-
stólinn þegar hún leikstýrði Gosa
í Borgarleikhúsinu í fyrra. Nú leik-
ur hún í Ástin er diskó – lífið er
pönk og leikstýrir Kardemommu-
bænum í Þjóðleikhúsinu sem verð-
ur frumsýndur í lok febrúar, en
það var einmitt í þeirri sýningu
sem leiðir Selmu og Unnar lágu
fyrst saman árið 1984. Unnur lék
svartan kött en Selma lék Kamillu.
„Ég leit rosalega upp til Selmu því
hún söng svo vel. Selma varð mér
því snemma mikil fyrirmynd,“
segir Unnur og hlær. Eftir Karde-
mommubæinn skildi leiðir en þær
vissu alltaf hvor af annarri. „Árið
2003 ákvað ég að hringja í Unni
og spyrja hvort hún væri ekki til
í að setja upp með mér eitt stykki
söngleik,“ segir Selma.
„Ég hugsaði fyrst bara „geðsjúk-
lingur er á línunni” af því að við
bara rétt könnuðumst við hvor
aðra og höfðum ekki haldið neinu
sambandi í gegnum árin en um
leið fannst mér þetta náttúrulega
spennandi tilboð, mikil fífldirfska
og langaði strax að fara í samstarf
með þessum ágætu hjónum Selmu
og Rúnari Frey Gíslasyni,“ segir
Unnur en þau settu saman upp
söngleikinn Hárið árið 2004.
„Svo leysti ég Unni af í hlutverki
Krissu í Grease og við vorum ráðn-
ar til að setja upp Litlu hryllings-
búðina í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ sama vetur. Síðan hefur
ekki slitnað slefan milli okkar því
við tölum eflaust meira saman
okkar í milli en við maka okkar og
símreikningurinn hefur hækkað
töluvert því við heyrumst svo oft,”
segir Selma og brosir.
Í LEIKSTJÓRASTÓLNUM
Spurðar um leikstjórnarverkefni
sín segist Selma hafa fengið sitt
fyrsta tækifæri á því sviði fyrir til-
stilli Unnar. „Unnur benti á mig til
að vera leikstjóri fyrir Verzlunar-
skóla Íslands fyrir tveimur árum.
Þá var ég kasólétt, fæddi fimm
dögum fyrir frumsýningu og mæli
ekki beint með því. Í kjölfar þess,
bara mánuði eftir frumsýningu,
kom Guðjón Pedersen Borgarleik-
hússtjóri til mín í hléi á leiksýn-
ingunni Ást og stakk því að mér
hvort ég væri ekki til í að leikstýra
Gosa. Þá var ég eiginlega að fara í
fyrsta skipti út á meðal fólks eftir
að ég átti Selmu Rún dóttur mína
og það datt gjörsamlega af mér
andlitið. Ég fékk svo að vita að
þetta yrði ekki fyrr en um haust-
ið og eftir að ég hafði tekið heila
viku í að brjóta mig niður og hugsa
að ég gæti þetta ekki fannst mér
þetta náttúrulega bara ótrúlega
spennandi,“ segir Selma. Unnur
segir að það hafi aldrei verið
ákvörðun hjá sér að snúa sér að
leikstjórn heldur hafi það komið
til hennar. „Fólkið í blokkinni er
í rauninni fyrsta leikstjóraverk-
efni mitt á vegum atvinnuleik-
húss og langstærsta verkefnið mitt
til þessa. Þegar maður fær tæki-
færin upp í hendurnar og það er
veðjað á mann getur maður ekki
skorast undan,“ segir Unnur. „Mér
finnst mjög gaman að ögra mér og
ég held að maður þurfti að gera
það til að þroskast og læra í líf-
inu, en ég held að ég viti þegar ég
er að taka of stórt upp í mig og þá
hef ég yfirleitt vit á að segja nei.
