Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 18

Fréttablaðið - 19.12.2008, Síða 18
18 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR ÁTTRÆÐ DÚKKA Hún er rúmlega áttræð, þessi þýska dúkka sem skipar heiðurssess í stóru dúkkusafni í bænum Bad Kösen í Þýskalandi. Dúkk- una gerði á sínum tíma Käthe Kruse, sem var fræg fyrir vandaða dúkkugerð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTUN „Það er verið að eyða út hagsmuna- samtökum framhaldskólanema á Íslandi,“ segir Hreiðar Már Árnason, stjórnarmaður í Sambandi íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) um breytingartillögur við fjárlagafrum- varpið þar sem 6,6 milljóna króna styrkur til Iðnnemasambands Íslands er felldur niður. Styrkurinn hefur runnið til SÍF sem tók yfir allar skyldur Iðnemasambandsins við stofnun þess fyrrnefnda, 4. nóvember 2007. Hreiðar bendir á að í þjónustusamningi milli menntamálaráðuneytisins og sambands- ins sé kveðið á um að samningurinn sé uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara. Þá verði uppsögn að eiga sér stað, að minnsta kosti sex mánuðum fyrir áramót til að hún teljist gild fyrir næsta ár. Því vakni spurning- ar um hvort löglega hafi verið að þessu staðið þar sem enginn hafi haft samband við þau hjá sambandinu vegna niðurskurðarins. „Við munum ekki geta staðið undir kostnaði við rekstur félagsins,“ segir Hreiðar Már. Hann segir þó að svo lengi sem til sé fólk, sem beri hag framhaldsskólanema fyrir brjósti, verði félagið aldrei lagt niður. „En starfsemi félagsins, eins og hún er í dag og sú þjónusta sem við veitum nemum verður að öllum líkindum ekki til staðar,“ segir hann. Stjórn SÍF sendi í síðustu viku menntamála- ráðherra bréf þar sem óskað er skýringa á breytingunum. Hreiðar segir að enn hafi engin svör borist. „Við spyrjum hvað taki við ef stoðunum verður kippt undan þessu félagi því okkur finnst fáránlegt að það sé ekki hægt að reka hagsmunafélag fyrir framhaldsskóla- nemendur á Íslandi,“ segir Hreiðar Már. olav@frettabladid.is Saka ráðuneytið um að brjóta gildandi samning Ríkissjóður hættir að styrkja hagsmunasamtök framhaldsskólanema á Íslandi, samkvæmt fjárlagafrum- varpi. Samtökin telja menntamálaráðuneytið brjóta gildandi samning og það virði ekki uppsagnarfrest. STANDA VÖRÐ Andrea Elín Vihljálmsdóttir, Eva Indriða- dóttir og Hreiðar Már Árnason, stjórnarmenn í Sam- bandi íslenskra framhaldsskólanema. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SKIPTING TEKNA SÍF Þjónustusamningur við ríkið: 6,6 milljónir. Aðildargjöld nemendafélaga: 1,8 milljónir. Aðildargjöld einstaklinga: 50 þúsund. Þjónustusamningur við Lánasjóð íslenskra námsmanna: 800 þúsund. Aðrir styrkir: 300 þúsund. Birt með fyrirvara MANNRÉTTINDI Mannréttindasam- tökin Amnesty International hvet- ur öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) til að efla vopnasölubann til Lýðveldisins Kongó. Milljónir hafa látist í átökum stjórnarhersins og vopnaðra hópa í Norður-Kivu í aust- anverðu landinu og nálægt 300 þús- und manns hafa hrakist á flótta. Í bréfinu segir að þrátt fyrir að vopnasölubann SÞ hafi verið í gildi í mörg ár hafi vopnaðir hópar getað keypt vopn, skotfæri og önnur gögn. Það hafi gert þeim kleift að fremja stríðsglæpi og stórfelld mannréttindabrot gagnvart almennum borgurum. Stjórnarher- inn beri einnig ábyrgð á ýmsum mannréttindabrotum. Þá segir að friðargæslulið SÞ í Kongó hafi engar starfsreglur til að styðjast við til að tryggja að stjórnarher landsins geymi, flytji og noti her- búnað með eðlilegum hætti eftir að hergögn koma til landsins. Farið er fram á að öryggisráðið hvetji alþjóðasamfélagið til tafarlausra aðgerða til að aðstoða stjórnvöld í Lýðveldinu Kongó til að efla fag- mennsku innan hersins. Að lokum eru aðildarríki SÞ hvött til að eiga samstarf um alþjóðlegan vopnaviðskiptasamning sem taki mið af meginreglum stofnskrár samtakanna og alþjóðlegra mann- réttindalaga. - kóp Amnesty International senda öryggisráði SÞ bréf: Vopnasölu til Kongó mótmælt FLÓTTAMENN Milljónir hafa látist og fjöldi manns hefur lagt á flótta vegna vopnaðra átaka í Lýðveldinu Kongó síðustu tíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Ástþór Magnússon hefur kært til lögreglu ærumeið- ingar sem hann telur sig hafa orðið fyrir af hálfu notenda spjallvefjarins Málefnin.com. Í tilkynningu til fjölmiðla segir Ástþór að ummæli um sig á spjallvefnum skipti tugum þúsunda og þúsundir þeirra séu ærumeiðingar og upplognar