Fréttablaðið - 05.12.2008, Síða 76

Fréttablaðið - 05.12.2008, Síða 76
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Hrollvekjan Dýragrafreiturinn – Pet Cemetery – eftir Stephen King fjallar um grafreit sem er þeirri ónáttúru gæddur að þeir sem þar eru huslaðir, dýr og menn, ganga aftur og ekki eins og þeir áttu að sér að vera; einhver mein- semd hefur tekið sér bólfestu í þeim – einhver illska. Það er auð- vitað ljótt að segja en sá grunur læðist að manni að eitthvað álíka hljóti að hafa hent Davíð Oddsson. Þegar pólitískur ferill Davíðs var borinn í grafhýsið við Kalkofns- veg undir fallegum minningarorð- um héldum við að þar með væri þetta búið, einum kafla væri lokið og annar að hefjast. Aldeilis ekki. Davíð er snúinn aftur og skæðari en nokkru sinni áður. Er Seðla- bankinn nokkuð reistur á fornu kumli? DAVÍÐ hefur átt það sem á ensku er kallað kombakk, en þá er átt við að einhver sem mátti muna fífil sinn fegurri hefur komist aftur til fyrri metorða. Yfirleitt haldast slíkar endurkomur í hendur við að endurheimta vinsældir sínar. Davíð fer hins vegar ekki troðnar slóðir frekar en venjulega og þess vegna felst hans kombakk þvert á móti í fáheyrðum óvinsældum. Það eru einmitt þversagnir á borð við þessa sem hafa þrátt fyrir allt gert Davíð dálítið heillandi í gegn- um tíðina. EN öllu má ofgera. Ferill Davíðs minnir nú helst á stórbrotna tragedíu eftir Shakespeare – Harmleikurinn um Davíð hafta- prins. Ungur eldhugi, með hollráð frá ömmu sinni í veganesti og hug- sjónir um að kollvarpa samfélagi hafta og helsis, vinnur sigur í bar- áttu sinni og fær metnaði sínum svalað. Valdið hins vegar gleypir hann og leiðir til glötunar; áður en yfir lýkur stendur hugsjónamað- urinn uppi sem einvaldur hins nýja haftasamfélags, með alla þræði og skömmtunarseðla í hendi sér. HANN sýnir heldur ekki á sér neitt fararsnið. Nei, nú segist Davíð vera svo ungur og uppfullur af þreki að ef hann yrði rekinn úr Seðlabankanum myndi hann demba sér aftur í pólitík. Honum þykir líklega útreiðin sem hann hlaut í kosningnum 2003 ekki nógu afdráttarlaus. En það ber að fagna þessu tilboði. Ef einhver á skilið að fá að gangast undir fallöxi kjör- klefans er það Davíð. ÉG ragmana Davíð, að gera alvöru úr hótun sinni. Og ég vona að Geir Haarde, forsætisráðherra í ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar, leggi sitt af mörkum til að svo megi verða. Rektu hann, Geir. Gefðu okkur tækifæri til að kveða niður þenn- an gangná í eitt skipti fyrir öll. Komdu fagnandi Í dag er föstudagurinn 5. desem- ber 340. dagur ársins. 10.57 13.18 15.39 11.08 13.03 14.58 Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.