Mitt mottó er að ganga einu skrefi
lengra en ég þori og það hefég allt-
af gert,“ segir Selma.
FORGANGSRÖÐIN BREYTTIST
Það er óhætt að segja að Selma og
Unnur Ösp séu samstiga því auk
þess að vera önnum kafnar í leik-
húslífinu eru þær báðar í sambúð
með leikurum, voru óléttar á sama
tíma og eiga börn með fimm mán-
aða aldursbili. Aðspurðar segja
þær gott skipulag vera lykilatriði
í stórum og krefjandi verkefnum
svo þau bitni ekki á fjölskyldu-
lífinu. „Allt líf mitt breyttist við
barnsburð. Það sem skiptir máli er
barnið og lífið heima hjá manni,“
segir Unnur. Selma viðurkennir
að barneignir hafi breytt starfsák-
afanum og framagirninni. „Þegar
ég var ólétt af Gísla Birni hafði ég
áhyggjur af því að detta út og geta
ekki komist inn í bransann aftur,
en ég er laus við þær áhyggjur
núna. Þegar maður fær lítið barn
í hendurnar tekur móðir náttúra
við og breytir forgangsröðinni hjá
manni. Selma Rún var sjö mánaða
þegar ég fór að leikstýra Gosa og
ég fann að ég skipulagði mig miklu
betur og ég gat alltaf komið heim
úr vinnunni og slakað á með börn-
unum mínum,“ segir Selma og
Unnur segist ekki jafn dugleg að
taka vinnuna með sér heim. „Ég
skipulegg mig þannig að lífið sé í
fyrsta sæti því það er í raun inn-
blástur í vinnuna mína.“
Hvernig er heimilislífið þegar
þið eruð í verkefnum á sama tíma
og makarnir?
„Okkur Rúnari var boðið að
leika saman í tveimur sýning-
um, en eftir að Selma Rún kom í
heiminn er það ekki í boði,“ segir
Selma og Unnur tekur undir þetta.
„Við Bjössi erum bæði uppi í Borg-
arleikhúsi núna og við reynum að
hafa það fyrir reglu að vera ekki
í sömu verkefnunum. Maður þarf
virkilega að hugsa þetta allt upp á
nýtt eftir maður eignast barn.“
Starf leikara felur gjarnan í sér
óvissu þegar kemur að verkefn-
um og tekjum. Unnur og Selma
hafa þó nóg fyrir stafni og segjast
að vissu leyti þrífast á óvissunni.
„Ég frumsýni í lok febrúar og eftir
það er hin fullkomna óvissa, en ég
er svo vön því. Það er yfirleitt allt-
af þannig hjá mér og ég er ekkert
stressuð yfir því,“ segir Selma og
Unnur segist þrífast á óvissunni.
„Eftir frumsýningu á Fólkinu í
blokkinni fer ég að æfa Milljarða-
mæringa sem er jólasýning í Borg-
arleikhúsinu og fer að leika í Fló á
skinni, sem ég mun hoppa inn í,
en ég hef aldrei verið fastráðin og
maður hræðist það pínulítið. Það
SLEFIÐ slitnar ekki Á MILLI Þ
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Selma Björnsdóttir eru samstiga í lífinu Þær eiga börn á svipuðum tíma, eru báðar að leikstýra um þessar mundir og eru báðar giftar leikurum.
SNYRTISKÓLI - naglaskóli - förðunarskóli - fótaaðgerðaskóli
S N Y R T I -A K A D E M Í A N
Velkomin í Snyrtiskóla Snyrtiakademiunnar Hjallabrekku 1
Snyrtiskólinn er einkaskóli með alþjóðleg CIDESCO réttindi. Nám í snyrtifræði er hagnýtt
og skemmtilegt nám. Snyrtiskólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu. Námið er lánshæft í
gegnum LÍN. Örfá pláss laus í Nóvember. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 553-7900
www.snyrtiakademian.is