Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 46
30 10. október 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. brennt vín, 6. samanburðarteng-
ing, 8. neitun, 9. meðvitundarleysi,
11. tveir eins, 12. iðja, 14. jurtaríki,
16. kaupstað, 17. efni, 18. ari, 20.
sjúkdómur, 21. land í asíu.
LÓÐRÉTT
1. erindi, 3. öfug röð, 4. samhliða, 5.
sigti, 7. nýta, 10. mál, 13. upphaf, 15.
eldhúsáhald, 16. ófarnaður, 19. skst.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. romm, 6. en, 8. nei, 9. rot,
11. ðð, 12. starf, 14. flóra, 16. bæ, 17.
tau, 18. örn, 20. ms, 21. laos.
LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. on, 4. meðfram,
5. mið, 7. notfæra, 10. tal, 13. rót, 15.
ausa, 16. böl, 19. no.
„Mér finnst best að fara á
Vegamót til að fá mér bita. Mér
finnst umhverfið þægilegt og svo
þekkir maður alltaf einhvern
þar inni. Maturinn líka góður og
ég fæ mér eiginlega alltaf louisi-
ana kjúklingabita eða nachos
með öllu á og Coca Cola Light.“
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Poul Madsen, aðalritstjóri Ekstra-
blaðsins, telur Dani hafa litla
samúð með frændþjóð sinni í
norðri. Íslendingar hafi grafið sína
gröf sjálfir og Dönum beri engin
skylda til þess að hjálpa þeim upp
úr henni. Madsen segist hins vegar
sjálfur ekki vera þeirrar skoðun-
ar.
Frétt Ekstrablaðsins um söfnun
handa bágstaddri þjóð í norðri
fyrir framan Magasin Du Nord,
eitt útrásarvígi Íslands, vakti hörð
viðbrögð meðal lesenda blaðsins
og skiptust menn í tvo hópa.
Annars vegar að Íslendingar ættu
að líta í eigin barm og vera ekki að
kalla á hjálp. Hins vegar að um
ósmekklegt grín væri að ræða hjá
Ekstrablaðinu og að það ætti að
skammast sín. Ingimundur Gísla-
son skrifar meðal annars í athuga-
semd: „Þið ættuð að skammast
ykkar. Íslenska þjóðin á í miklum
erfiðleikum og þið gerið bara grín
að því.“ Torkil Heinesen bætir við
að það hljóti að vera grunnt á því
góða milli Dana og Íslendinga, þá
sérstaklega eftir að íslensku útrás-
ar víkingarnir festu kaup á mörg-
um af þekktustu vörumerkjum
Dana.
Ekstrabladet brá í kjölfarið á
það ráð að efna til skoðanakönnun-
ar um hvað lesendum fyndist í
raun og veru um aðstoð handa
Íslendingum. Niðurstöðurnar voru
nokkuð ótvíræðar. Tæplega sextíu
prósent svarenda töldu að Íslend-
ingar ættu enga hjálp skilið.
Madsen sagði að niðurstöðurnar
kæmu sér óvart en þær hefðu
verið viðbúnar. „Ég finn mikið til
með Íslendingum á þessum tímum
og finnst sjálfur að við ættum að
leggja okkar af mörkum. En mín
tilfinning er sú að danska þjóðar-
sálin sé ekki á sama máli. Þeim
finnst útrásin ykkar hafa verið
blaðra sem nú sé sprungin og að
Dönum beri engar skyldur til þess
að hjálpa. Þið hafi keypt mörg
þekkt dönsk vörumerki en nú komi
í ljós að engin innistæða sé fyrir
þeim. Þetta sé því alfarið ykkur
sjálfum að kenna og þar af leið-
andi ykkar vandamál.“
Madsen kvaðst jafnframt vera
leiður yfir því ef grín vefsjón-
varpsins hefði ekki komist til skila.
„Við fylgjumst grannt með gangi
mála á Íslandi og vitum vel að
ástandið er ekki gott. Okkur fannst
hins vegar að það mætti einnig
reyna að brosa í gegnum þetta og
vildum leggja okkar af mörkum til
þess,“ útskýrir Madsen. „Húmor-
inn er jú erfiður við að eiga á
stundum eins og þessum,“ bætir
hann við.
freyrgigja@frettabladid.is
POUL MADSEN: EKKI ÆTLUNIN AÐ SÆRA NEINN MEÐ ÍSLANDSSÖFNUN
Dönum stendur á sama
um íslenska frændur sína
HEFUR SAMÚÐ MEÐ ÞJÓÐINNI Ritstjóri Extrablaðsins segist finna til með Íslending-
um. Hann viðurkennir þó að danska þjóðin sé ekki á sama máli. MYND: POLFOTO
„Ef þú ætlar að fá eitthvað skemmtilegt
komment frá mér um Bubba Morthens þá
tekst þér það ekki,“ segir Bergur Ebbi í
Sprengjuhöllinni. Bubbi var allt annað en
ánægður með að bandið skyldi hætta við að
troða upp á samstöðutónleikunum á mið-
vikudaginn og kallaði hljómsveitina
„stelpurnar í Sprengjuhöllinni“ hjá Óla
Palla á Rás 2.
„Svo er það nú varla heimsendir þótt
Bubbi fari í fæting við mann,“ segir Bergur.
