Tíminn - 17.02.1982, Side 5

Tíminn - 17.02.1982, Side 5
Miövikudagur 17. febrúar 1982 tiíllliii f réttir ■ Vigdis Finnbogadóttir, forseti íslands, kom i gær ásamt fylgdarliöi sinu til Heathrowflug- vallar i London, um kl. 11. Sérstakir fulltrúar Breta- drottningar og breska utanrikis- ráðherrans, Carringtons lávarð- ar, tókuá móti forsetanum á flug- vellinum, en það voru þeir Skelmersdale, lávaður, Mr. Coppel, siðameistari og Sir Ed- win Arrowsmith. Ekkert var á hinni opinberu dagskrá forsetans i gær, þar sem hin opinbera heimsókn forsetans hefst ekki fyrr en i dag, en Vigdis eyddi megninu af deginum igær i viðtöl við fulltrúa bresku press- unnar, þ.á m. B.B.C. Opinbera heimsóknin hefst svo i dag og hefst dagskrá forsetans á þvi i dag að hún á stuttan fund með Carrington lávaröi, utanrikisráð- herra Breta, og að þeim fundi loknum mun Vigdis hitta við- skiptaráðherra Breta. Á hádegi tekursvo forsætisráðherra Breta, Margaret Thatcher á móti for- setanum, fyrir utan Downing- stræti 10, en þar munu þær eiga viöræöur og snæða siðan hádegis- verð saman. Auk þeirra, munu utanrikisráðherrar landanna tveggja, þeir Ölafur Jóhannesson og Carrington lávarður taka þátt i þessu hádegisverðarboði breska forsætisráðherrans. 1 eftirmiðdaginn i dag mun for- setinn svo heimsækja British Museum og The National Theatre og siðasti dagskrárliöurinn i dag er siðan heimsókn i The Lyttleton Theatre, þar sem forsetinn, ásamt fyígdarliði mun sjá leikrit- ið „On the Razzle”. Ólafur Jóhannesson, utanrikis- ráðherra mun fyrir hádegi i dag eiga viðræður við utanrikisráö- herra Breta, Carrington lávarð. Munu þeir einkum ræða land- helgis- og landgrunnsmálið og er gert ráð fyrir þvi að þeir muni sérstaklega ræða Rockallmálið. ■ Forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttir kemur út úr bifreiöinni sem flutti hana frá flugvélinni aö staönum, þar sem móttökuathöfnin fór fram. Þar tekur hinn konungiegi lifvöröur á mótihenni. Ella/AB FORSETI KlflNDS TIL LUNDÚNA f GÆR OPINBERA HQMSÖKNIN HEFST f DAG msmm? ■ ■ Utanrikisráöherrahjónin, Ólafur Jóhannesson og Dóra Guöbjartsdóttir koma til móttökuathafnar- ■ Mr. Neville Coppel, siöameistari býöur Vigdisi Finnbogadóttur vel- innar á Heathrow-flugvelli. komna til Bretlands. Timamyndir_____Ella

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.