Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 25
„Það verður nóg að bíta og brenna
og skoða og skemmta sér yfir á
Suðurlandi um helgina, en sunn-
lenskt safna-, lista- og veitingafólk
hefur opnað sinn víða faðm og
býður gesti hjartanlega velkomna,
eins og sunnlensk gestrisni er víð-
fræg fyrir,“ segir Gísli Sverrir
Árnason, verkefnisstjóri Safna-
helgar á Suðurlandi, sem hefst með
ótal skemmtilegum uppákomum
strax um hádegisbil í dag og lýkur
ekki fyrr en á sunnudagskvöld.
„Safnahelgin á sér rætur í
Safnanótt Vestmannaeyja, sem
þar hefur verið haldin í nóvember
undanfarin ár. Nú færast hátíða-
höldin yfir allt Suðurland; austast
frá Kirkjubæjarklaustri og allt að
orkuverinu á Hellisheiði, sem er
vestasti þátttakandinn í Safna-
helginni, og vitaskuld verða Vest-
mannaeyingar líka með,“ segir
Gísli Sverrir, sem höfðar til allra
Sunnlendinga, mýmargs sumar-
húsafólks á Suðurlandi og nær-
sveitafólks úr höfuðstaðnum og
öllum áttum að koma og taka þátt í
fjölbreyttri menningardagskrá
Safnahelgarinnar, þar sem á annað
hundrað viðburða verður í boði.
„Söfnin á Suðurlandi bjóða upp
á spennandi dagskrá. Á seinni
stigum bættist við rómaður mat-
arklasi Suðurlands sem krydda
mun dagskrána með girnilegum
krásum og kynjaréttum sem tengj-
ast héraðinu og matarhefðum
Suðurlands,“ segir Gísli Sverrir
og ítrekar að flest söfn bjóði
ókeypis aðgang um helgina og
veitingahús verði með hagstæð
tilboð á sínum matseðlum, sem
allt geri buddunni gott.
„Dagskráin er fjölbreytt og af
nógu að taka fyrir alla fjölskyld-
una, en hana má skoða í heild sinni
á www.sofnasudurlandi.is. Það er
engin leið að gera upp á milli því
svo margt heillandi býðst gestum,
og fyrst og fremst er vakin athygli
á menningararfi, sagna- og matar-
hefðum Sunnlendinga, í fortíð og
nútíð. Því er um að gera að skoða
dagskrána gaumgæfilega, velja
sér áhugaverða viðburði og kort-
leggja helgarrúnt um Suðurland
með hliðsjón af þeim. Margir
munu eflaust einskorða sig við
einstaka byggðarlag, en við vonum
að fólk taki sér skemmtiferð á
hendur um ægifagurt, þvert og
endilangt Suðurland.“
thordis@frettabladid.is
Suðurland opnar faðminn
Sunnanmenn taka á móti gestum úr öllum landsfjórðungum opnum örmum, með kynjum og kostum, í
mat og menningu, um helgina þegar menningarhátíðin Safnahelgi á Suðurlandi fer af stað í fyrsta sinn.
Gísli Sverrir Árnason er verkefnisstjóri Safnahelgar á Suðurlandi, sem hefst með
pomp og prakt í dag, en þangað verður ósvikin skemmtun að taka sveitabíltúr um
helgina, þar sem héraðið mun loga enda á milli af sýningum, menningu, sagnahefð
og ómótstæðilegum, sunnlenskum kræsingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HÁTÍÐ TRJÁNNA – LIST Í ÞÁGU BARNA er samstarfsverkefni
Barnaheilla og þjóðþekktra listamanna. Listamennirnir tileinka Barnaheillum
verk sem hægt er að skoða hjá Sævari Karli í Bankastræti. Uppboð verður á
verkunum síðar í mánuðinum og rennur ágóðinn til Barnaheilla.
Amethyst - mjög
glæsilegur “push up”
haldari í BCD skálum
á kr. 6.990,-”
Ný verslun á horninu
á Ármúla og Síðumúla 1
Ódýr leikföng og gjafavara, jólapappír 50 kr, gjafapokar 100 - 200 kr.
Gott úrval á Góðu verði
Sími: 8698171 • Opið mán-föst 11-18 & laugard. 11-17
Alla laugardaga