„Hann og Dóri DNA eru að fara að lýsa
einhverjum bardaga saman. Ætli Bubbi
bjóði okkur ekki bara í grill bráðlega.“
Þótt Sprengjuhöllin hafi heykst á Bubba-
tónleikunum ætla þeir ekki að láta sitt eftir
liggja í aðkallandi þjóðarpeppinu sem fram
undan er. Þeirra fyrsta framlag er lagið
„Byrjum upp á nýtt (Bestu kveðjur)“, sem
nú er komið í spilun. „Við ætluðum að setja
annað lag í spilun, lagið „Vegurinn“, og
vorum að kynna það á X-inu á mánudaginn,“
segir Bergur. „Strax eftir viðtalið var bein
útsending frá ávarpi Geirs Haarde. Þarna á
útvarpssviðinu hjá 365 var meðal annars
Hemmi Gunn að horfa, maður sem hingað
til hefur verið einna hressastur á landinu.
Hann og Ásgeir Kolbeinsson voru eitthvað
að gantast fyrir ávarpið, en svo hljóðnuðu
þeir eftir því sem Geir hélt áfram að tala.
Þegar Hemmi Gunn var kominn með skeifu
litum við Snorri á hvor annan og vissum að
það kom ekki annað til greina en að breyta
planinu og setja „Byrjum upp á nýtt“ strax í
spilun.“
Nýja plata Sprengjuhallarinnar, Bestu
kveðjur, kemur út um mánaðamótin
október/nóvember. - drg
Ekki heimsendir þótt Bubbi fari í fæting
JAFNVEL HEMMI GUNN VAR KOMINN MEÐ SKEIFU Berg-
ur Ebbi í Sprengjuhöllinni vill „Byrja upp á nýtt“.
Hemmi Gunn virðist skynja
hjartslátt þjóðarinnar betur en flestir
og það sem í loftinu liggur en eins
og Fréttablaðið
greindi frá fyrir viku
hefur hann sett
trúðinn Hemma inn
í skáp og hinn „djúp -
þenkjandi Hemmi“
er nú tekinn
við, á Bylgjunni
að morgni
sunnudaga.
Gestur
Hemma
næst er 81 árs
eilífðarrokkari sem
er fyrst nú að gefa út sína fyrstu
plötu. Hér er um að ræða sjálfan
Skafta Ólafsson sem byrjaði á
að syngja og spila inni í tjaldi á
Lýðveldishátíðinni árið 1944.
Þeir urðu svekktir nemendur í MR
þegar sérlegum árshátíðartónleik-
um var aflýst með engum fyrirvara.
Tónleikana átti að halda
á miðvikudagskvöld,
sem eins konar
upphitun fyrir
árshátíðina sem
haldin var í gær.
Aðalnúmerið áttu
að vera Kiddi og
félagar í Hjálm-
um en þeir
hringdu í
forsvars-
menn
nemendafélagsins og sögðust vera
hálfslappir og gætu því ekki komið.
Þá munu neyðarfundir Geirs H.
Haarde í Iðnó, þar sem tónleikarnir
voru fyrirhugaðir, hafa sett strik í
reikninginn því öll tæknimál fyrir
hljómsveitarmenn voru komin í
hnút.
Aðdáendur Bubba Morthens geta
farið að undirbúa sig fyrir
þægileg mánudagskvöld
á næstunni. Fyrsti
þáttur Færibandsins,
nýs útvarpsþáttar
Bubba, fer í loftið
á Rás 2 á mánu-
dagskvöldið eftir
tíufréttir. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Algjört fífl þessi maður – og dóni,“ hvíslar
Geir Hilmar Haarde í eyra Urðar Gunnars-
dóttur upplýsingafulltrúa á blaðamanna-
fundi í Iðnó í gær. Forsætisráherra er ótví-
rætt, að mati Vísis, sem birtir myndskeið
þar sem heyra má þessi ummæli falla, að
tala um Helga Seljan fréttamann Kastljóss.
Þegar spurningum íslensku blaðamann-
anna lauk með svörum Geirs og Björgvins
G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra biður
Geir íslensku pressuna um að yfirgefa sal-
inn svo ávarpa megi enskumælandi fjöl-
miðlamenn. Þá gellur í Helga sem segir:
„Geir!“ En forsætisráðherra þaggar snar-
lega niður í frammíköllum og snýr sér svo
að Urði með þessa athugasemd. Hann gætir
hins vegar ekki að því að míkrófónninn
nemur vel hvað hann segir.
Helgi Seljan vill ekki tjá sig um málið,
segist reyndar ekki geta fullyrt um hvort átt
hafi verið við sig, hann hafi ekki heyrt þessi
ummæli enda á leið úr salnum. Þórhallur
Gunnarsson ritstjóri Kastljóss tekur í sama
streng. „Ég get ekkert fullyrt um að hverjum
hann beinir þessum orðum þó að Vísir
fullyrði að Geir eigi við Helga. Það er eigin-
lega ekki mitt að kommentera á þetta. Það
verður eiginlega að spyrja Geir að því,“
segir Þórhallur.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í
Urði til að fá svar við því um hvern forsætis -
ráðherra hafi verið að tala né heldur náðist í
Geir – sem hefur í nægu að snúast þessa
dagana. - jbg
Helgi Seljan sennilega fífl og dóni Geirs
HELGI SELJAN Í IÐNÓ Í GÆR Lét til sín taka á
blaðamannafundinum í gær og var augljóslega
ekki vinsælasti spyrjandinn í huga Geirs og
Björgvins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Löggildir
rafverktakar
Rafmagnsvandamál
Talaðu þá við okkur
Uppl. síma
8604507 / 8494007
islagnir@islagnir.is
www.islagnir.is
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.
2 Útrás, athafnir, átök og einkamál.
3 Sparisjóður Suður-Þingeyjarsýslu.