sakir. Ástþór hefur sent tvær kærur á lögreglu, með samtals 65 ummæl- um sem hann telur ærumeiðandi. Þar er Ástþór meðal annars sagður veikur á geði, hann þjófkenndur og sagður ofbeldis- maður. Ástþór hefur farið fram á að vefnum verði lokað. - sh Svæsin ummæli á spjallvef: Ástþór kærir ærumeiðingar ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Deilt um heimasíðugerð Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Grinda- víkur gagnrýna meirihlutann fyrir að ætla að verja ríflega þremur millj- ónum til endurnýjunar á heimasíðu bæjarins og auka þar með rekstrar- halla næsta árs. Meirihlutinn segir að til þess að efla byggðina þurfi að markaðssetja hana og efla alla kynn- ingu Grindavíkurbæjar á heimasíðu bæjarins. GRINDAVÍK SAMGÖNGUR Alþingi hefur falið Kristjáni L. Möller samgönguráð- herra að móta stefnu og áætlun um að strandsiglingar verði á ný hluti af vöruflutninga- og samgöngu- kerfi landsins. Málið er til umfjöll- unar hjá samgöngunefnd þingsins en flytjendur tillögunnar telja að um vannýttan samgöngukost sé að ræða. Stendur vilji þeirra til að almennar og reglulegar strandsigl- ingar verði hafnar með tilstyrk hins opinbera á grundvelli útboða. Ráðherra er falið að láta meta kostnað við að halda uppi regluleg- um strandsiglingum um allt land og gera tillögur um siglingaleiðir sem bjóða á út. Strandsiglingar hafa svo gott sem lagst af á undan- förnum árum. Þingmenn Vinstrihreyfingarinn- ar - græns framboðs hafa flutt til- lögu þessa efnis fimm sinnum áður. Rök þeirra fyrir að taka upp strand- siglingar er að með auknum land- flutningum sé losun gróðurhúsa- lofttegunda meiri. Þá hafi það sýnt sig að auknir landflutningar hafi neikvæð áhrif á umferðaröryggi og valdi miklu og kostnaðarsömu sliti á vegum. Hagsmunaaðilar, þar með talin flutningafyrirtæki, hafa sagt á undanförnum árum að engin forsenda sé fyrir strandflutning- um hér við land, alltént ekki án ríkisstyrkja. Samgöngunefnd hefur sent umsagnarbeiðnir til fjölda aðila. Ráðherra skal skila tillögum snemma á næsta ári. - shá Tillaga um strandsiglingar til umfjöllunar á Alþingi í sjötta sinn: Vannýttur samgöngukostur FLUTNINGAR Þegar að strandflutning- ar lögðust af jókst álagið á vegakerfi landsins. Umferðaröryggi og vegaslit eru meðal raka þeirra sem vilja sjóflutninga að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR AÐILDARFÉLÖG AÐ SÍF ■ Fjölbrautaskóli Snæfellinga ■ Fjölbrautaskóli Suðurlands ■ Fjölbrautaskólinn í Breiðholti ■ Fjölbrautaskólinn í Garðabæ ■ Fjölbrautaskóli Suðurnesja ■ Flensborgaskólinn í Hafnarfirði ■ Framhaldsskólinn á Laugum ■ Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellsýslu ■ Iðnskólinn í Hafnarfirði ■ Iðnskólinn í Reykjavík ■ Kvennaskólinn í Reykjavík ■ Menntaskólinn í Borgarnesi ■ Menntaskólinn á Egilsstöðum ■ Menntaskólinn á Ísafirði ■ Menntaskólinn að Laugarvatni ■ Menntaskólinn Hraðbraut ■ Verkmenntaskóli Austurlands ■ Verkmenntaskólinn á Akureyri FERÐAMÁL Gistinóttum á íslenskum hótelum fækkaði um tæplega fimm prósent ef bornir eru saman októbermánuðir 2007 og 2008. Gistinóttum fækkaði úr 108.800 í október í fyrra í 103.700 í október síðastliðnum. Mest var fækkunin á hótelum á Norðurlandi þar sem gistinóttum fækkaði um 20 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um 8 prósent og á samanlögðu svæði Suður- nesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 1 prósent. Gistinóttum fjölgaði hins vegar um 35 prósent á Austurlandi og 24 prósent á Suðurlandi. - ovd Færri gistinætur í október: Mestur áhugi á Austurlandi ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 43 91 1 1/ 08 JÓLAGJÖFIN SEM FLÝGUR ÚT JÓLAPAKKAR ICELANDAIR VERÐ FRÁ 26.900 KR. + Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2009. + Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld með Icelandair. + Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is I EF ÞÚ BORGAR JÓLAPAKKANN MEÐ VILDARKORTI VISA OG ICELANDAIR FÆRÐU 5.000 AUKA VILDARPUNKTA. I ATHUGIÐ AÐ HÆGT ER AÐ GREIÐA FYRIR HÓTELGISTINGU MEÐ VILDARPUNKTUM, FRÁ 14.000 PUNKTUM Á NÓTT FYRIR TVO. Traustur íslenskur ferðafélagi * Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2008 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 23. jan. 2009. Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London, Manchester, Frankfurt, Parísar og Amsterdam. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–11.200 Vildarpunkta.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.